Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Qupperneq 121
fardögum ; en er hann var at búnaði, fór Oddr frá htísi til laugar
í Reykjaholt; þar voru sauðahús hans, vildi hann eigi vera við er
Hallbjörn færi, því at hann grunaði, hvort Hallgerðr mundi fara
vilja með honum. Oddr hafði jafnan bœtt um með þeim“. f>ar
sem þannig er tekið til orða, þá er líklegt, að sauðahús Odds hafi
staðið þar sem Reykjaholtsbœr var síðar bygðr, þvíað kring um
sauðahúsin hefir myndazt nokkurt tún, sem vanalega gerist, og með
því að segir, að „þar“ eða nær lauginni hafi sauðahúsin verið;
laugin er hér fyrst nefnd, og skal um hana síðar meira talað.
Páll prestr Sölfason bjó í Reykjaholti; hann átti í Deildar-
tungumálum, sem hófust um 1178 við Sturlunga út af arfi eftirþóri
prest auðga, sem bjó í Deildartungu. Jón Loftson kallar Pál „dýr-
ligan“ kennimann. Siðan bjó í Reykjaholti Magnús prestr sonr
Páls. Enn Reykjaholt hefir orðið svo mjög nafnkendr staðr, af því,
að hinn mikli frœðimaðr og sagnaritari Snorri Sturluson bjó þar
og lét þar líf sitt, sem kunnugt er. Snorri kom ekki síðar að
Reykjaholti enn 1208, ísl. Fornbréfasafn, bls. 349, og bjó þar til
dauðadags 23. sept. 1241. Enn nær Reykjaholt hefir fyrst verið
bygt, verðr ekki séð með vissu.
þ»egar komið er neðan dalinn, og heim að Reykjaholti, er riðið
upp með túninu að norðanverðu, og svo beygt við þvert suðr í
traðirnar, sem liggja heim túnið að bœnum. Bœrinn snýr nú til
vestrs, enn fyrir austan bœinn standa nú mörg úthýsi: skemma,
hesthús, fjós, og heygarðr; fjósið stendr austast; undir þessum
húsum er mikil upphækkun. Samkvæmt því, sem sjá er af Sturl-
unga sögu, þá stóð hér hinn forni bœr beint upp frá lauginni, og
er þá eðlilegt samkvæmt þeirri húsaskipun, sem þá var, að skálinn
hafi staðið fremstr og snúið í austr og vestr, og framhliðin móti
suðri, og eftir þeim skýrteinum, sem eg hefi fengið, stóð hér enn
hinn gamli bœr, enn var fluttr vestr þangað sem hann stendr nú.
Fyrir norðan bœinn stendr kirkjan, og þar mun hún hafa staðið á
dögum Snorra. Hún stendr ekki eins vestarlega og bœrinn nú;
hefir því staðið nær því norðr undan hinum gamla bœ. Fyrir norð-
an kirkjugarðinn eru margar rústir. f>ar var áðr hið gamla fjós
og heygarðr og fleiri úthýsi. Síra þórðr prófastr, sem hér var
næst á undan, fœrði hið gamla fjós og heygarð þangað, sem það
nú er, austr frá bœnum. Síra Eggert Guðmundsson, sem hér var
prestr og mun hafa komið að Rej’kjaholti 1807, fœrði eitthvað hinn
gamla bœ vestr á við, og umbreytti honum ; því að eg sá meðal
annars í kirkjubókunum í húsauppskrift og afhendingu íReykjaholti
1783, að hér var þá mikil og gamaldags húsaskipun, t. d. stóra
baðstofa, litla baðsto/a, skáli, stofa, kalldyr og kuendyr, o. s. fr.
J>egar eg kom að Hvanneyri síðar í þessari ferð, talaði eg við frú
Ingibjörgu, ekkju séra f>órarins Krisfjánssonar, sem var prestr í
15*