Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Side 147
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1965
147
skírnargjöf 1831, gef. Ingeborg Riebe, Herleshusen; skaut.bún-
ingur heill, gef. Ingólfur Davíðsson mag. scient; þrír atgeirar,
fundnir í Grísatungufj öllum í Suður-Þingeyjarsýslu; skatthol Finns
biskups Jónssonar, gef. María Finsen; stoklcabelti úr gylltu silfri,
gef. Valgerður Steinsen (afh. af Steini Steinsen).
Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á vatnslitamyndum þeim,
sem Mark Watson gaf safninu. Fyrst gaf hann þær sex, sem
hér voru taldar, en bætti svo þeirri sjöundu við; enn fremur gaf
Watson fjórar vatnslitamyndir eftir Nicholas Pocock, stórt olíu-
málverk eftir W. G. Collingwood og enn fleira, allt þetta til viðbótar
við hina stóru myndagjöf hans á síðastliðnu ári. — f sambandi við
þessar miklu gjafir Watsons er svo þess að geta, að menntamála-
ráðherra beitti sér fyrir því, að beiðni þjóðminjavarðar, að fram
væri lagt fé úr ríkissjóði til að kaupa á uppboði í London 5 vatns-
litamyndir eftir Pocock, svo að safnið býr nú vel að myndum, sem
rót eiga að rekja til Stanleysleiðangursins hingað til lands 1789.
Geta má þess einnig, að hin háa færslutala þessa árs er að nokkru
leyti til komin vegna þess að ýmsir hafa orðið til að senda sýnis-
horn af prjónlesi og skóm o. fl. á vegum þjóðháttaskráningarinnar,
svo og hinu, að Þórður Tómasson hefur haldið áfram að safna sýnis-
hornum af vefnaði o. fl. af því tagi. Skulu nú taldir allir þeir, sem
gáfu safninu gjafir á árinu og ekki hafa þegar verið nefndir:
Sigurjón Erlendsson, Álftárósi; Jón Þórðarson prentari, Rvk;
Einar Einarsson djákni, Grímsey; Marta Brynjólfsdóttir, Kols-
holtshelli; Ólafur Guðmundsson lögr.þj., Rvk; Póst- og símamála-
stjórnin; Jóhannes Björnsson, Ytritungu, Tjörnesi; Bjargey Pét-
ursdóttir, fsaf.; Sigurður Þorsteinsson, Teigarseli, Jökuldal; Othar
Ellingsen, Rvk; Sigríður Bogadóttir, Flatey, Breiðafirði; Halldór
Ólason, Gunnarsstöðum; Margrét Jónsdóttir rithöfundur, Rvk; Berg-
þór ívarsson, Rvk; Ásgeir Guðmundsson frá Æðey; Sigurjón Valdi-
marsson Leifshúsum; Áge Nielsen-Edwin, Rvk; Vilhjálmur Vil-
hjálmsson heildsali, Rvk; Jón Eiríksson, Vopnafirði; Ásgeir Svan-
bergsson, Þúfum; Steingrímur Magnússon fisksali, Rvk; Rögn-
valdur Steinsson, Hrauni á Skaga; Kristján Ingi Sveinsson, Rvk;
Sigrún Sigurjónsdóttir, Akureyri; Alexander Jóhannesson pró-
fessor, Rvk; Fríða Knudsen, Rvk; Ingvar Pálsson, Balaskarði; Sig-
urður Jóhannesson frá Þingeyri; Þorbjörn Eggertsson, Kvíum;
Nikulás Magnússon, Vopnafirði; Snæbjörn Gestsson, Keldulandi;
Rósa Gísladóttir, Krossgerði; Egill Ólafsson, Hnjóti; Helgi Eyjólfs-
son, Árbæ; Konráð Sigurðsson, Breiðabólstað, V.-Hún.; Jósefína