Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1912, Side 97

Skírnir - 01.08.1912, Side 97
Útlendar fréttir. 287 dvaldi hann lengi erlendis, í Þyzkalandi, Frakklandi og víðar. En síðari árin hefir hann dvalið að staðaldri heima í Stokkhólmi, Það þótti ranglæti við Strindberg, að hanu skyldi ekki eitthvert árið fá bókmentaverðlaun Nóbelsjóðsins, og var kent um óvináttu frá hálfu þeirra, sem veitingunni réðu, vegna árása hans á ymsa helztu bókmentamenu Svía. En fjárhagur Strindbergs var mjög þröngur. Síðastliðið ár var svo, til að bæta úr þessu, stofnað til almennra þjóðarsamskota handa honum, og varð það, þegar saman kom, mikill sjóður, er Strindberg var færður í afmælisgjöf 22. jan. síðastl. vetur. Var það afmæli hans haldið með mikilli hátíðarvið- höfn í Stokkhólmi, en slíku hafði haun ekki átt að venjast áður um dagana. Hann var einrænn mjög og ómannblendinn, einkum á síðari árum. ítalir Og Tyrkir. Stríðið milli þeirra gengur í mesta þófi. Tyrkir vilja ekki gefa upp yfirráð yfir Trípólis, eða játa þeim í hendur ítala, þótt Italir hafi í reyndiuni þegar tekið þau. Nú að síðustu hafa ítalir verið að ógna Tyrkjum með árásum á þá heima fyrir, bæði í Dardanellasundinu og eyjuni Tyrkja í Miðjarðarhafi. Árás ítala á virki Tyrkja í Dardanellasundinu vakti um tíma mikla eftirtekt. Tyrkir segja svo frá, að 18. apríl hafi sést 24 ítölsk herskip nálægt Lemnosey. Um morguninn kom herskip og tundur- bátur til Samos og var skotið á hermannaskála þar í landi. Annað herskip með tundurbát kom til Rhodos, tók þar tyrkneskt skip, sem fyrir var, og skar sundur fróttaþráðinn. Síðar um daginn komu fram 8 herskip úti fyrir Dardanellasundinu og hófu skothríð á kastala Tyrkja þar á ströndinni. Skutu ítalir 15 skotum á Oran- kastala, 8 á Koumkale og 12 á Seddil-Bar. Eigi fóll þó f þess- ari skothríð nema einn maður af Tyrkjum. En árásin vakti almenna hræðslu þar á ströndunum, og fólk tók að flýja. Hugðu menn að ítalir ætluðu að Betja þar her á land. En þeir hafa mótmælt, að sú hafi verið bugsunin, enda fluttu þeir engan landher á herskip- um sínum. Þeir sögðust hafa ætlað að egna flota Tyrkja til útrás- ar. Eftir árásina lót stjórn Tyrkja það boð út ganga, að Dardan- ellasundi væri fyrst um sinn lokað fyrir öllum skipaumferðum og kvaðst neytt til þessa tiltækis vegna árásar ítala. En Dardanella- sundið er dyr að Marmarahafinu og er þar mikil umferð. Þetta samgönguhaft skapaði þegar, sem nærri má geta, mikið vandræði. Höfnin í Konstantínópel fyltist brátt af skipum, sem ekki komust leiðar sinnar, og eins næstu hafnir sunnan við Dardanellasundið.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.