Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Page 152

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Page 152
152 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS ur það áð bíða næsta árs. Ótækt þótti að hafa kirkjuna óvarða fyrir ágangi hrossa yfir veturinn, og því var, í samráði við umsjónar- mann kirkjugarða, sett upp plankagirðing kringum garðinn allan og kirkjuna. Enn er eftir að gera garðinum sjálfum til góða, en farið var með kunnuga menn út í eyna og öll leiði skráð, sem þeir þekktu. Gerður var upp norðurveggur Víðimýrarkirkju í Skagafirði, og enn fremur var dyttáð nokkuð að Laufásbænum, en annars var ekki teljandi unnið við gömlu torfhúsin. Þess ber þó að geta, að Gísli Gestsson fór með smiði með sér að Núpsstað og gerði nokkrar endur- bætur á þaki bænhússins. Nokkurt umtal varð á árinu um tvo bæi, sem til greina kæmi að varðveita. Eru það bærinn í Selinu í Skaftafelli í Öræfum og bærinn á Þverá í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu. Um hinn fyrrnefnda átti þjóðminjavörður umræður við Ragnar Stefánsson í Skaftafelli, og taldi hann, að vel mætti enn gera við bæinn, en hitt væri meira undir hælinn lagt, hvort þeim Skaftafellsbændum entist tími til að vinna nokkuð að viðgerð hans. Ef Skaftafell verður þjóðgarður, eins og helzt lítur út fyrir, er það aukin ástæða til að láta þennan fulltrúa fyrir skaftfellska bæi standa til framtíðar. Um Þverárbæinn er það að segja, að senn verður úr honum flutt, og í því sambandi óskaði stjórn Kaupfélags Þingeyinga eftir, að þjóðminjavörður kæmi til fundar við hana til að ræða möguleika á að bjarga þessum merka bæ frá tortímingu. Gerði þjóðminjavörður það, og síðan fór hann að Þverá (18. ágúst) og hafði tal af Jónasi bónda Snorrasyni. Virð- ist vera fullur áhugi allra, sem hlut eiga að máli í héraðinu, fyrir varðveizlu bæjarins, en endanleg ákvörðun var ekki tekin. Nauðsyn- legt er að taka bæinn til meðferðar strax þegar flutt er úr honum, ef nokkuð á úr að verða. Væntanlega verður þessum málum tveimur ráðið til lykta á næsta ári. Áfram var haldið allt árið að reyna að koma á samningum um kaup á Nesstofu, enda var í fjárlögum heimild fyrir ríkisstj órnina til að festa kaup á þessu merka húsi. Því miður strönduðu þær samn- ingaviðræður á því, að ekki er enn hægt að tryggja eigendum annars helmings stofunnar lóð og byggingarleyfi eftir óskum þeirra, og v^ru þetta mikil vonbrigði eftir mjög mikla fyrirhöfn. Er þess þó enn að vænta, að málið verði tekið upp á nýjan leik og leitt til lykta svo sem bezt má verða, og síðan verði í alvöru snúizt við því að ná eignarhaldi á Viðeyjarstofu, en Alþingi og ríkisstjórn hafa þegar lýst vilja sínum í þessu efni með áðurnefndri fjárlagaheimild, sem ná átti til beggja húsanna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.