Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1912, Page 42

Skírnir - 01.08.1912, Page 42
Úr ferðasögu (framhald). Frá Lundúnum. I. Tveir kaflar úr þessari ferðasögu minui hafa áður komið í Skírni, og held eg nú áfram og segi frá ýmsu, sem mér hugsaðist meðan eg var á Englandi, og raunar áður og síðan. Ferðasögur eru svo hentugar í höndum þeirra, sem á kunna að halda, til að fræða og ef til vill skemta svolítið líka; en það þarf helzt að fara saman, einkum þar sem um eitthvað sögukyns er að ræða. Og ferðasögur eru að ekki litlu leyti Islendingasögur, sem oss ætti að þykja ennþá miklu vænna um, en oss þykir. Ekki sízt er mikið af Egils sögu ferðasaga, og oft hlýtur íslendingi að koma Egill í hug á Englandi, og skemtilegra var að vera Islendingur þá, ólamaður, og oft höfði hærri en allur iýðurinn. Egill hefði átt kost á að verða jarl á Englandi, og auka þar kyn sitt svo að hann ætti nú, guð veit hvað mörg hundruð þúsund Englendinga að afkom- endum, og allan aðalinn. En svo fór, eins og kunnugt er, að það eru Islendingar, sem hann á að afkomendum, og er það vel; því að margt gott mátti af honum erfa, og einhverstaðar er það í rótinni, þó að lítið beri á þvi sem bezt var, ennþá. En það má óefað græða það upp. Eg hef það af Agli og öðrum, að það er talsverð ferðalöngun í mér, með köflum, og hefði eg sjálfsagt víða farið, hefði eg verið eins efnaður og hann. En það er nú ekki því að heilsa. Carlsbergsjóðnum átti eg mest að

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.