Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Side 53
5i
ar bæjarrústarinnar sjestekkert, og mun hún vera sandorpin. pessi
tvö síðasttöldu býli hafa verið afbýli frá Stöng, og þykir líklegt að
það sjeu þeir tveir Lóþrælar, sem munnmæli telja með bæjum f
f>jórsárdal, eins og fyr er getið.
iq. Stöng er gildum stekkjarvegi austar f brekku einni, neðst f
suðurhlíð fjallsins, skammt upp frá Rauðá, þar sem hún kemur
fram úr „Gjánni“. Bæjarrústin hefir sandorpið, og jörð sfðan gróið
yfir, svo þar sjest ekki utan óglöggur hryggur, og er hann hjer
um bil 56—60 ál. langur. þ>ar er flag bak við, og í því sjest fyrir
fjósrústinni. þ>ó verður stærð hennar ekki gjörla sjeð, en báshellur
sjást þar mikið stórar, sumar fallnar, en sumar standa svo fast, að
þær verða ekki bifaðar með handafli. þ>ar sjer og fyrir öðru
tóttarbroti, Hklega af útibúri. Túnbrekkan í Stöng er nú
grasi vaxin og berjalyngi, og eru þar kolagrafir frá seinni tímum
ekki all-litlar. Fyrir neðan Stöng eru stórir steinar í Rauðá, svo
að stikla má yfir hana þurrum fótum, þegar hún er lítil. þ>ykir
líklegt, að þeir hafi verið notaðir til þess; er þaðan örstutt til
Steinastaða, sem vísan segir:
„Onnur var öldin, er Gaukur bjó í Stöng;
þá var ei til Steinastaða leiðin löng.
í þessari mynd er vísan algeng; virðist hún vera viðkvæði úr viki-
vakakvæði, sem því miður er týnt, en físl. J>jóðsögum II. bls. 100
er hún höfð öðru vísi, eptir Oddi Jónssyni; þar er t. a. m. manns-
nafnið haft „Haukur“,en líklegt er, að maðurinn, sem vísan nefnir,
sje Gaukur Trandilsson ; hann bjó f Stöng. Má vera að þetta líti
til þeirrar sagnar um Gauk, sem Vigfús „vfðförli“, úr Skaptafells-
sýslu sagði, og er á þá leið : „Gaukur fíflaði húsfreyju á Steinólfs-
stöðum (o: nú Steinastöðum); hún var skyld Ásgrími Elliðagríms-
syni; þar af óx óþokki milli þeirra, er dró til þess, að Ásgrímur
drap Gauk“. f>etta sagðist Vigfús hafa lesið í „J>jórsdælasögu“;
sagðist eitt sinn hafa eignazt skræðu af henni, en ljeð hana, og hefði
hún glatazt. Frá þessu sagði Vigfús, er hann var á ferð í Eystra-
hreppi árið 1855. Lítinn trúnað lögðu menn á það, er karlinn sagði.
20. Hðlar segja munnmæli að bær hafi heitið f f>jórsárdal, og
hafi staðið efst í botni Bolagtófar undir Hólaklifi. Sá staður ligg-
ur hærra en önnur bæjastæði í dalnum. Rústir sjást þar engar,
enda er þess ekki von, því nú rennur Rauðá einmitt þar sem bær-
inn ætti að hafa staðið, en hefir áður runnið fram við höfðann, sem
fyr er getið. Má vel vera, hún hafi borið rústina burtu, eða jafn-
vel eyðilagt bæinn, því hann hefir hlotið að vera í hættu fyrir
henni, svo það er næstum ástæða til að efa, að bær hafi verið þar.
Ornefnin „Hólaskógur“ og „Hólaklif“ eiga að vera kennd við
þenna bæ, en þess þarf ekki við ; „Hólaskógur“ er sama sem
skógurinn í hólunum, og „Hólaklif“ = klifið hjá hólunum; og bær-
7*