Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1912, Page 27

Skírnir - 01.08.1912, Page 27
Jörgen Pétur Havstein. 217 Húnvetninga, að uppræta sýkina og vernda amtið fyrir frekari útbreiðslu hennar«. Lét enginn fundarmanna á sér heyra annað, en að lækningar væru með öllu ótil- tækilegar, enda yrði þeim ekki við komið til neinnar hlitar. Fundurinn samdi því bænarskrá til konungs og beiddist þess, að hinni sömu stefnu yrði framvegis fram- fylgt í amtinu, og að frv. til reglugerðar, sem fundurinn samþykti um valdboðinn niðurskurð, yrði gert að lögum til bráöabyrgðar, og að stjórnin fyrirskipaði þær ráðstaf- anir í hinum ömtunum, er væru nægilega tryggjandi til þess, að Norður- og Austuramtinu væri ekki hætta búin úr þeirri átt. Stóð fundur þessi í sex daga samfieytt og voru allar tillögurnar samþyktar í einu hljóði og fundar- gerðirnar síðan prentaðar1). Þótt fundurinn væri svona eindreginn í tillögum sín- um, stoðaði það alls ekkert er til stjórnarinnar kasta kom. Ritaði hún amtm. bréf 3. nóv. um haustið, og kveðst að vísu eigi hafa vald til að banna fjáreigendum sjálfum að halda áfram niðurskurði, hversu bágt sem til þess sé a& vita, en hitt kveðst hún eigi geta leyft, að embættismenn hennar gerist oddvitar að og leitist við að koma fram þess konar ráðstöfunum, sem bæði stjórnin sjálf og allir sem vit hafi á hljóti að álíta rangar og til helbers skaða fyrir helzta bjargræðisveg landsmanna. »Því verðum vér«, segir að lokum í bréfinu, »að láta herra amtmanninn, sýslumenn alla og hreppstjóra þá, er undir yður lúta, vita fult og fastlega, að það sé vilji dómsmálastjórnarinnar, að þér þrátt fyrir yðar eigin sannfæringu um þetta mál hættið að vinna að íramhaldi niðurskurðarins, en reynið aftur á mót, hverí sinn stað, af fremsta megniogsvo mjög sem í yðar valdi stendur aðhindra niðurskurðinn, en leitast við að efla lækn- ingar samkvæmt reglum dýralækninga- r á ð s i n s«2). *) Tíðindi frá amtsfundinum á Akureyri 12.—17. júli 1858. Ak. 1858, s) Tíðindi um stjórnarmálefni íslands I, 230.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.