Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Qupperneq 23
BÁTKUMLIÐ 1 VATNSDAL
27
verzlað var við, notaði svikin met. Metin tóku lítið rúm í pússi, en
metaskálar allajafna nokkru meira.
íhvolf bronsþynna. í sambandi við metin er rétt að geta íhvolfrar
bronsþynnu, sem fannst við skolunina, því að sennilega er þar um
að ræða húð af meti. Hún er sem næst hálfkúlulaga og samt nokkuð
óregluleg, hæðin er 1 sm, en þvermálið um 1,5 sm. Allalgengt er,
að blýmet séu húðuð með bronsi, en þó virðist þessi húð ekki vera
af neinu þeirra meta, sem fundust í kumlinu.
Tréprjónn. Einkennilegur, ryðmettaður tréprjónn fannst við
skolun á sandinum úr miðhluta kumlsins. Hann er úr mjög fíngerðu
tré, 3,1 sm að lengd og 0,3—0,45 sm í þvermál. Enginn oddur er
á prjóninum, og virðist hafa brotnað af báðum endum hans. Óvíst
er, hvaða hlutverki þessi prjónn eða tréstöngull hefur þjónað, en
hann virðist hafa verið stærri og efnismeiri í öndverðu.
Hnit. Við skolunina fannst rónagli eða hnit úr járni, og er róin
aflöng og ydduð og úr ljósleitum málmi. Róin er 1x2,3 sm að stærð,
en ekki er unnt að segja, af hvaða hlut hnitin er.
Hvítur steinn. I kumlinu mi'ðju var einkennilegur, hvítur steinn
með gati í gegn. Hann er greinilega holufylling, kalkspat, og er
mesta stærð steinsins 2,3 sm. Að vísu er ekki öruggt, að steinninn
hafi tilheyrt kumlinu, en hann er mjög ólíkur öllum öðrum steinum
í sandinum og auk þess óvenjulega lagaður, og þykir mér því lík-
legast, að hann hafi í raun og veru tilheyrt haugfénu. Hann hefur
þá verið eins konar verndargripur, borinn í pússi, en alkunna er,
að í kumlum finnast oft einkennilegir steinar, einmitt af líkri stærð
og þessi, og hafa þeir helzt verið túlkaðir sem verndargripir (22).
Beinkringla. f ruðningnum frammi á sjávarbakkanum fannst
einkennileg beinkringla með gati, sem fljótt á litið líkist snældusnúð.
Hér er um að ræða snei'ð, sem söguð hefur verið af hnútu úr stór-
grip. Hún er um 5,3 X 7,1 sm í þvermál, þunn, og er sagarfarið slétt.
Tálgað hefur verið af hnútunni að ofan. Um 1,9 sm vítt gat er borað
í gegnum hana.
Engin slitmerki eru sjáanleg á þessum hlut, og er notkun hans
óviss að svo stöddu. Varla er um að ræða snældusnúð, en vafalaust
hefur hluturinn verið í kumlinu.
Hnífur. f miðju kumlinu var smáhnífur af algengri gerð. Blað
og tangi eru 10,3 sm að lengd, en af skaftinu sjást aðeins lítilfjör-
legar leifar.
Brýni. í þrónni suðaustan við bátinn fannst ferstrent brýni úr
skífer, 9 sm langt. Þar fannst einnig hrosstönn, og önnur fannst