Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Blaðsíða 146
146
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
um sýningu Börje Sandelins, en aðrar sýningar voru safninu óvið-
komandi.
I sambandi við sýningarstarfsemina er rétt að taka fram, að
safnið lánáði 28 gamla listgripi á dálitla íslenzka sýningu, sem
haldin var í húsakynnum Sparkasse der Stadt Köln í tilefni af
10 ára afmæli þýzk-íslenzka félagsins þar í borg.
Skólaheimsóknir.
Enn sem fyrri var mikið um að skólar sæktu safnið heim, bæði
einstakir skólabekkir eða skólar í fylgd með kennurum, meðal
annars allmargir skólar utan af landi, en einnig héldu áfram skipu-
lagðar komur bekkja úr gagnfræðaskólum Reykjavíkurborgar. Þess-
ar safnheimsóknir voru undir stjórn Hjörleifs Sigurðssonar list-
málara, og voru þær á þessu ári bæði fyrir og eftir áramót. Komu á
þennan hátt alls 2210 nemendur í safnið. Allmikið var um að kenn-
arar í myndlistarskólum kæmu með nemendur sína, og þjóðminja-
vör'ður hafði leiðsögn um safnið fyrir fólk á námskeiði hjá Ferða-
skrifstofu ríkisins.
Safnauki.
Aldrei hefur safnauki verið jafnmikill og á þessu ári, ef miðað
er við færslur í aðfangabók, en þær voru alls 186. Talan er þó ekki
einhlít, því að mismunandi er, hvað bak við hverja færslu stendur.
Skal hér talið upp það merkasta, sem safninu hefur borizt, þótt
hitt sé einnig margt, sem vert væri að nefna og þakka sérstaklega.
Mörg sýnishorn af kvenfatnaói og hannyrðum frá um aldamót,
eða eldra, gef. Anna Eiríkss; vínslcápur úr eigu Tryggva Gunnars-
sonar, gef. erfingjar Ragnheiðar og Jes Zimsen; sex vatnslita-
myndir frá íslandi, gerðar af Edward Dayes 1791, gef. Mark
Watson, London; rósaviöarskápur o. fl. merkilegir listiðnaðargripir,
gef. Ása G. Wright, Trinidad; silfurskeið me'ð nafndrætti Jóns
biskups Vídalíns, gef. Kolbrún Jónasdóttir og Þorbjörg Björns-
dóttir; tóbaksdósir Sveins læknis Pálssonar, gef. Helgi Skúlason
læknir, Akureyri; blástursjárn tvíklofið, gef. Einar ö. Björnsson,
Mýnesi; blýumgerð úr glugga í Kölnardómkirkju, gef. Friedrich
og Ludovikus Oidtmann, Linnich; ýmsir minjagrvpir m. a. nokkrir,
sem tengdir eru minningu Jóhanns Sigurjónssonar, gef. Gunnar Ró-
bertsson Hansen (samkv. arfleiðsluskrá); slípuð silfurbergskúla,
gef. Jón Ólafsson lögfr. og Ingólfur Ásmundsson; „bestik“ handa
barni, sem íslendingar í Höfn gáfu syni Baldvins Einarssonar í