Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1912, Page 28

Skírnir - 01.08.1912, Page 28
218 Jörgen Pétur Havstein. Það er ljóst af þessu bréfi, að stjórnin lagði meira upp úr tillögum stiftamtmann8 og nokkurra manna ann- ara, bæði innan lands og utan, heldur en upp úr einróma áliti allra helztu manna í Norður- og Austuramtinu með amtmanninn í broddi fylkingar. En ekki miðuðu frétt- irnar að sunnan til að snúa hug manna nyrðra, því þær bentu allar í þá áttina, að lækningarnar væru ófull- nægjandi. í Árnes- og Rangárvallasýslum var kláðinn enn víða að koma upp aftur í hinu margbaðaða fé sumra lækningamannanna, og eins í Borgarfjarðarsýslu, enda var trúin á baðanirnar farin að dofna hjá mörgum syðra1). Blaðið Þjóðólfur, sem lengi hafði verið nokkuð á reiki í skoðunum sínum á þessu máli, en þó yfirleitt hallast að lækningum, kvað upp úr með það haustið 1858, »a ð búiðsé að reyna, og reyna til hlítar, a ð 1 æ k n- ingar einar, hversu sem þær gefist álitlega svona á einstökum kindum og fáu fé, hafi alls engar skorð- ur reist fyrir eðlilegri útbreiðslu kláðans; hann hafi haft sína eyðileggjandi framrás eins fyrir þeim«2). Til allrar hamingju kom ráðherrabréfið ekki út fyr en búið var að gera allar ráðstafanir haustið 1858 til að hamla sýkinni í Húnavatnssýslu. Amtm. hafði þá skipað fyrir um niðurskurð á öliu fé milli Miðfjarðarár og Víði- dalsár og var því rækilega framfylgt; lofuðu bændur allir á hinu grunaða svæði að gereyða fénaði sínum, nema Vatnsnesingum þótti eigi næg ástæða til að eyða fé sínu strax, vegna þess að alt fé úr fjallinu hafði litið ágæta vel út í haustréttum, og öllu geldfé var búið að lóga þar nema fáeinum gimbrum; kváðust þeir vilja gangast undir ‘) Á amtsfundi, er haldinn var syðra um kláðamálið 28. sept., voru alls 24 menn, flestir tilkvaddir af stiftamtm. og sýslumönnum, og urðu þau málalok þar, að Rangæingar sögðu sig úr lögum við kina Sunnlend- ingana með lækningar og kváðust mundu skera, og sama var mjög á orði i efra hlnta Borgarfjarðarsýslu. Hafði að sögn einn bóndi í Borg- arfirði sett á haustið 1857 alls 70 fjár og var til jafnlengdar haustið ■eftir húinn að kosta upp á þessar 70 kindur 500 rd., enda var hann farinn að trénast upp á lækningunum. a) Þjóðólfur X. árg. hls. 150.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.