Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1912, Page 88

Skírnir - 01.08.1912, Page 88
278 Peningakista keisarinnunnar. »Þeir höfðu skilið«, sagði biskupinn, »að þér töluðuð við þá um forsjón guðs«. Munkurinn hneigði sig. »Þeir höfðu skilið, að þér vilduð sýna þeim að þetta vald, sem þeir hæðast að, af því að þeir sjá það ekki, verður að dyljast. Að því yrði misbeitt á sömu stund og það kæmi fram í áþreifanlegri mynd. Eg óska yður til hamingju«. Munkurinn þokaðist með hneigingum út að dyrunum. Biskupinn kom á eftir honum og góðvildin skein út úr honum. »En peningakistan, þeir trúa á hana enn þá þar ytra? . . . «. »Hvort þeir trúa á hana! Eg held nú það, herra biskup«. »Og sjóðurinn, var það nokkurntíma sjóður?« »Með yðar leyfi, herra biskup, eg hefi svarið«. »Nú, en við mig . . . «, sagði biskupinn. »Það er Hvítafellskirkju-presturinn, sem geymir hana. Hann hefir lofað mér að sjá hana. Það er lítil, járnvarin trókista«. »Nú?« »Og á botninum liggja 20 fagrir Maríudalir«. Biskupinn brosti, en varð alt í einu alvarlegur. »Má líkja forsjóninni við slíka trékistu?« «Allar samlíkingar eru ófullkomnar, herra biskup. Allar mannahugsanir eru hégómi«. Síra Vernharður hneigði sig einu sinni enn og hvarf út úr stofunni. Guðm. Finnbogason þýddi.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.