Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Page 84

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Page 84
84 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS I Haugsholti er greftrunarstaður Jólgeirs landnámsmanns, sem séra Brynjólfur í Kálfholti einnig getur um, og heitir að réttu Jól- geirshaugsholt og Jólgeirshaugsholtsþúfa. Þess er vert að geta, að Guðmundur Hróbjartsson, Hellnatúni, sem er fæddur 1863 og ólst upp til fullorðinsára á næsta bæ, Ásmundar- stöðum, segir nákvæmlega eins frá og Vigfús. Það er eins og annar andi svífi yfir vötnunum í þessum staðar- sögnum heldur en hinum fyrri. En í raun réttri er Sel að nokkru eða öllu leyti framhald af jörðinni Jólgeirsstöðum, og verður vikið að því síðar. III. Nú er ekki auðvelt að gera sér fulla grein fyrir því, hve landnám Jólgeirs hafi náð yfir stórt svæði. Mörkin að neðanverðu eru sæmi- lega glögg, lækirnir til hvorrar hliðar, norðan og sunnan, einnig glögg, en efri mörkin með öllu óþekkt, þ. e. hve langt uppeftir Holt- unum land hans náði í fyrstu. Bráðlega hefir molnað úr því, bæði við arfaskipti, útleigur og ef til vill sölu. Enda skiptust landnámin og ýmsar stórjarðir landsins niður í smærri eignir og jarðir þegar á fyrstu tveimur öldum íslands byggðar. Og vitanlega hafa nokkurar eignabreytingar orðið á hverj- um tíma, bæði við erfðir og venjuleg viðskipti. Eins hefir farið hér. Af landnámi Jólgeirs hefir lengst verið sam- eign, eða framundir vora daga, hin svokallaða Áseign eða Ástorfa. Samkvæmt bókstaf frásagnar Landnámu hefðu að minnsta kosti jarðirnar Arnkötlustaðir og Berustaðir, og raunar hinar aðrar jarð- ir vestan Rauðalækjar ofanvert, átt að vera með, en hafa helzt úr lestinni fyrir svo löngu síðan, að engar sagnir eru um, hvenær það hafi gerzt eða með hverjum hætti. I syðri hluta landnámsins er jörðin Ás. Þar virðizt hafa verið búið stórbúi um árið 1000 og síðar á 11. öld. Það kemur ekki þessu máli við, en miklar líkur eru til, að Þorvaldur Skeggjason hafi verið krist- inn, og kristniboðinu var hann hinn mesti haukur í horni, en ekki er vitað, þegar fyrst er getið um hann í Ási, hvort hann hafi verið sjálfseignarbóndi eða ekki né heldur hve landstór jörðin hefir verið. Því miður kann ég ekki að lesa úr þeim rúnum, sem lagðar hafa verið undir kodda þeirra Ásbænda og mögnuðu þá til dáða. Ef til vill hefir hér eingöngu verið um að ræða meðfæddan manndóm þeirra, mannahylli og ættartengsl.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.