Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Síða 19
BÁTKUMLIÐ 1 VATNSDAL
23
óljósar leifar af fatnaði. Baugarnir lágu innan um leggja- og rifbein
en ekki utan um handleggsbein, eins og vænta hefði mátt, ef kumlið
hefði verið óhreyft.
Baugarnir eru báðir eins, einfaldir að gerð og óskreyttir. Þeir
eru sporbaugslaga, slegnir til úr bronsteini, 0,5—0,6 sm í þvermál,
mjókka og fletjast út til endanna, sem ná ekki alveg saman. Stærð
bauganna sjálfra er sem næst 5,3—5,8x6,5—6,2 sm.
Armbaugar úr bronsi eru næsta algengir meðal víkingaaldar-
minja, en þessir eru hinir fyrstu, sem finnast hérlendis. Fyrir voru
hér tveir fornir armbaugar, annar úr tálgukoli (gagat), fundinn í
kumli í Álaugarey í Hornafirði, en hinn er úr silfri og mun vera
fundinn í Skagafirði. Auk þess eru til brot af silfurarmbaugum
í silfursjóðum (13).
Þótt baugarnir séu lagleg smíð, verða þeir, sökum einfaldleika
síns, vart greindir til ákve'ðinnar tegundar eða uppruna. Þeir eru
næsta líkir mörgum hinna fábrotnu armbauga, sem víða finnast
í víkingagröfum erlendis, til dæmis í Bjarkey í Svíþjóð (14).
Fingurhringur. Fingurhringur úr bronsi lá rétt hjá armbaugun-
um. Hann er mjög einfaldur að gerð, um 2,2—2,4 sm að utanmáli,
gerður úr 0,3 sm gildum bronsvír, og ganga endarnir lítið eitt á
misvíxl, en eru ekki snúnir saman, eins og venja er um slíka hringa.
Á einum stað er hringurinn nokkuð tærður.
Hringnum er helzt að líkja við bronshring úr gröf í Bjarkey í
Svíþjóð (15) og hring úr gröf í borginni Grobin í Lettlandi (16).
Ekki skal því samt haldið fram, að hér sé um austrænan hlut að
ræða. Gerðin er svo einföld, að hringurinn gæti verið smíðaður að
kalla hvar sem er.
Hér á landi hafa tvisvar áður fundizt fingurhringar í kumlum,
báðir úr silfri. Aðeins annar þeirra er varðveittur, og er hann með
venjulegu víkingaaldarlagi og endarnir snúnir saman (17).
Kamhar. Tveir kambar og brot af hinum þriðja, svo og hlutar
af kambslíðrum, fundust í kumlinu. Allt var þetta í brotum, en
tveimur kambanna hefur tekizt að raða saman að mestu, og er
hægt að gera sér grein fyrir gerð þeirra.
Einn kamburinn hefur verið í miðjum bátnum, en hann fannst
ekki fyrr en sandurinn var skolaður. Hann er með venjulegu lagi,
óskreyttur og negldur með járnnöglum. Nokkuð vantar á annan
endann, en kamburinn hefur verið um 9 sm langur heill. Göt eru
boruð gegnum báða enda.
Hinir kambarnir — en af öðrum eru ekki eftir nema fáein stök