Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Page 74
68
rutt hinu forna nafni alveg burt einungis af því, að þar hefði verið
brúað með hrísi yfir mýrarnar, sem víða er títt, og þannig mun
nafnið komið til; eg held, að nafnið hefði haldizt, og verið kallað
Gamla Mosfell eða eitthvað þess konar, að minsta kosti fram yfir
tíma söguritaranna.
Eg skal enn geta þess viðvíkjandi kirkju þeirri, er Grímr lét
byggja, að Egils s. Skallagrímssonar, Havniæ MDCCCIX, tilfœrir
neðan máls úr öðru handriti, sem þannig stendr í sambandi við
taxtann, bls. 768: „at síðan er kirkja var gjör at Mosfelli, enn
ofantekin at Hrísbrú1 2 sú kirkja, er Grimr hafði gjöra látit“. þetta:
„ok firr bænum“ sýnist helzt að vera rifið út úr sambandinu úr því
handriti, þvíað sagnorðið (verbið) vantar. J>að kynni að hafa staðið
þannig (eftir „látit“): „ok var firr bœnum“. Hefði svo verið orðað,
hefði það skilizt nokkurn veginn ; enn hvernig sem þetta er, þá virðist
höfundr þessa handrits að hafa haft i huga, að sú kirkja, er Grímr lét
byggja, hafi staðið lengra (,,firr“) frá bœnum enn sú, er síðar var bygð*.
Hrappseyjarútg. af Egils s. er auðsjáanlega gefin út eftir alt öðru
handriti enn Kaupmh- útg. þ>að handrit sýnist að mörgu leyti all-
gott að efninu til, að fráteknum vísunum, ef það hefði verið vel
gefið út. Hrappseyjarútg. nefnir ekki Hrísbrú, og skal eg tilfœra
þann kafla bls. 178: „Eigill took soott um havstid eptir þá er
hann leiddi til bana, enn er hann var andadur, þaa liet Grímur
færa hann í klædi good, sídann liet hann flitia Eigil ofann í Tialda-
nes, og liet þar giöra haug miken, og var Eigill þar í lagdur, og
vopn hanns, og þikir ei meiri afreks madur verid hafa í fornum
sid ótigen, en Eigill Skallagrímsson. Eigill var primsigndur mad-
ur enn blótade alldrei. Grímur ad Mosfelle var skijrdur þaa er
Christne var lögtekenn aa Islande, og fordís kona hanns, og öll
híoon hanns og heimamenn, hann liet þar kirkiu giöra, enn þad
er Sögn sumra manna, ad þ>órdís hafe laatid flitia Eigil til kirkiu,
og þad til Jardteikna ad þaa er gjör var kirkia ad Mosfelle, enn
ofann tekenn sw er Grímur liet giöra. J>aa var grafenn kirkiu-
gardurinn, og fundust þar mannsbein og Sverd hiaa“.
Hér á landsbókasafninu er handrit af Egils s. Skallagrímssonar,
sem aldrei hefir verið prentað, hdr. nr. 34 fol. í handritum Hann-
esar byskups Finnssonar. þessi bók er stór og þykk, nær sem
biflían ; eru á henni margar sögur og þar á meðal Sturlunga saga
1) »ok firr bænum—et remotius a prædio. I. solus addit non male«.
2) Jón þorkelsson rektor hefir gefið út Egils s. eftir vitg. 1809, og þarf
eg ekki að taka það fram, að textinn muni nákvæmr að efninu til, sjá for-
málann fyrir Egils s. bls. VII. Enn voriantana fékk hann ekki prentaða
— að því hann hefir sagt mér —fyrir þeim, er kostaði prentunina, enn þeir
kunna að vera miðr skilmerkilega upp tékuir sumstaðar í gömlu útg.