Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1912, Side 81

Skírnir - 01.08.1912, Side 81
Peningakista keisarinnunnar. 271 Biskupinn gekk fram og aftur um gólfið til þess að stilla sig. »Þór kunnið hana auðvitað?€ sagði hann. »Auðvitað, herra biskup«. »Látið mig þá heyra hana eins og hún var flutt, síra Vernharður, orð fyrir orð, alveg eins og hún var flutt*. Biskupinn settist í hægindastólinn. Sira Vernharður stóð sem áður. »Samborgarar«, byrjaði hann og tók undir eins ræðu- tóninn. Biskupinn hrökk við. »Svona vilja þeir nú hafa það, herra biskup«. »Gerir ekkert, síra Vernharður, haldið þér áfram«, sagði biskupinn. Það fór dálítill hrollur um biskupinn; þetta eina orð hafði furðanlega komið honum í skilning um það hvernig ástatt var. Hann sá fyrir sér þennan söfnuð af börnum »svarta blettsins«, sem síra Vernhaður talaði til. Hann sá mörg svakaleg andlit, mikið af tötrum, mikið grátt gaman. Hann sá fólkið sem enginn sómi hefir verið sýndur. »Samborgarar«, tók síra Vernharður til máls á ný, »hér í landi er keisarinna, sem heitir María Teresía. Hún er fyrirtaks stjórnandi. Hún er vitrust og ágætust allra stjórnanda sem verið hafa í Belgíu. Aðrir stjórnendur, samborgarar, aðrir stjórnendur fá sinn eftirmann, þegar þeir deyja, og missa alt vald yfir þegnum sínum. En svo er ekki um hina miklu keisar- innu, Maríu Teresíu. Það má vel vera, að hún hafi mist völdin í Austurríki og Ungverjalandi, ef til vill eru Bra- bant og Limburg komin undir annara yfirráð, en ekki er það svo um Vesturflandur, greifadæmið hennar góða. I Vesturflandri, þar sem eg hefi dvalið síðustu árin, þekk- ist enn í dag enginn annar stjórnandi en María Teresía. Vér vitum að Leopold kongur býr í Brússel, en hann kemur oss ekkert við. María Teresía heldur áfram stjórn- inni þar úti við hafið. Einkum í fiskiþorpunum. Þvi nær sem dregur hafinu, því alvaldari er stjórn hennar.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.