Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Blaðsíða 45
43
er komið af þvf, að Skeiðamenn hafa fengið þar náttstað í fjallleit-
um, því vestan árinnar — þar sem þeir hafa nú afrjett ■— er ekki
hagi í nánd. Hjálp, önnur fit við Fossá, neðan undir Skeljafelli;
nafnið mun dregið af því, að Eystrahreppsmenn hvíla þar Qallsafn
sitt. Fleiri smá-fitjar eru með Fossá. — Norðan við Vegghamra er
mosadæld farin að gróa upp ; hana hafa menn nýlega nefnt Guð-
mundarhaga af lítilli orsök. Er þess getið hjer, svo seinni menn
haldi það ekki vera fornt örnefni, þó það kunni að haldast við.
Af vötnum þjórsárdals verður fyrst að telja pjórsá, sem dal-
urinn er kenndur við. Hún kemur innan fyrir austurhorn Sanda-
fells og rennur i suðlægt suðvestur, fram yfir hraunið til Búrfells,
síðan vestur með suðurenda þess, og svo norður með því að vestan.
Hjer um bil undan miðju þess snýr hún til vesturs út í milli hrauna.
þ>ar skilur hún láglendi þjórsárdals frá Rángárvöllum enum ytn
(sem nú kallast Landsveit). Hefir hún brotizt þar fram, áður hraun-
ið var orðið kalt, því víða f börmunum má sjá, að myndazt hefir
nokkurs konar stuðlaberg (eins er og sumstaðar með Fossá og
Rauðá, t. a. m. hjá Hjálparfossi og í ,,Gjánni“). Kemur þjórsá út
undir Hagafjall fyrir austuihorni þess, rennur suðaustan fram með
því og svo vestur með því að sunnan, þar til þ>verá kemur í hana
—þar eptir fellur hún í suðvestur. Bugur sá, sem þ>jórsá gjörir inn
í dalinn, er æði mikill hjá því sem væri, ef hún rynni beint frá suður-
enda Búrfells út að suðurenda Hagafjalls.—í þjórsárdal sjálfum er
Fossá mest, og þó ekki allmikil; hún kemur ofan milli Fossöldu og
Fossheiðar og fellur ofan f botn Fossárdals um foss þann, sem
fyr er getið, rennur svo fram úr honum til suðurs, og svo lengst-
um suðaustur, fyrst milli eldvarpanna um hríð, en fyrir nálægt miðri
suðausturhlíð Skeljafells, fellur hún út úr austurjaðri hraunsins ; er
þar foss í henni, sem Hjálparfoss heitir, kenndur við fitina Hjálp, sem
þar er litlu neðar. Undir Hjálparfossi er silungahylur; fyrir fram-
an hann ganga tveir stuðlabergsveggir fram í ána hvor á móti
öðrum ; er sem hún komi þar fram úr kvíadyrum, og er það all-
fagurt. Sfðan fylgir Fossá hraunjaðrinum, og heldur sömu stefnu
og áður, þar til hraunið þrýtur og tekur við farvegur f>jórsár. þ>ar
liggur J>jórsá í sunnanverðum farveginum, en Fossá fylgir norður-
barminum til vesturs, og er þar mjó sandeyri eða tunga milli þeirra,
þar til Fossá fellur f silungapoll, sem grefst úr J>jórsá inn með
Kolviðarhóli að austanverðu. þ>ar heitir í Fiskiásum (vanalega
nefnt „í Fauskásum“). Næst Fossá að stærð er Sandá; hún kem-
ur ofan milli Heljarkinnar og Fossöldu, til suðurs. þ>ar heitir hún
Bergálýsstaðaá; síðan rennur hún til suðvesturs, fyrst eptir sand-
sljettum fram með ásum þeim, sem eru niður frá Heljarkinn, síðan
fram með Áslákstungnafjalli og Dímon; þaðan af er hraunið suð-
austan megin hennar, og fylgir hún jaðri þess fram að þjórsá. þ>ar
6*