Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Side 70
64
þá var þar grafinn kirkjugarðr; en undir altarisstaðnum þá fundust
manna bein. þau váru miklu stœrri en annarra manna bein. þ»ykk-
jast menn vita af sögn gamalla manna, at mundi verit hafa bein
Egils. þar var þá Skapti prestr þórarinsson, vitr maðr. Hann tók
þá hausinn Egils ok setti á kirkjugarðinn. Var haussinn undar-
liga mikill, en hitt þótti þó meir frá líkindum, hversu þungr hann
var. Haussinn var allr báróttr utan, svá sem hörpuskel. þá vildi
Skapti forvitnast um þykkleik haussins. Tók hann þá handexi vel
mikla ok reiddi annarri hendi sem harðast ok laust hamrinum á
hausinn ok vildi brjóta. En þar sem á kom, hvítnaði við, enn ekki
dalaði eða sprakk; ok má af slíku marka, at hauss sá mundi eigi
auðskœðr fyrir höggum smámennis, meðan svörðr ok hold fylgdi.
Bein Egils váru lögð niðr í utanverðum kirkjugarðinum at Mosfelli“.
jpegar fara skal eftir því sem þessi útgáfa segir, þá var það
eðlilegt, að kalla þá kirkju að Mosfelli, sem Grímr lét byggja, þó að
hún væri kippkorn fyrir utan bœinn; til þessþurftu Mosfellin vissulega
ekki að hafa verið tvö og þá meðan sá staðr, sem kirkjan stóð á,
ekki hafði fengið neitt sérstakt nafn, þvíað Hrísbrúarnafnið mun
ekki hafa orðið til fyrr enn síðar. það er auðvitað, að hefði hinn forni
bœr staðið þar sem Hrísbrú er, þá hefði bæði bœrinn og kirkjan
verið fœrð hvorttveggja undir eins, enn eigi kirkjan skilin ein eftir.
Hefði það þótt illa við eiga að hafa kirkjuna nokkuð frá bœnum í hinni
fyrstu kristni, þá átti það því verr við á síðara tima, þegar kristnin
jókst og kirkjurnar urðu því nauðsynlegri og helgari. Flutningr á
bœnum og kirkjunni hefði því hlotið að standa í sambandi hvort
við annað. Enn nú er hér alls ekki nefndr neinn bœjarflutningr,
þar sem um kirkjuna er ljóslega tekið fram ; höfundr Egils s. —
sem er einhver vor skilmerkilegasta saga — hefði vissulega ekki
slept úr því atriði um bœjarflutninginn, og það við þetta tœkifœri,
þegar hann fer að segja frá nákvæmlega, hefði hann átt sér stað;
í öðrum sögum er líka oft getið um, þegar bœir vóru fœrðir, og
þó það væri miðr nafnkendir bœir enn Mosfell hefir verið. það
er og enn eitt, sem ræðr úrslitum þessa máls. Á Hrísbrú sjást eng-
ar fornar tóttir, það segir og síra Magnús líka, og engir fornir
túngarðar finnast þar. Menn verða þó að játa, að einhver slík
kennimerki hlyti að sjást á Hrísbrú. hefði stórbýli staðið þar um
250 ár1; enn þar á móti sést enn nokkur vottr fyrir, þar sem
kirkjan hefir átt að standa norðvestr frá bœnum; þar er enn kall-
1) Mér finst það sennilegt, sem dr. Jón þorkelsson rektor heldr, að sá
Skapti prestr þórarinsson, sem var við kirkjuflutninginn, sé sá sami, sem
nefndr er í prestatali í Yiðbœti við Landn. 1843, bls. 384 ; sjá formálann
fyrir Egilss. bls. 5-—6. Hefir þá kirkjan verið fœrð heim að Mosfelli ein-
hvern tíma á árunum 1130—1160.