Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Qupperneq 153
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1965
153
Allmikil áframhaldandi afskipti hafði þjóðminjavörður af Sívert-
senshúsi í Hafnarfirði, en þar í bæ hefur nú verið stofnað til víð-
tækra samtaka til þess að bjarga húsinu og láta gera við það eins og
það var í upphafi, eftir því sem næst verður komizt. Veitti Alþingi
kr. 100 þús. til þessarar viðgerðar á árinu og gaf von um annað eins
á næsta ári. Flutt var úr húsinu og allmikið rifið innan úr því af
nýlegum innréttingum og annar undirbúningur gerður fyrir við-
gerðina. Var ákveðið að fá til ráðuneytis um viðgerð hússins danskan
arkitekt, sem sérþekkingu hefði á meðferð gamalla húsa, og hafði þjóð-
minjavörður samband við slíkan mann í Danmerkurferð sinni seint
á árinu. Er gert ráð fyrir, áð maður þessi komi til landsins fljót-
lega upp úr áramótum og rannsaki húsið og leggi á ráð um sem flest
varðandi viðgerðina. Ætlazt er til, að þjóðminjavörður hafi náið
eftirlit með öllu, sem gert verður í sambandi við Sívertsenshús.
Dagana 21.—27. júní dvöldust Gísli Gestsson og Þorkell Grímsson
og með þeim tveir menn til viðbótar í Stöng í Þjórsárdal og héldu
áfram því verki, sem hafið var í fyrra, nefnilega að hlaða upp veggi
tóftanna úr góðum torfhnausum, sem fluttir eru ne'ðan frá Iðu. Var
meðal annars hlaðin öll stofan á þennan hátt og nokkuð af skála,
og eru nú allir sammála um, að ekki megi hætta við þetta verk fyrr
en því er alveg lokið. Það má ekkert til spara að verja rústirnar í
Stöng og gera þær sem aðgengilegastar fyrir fólk, því að aðsókn
þangað er mjög mikil, og má þó vera, að hún eigi enn eftir að auk-
ast, þegar stórframkvæmdir hefjast í dalnum og brýr koma á árnar.
I gestabók í Stöng skráðu sig alls á árinu 5130 gestir.
Getið skal þess, að Hörður Ágústsson listmálari hafði enn á þessu
ári nokkurn styrk úr Vísindasjóði til þess að ferðast um og rann-
saka, ljósmynda og mæla upp gömul hús í sveitum og kaupstöðum,
en þetta starf hans er að töluverðu leyti unnið í samráði við Þjóð-
minjasafnið og allur efniviður, sem safnast, á að verða eign þess.
í samræmi við þingsályktun, sem gerð var á Alþingi 1964—65,
skipáði menntamálaráðherra nefnd, með bréfi dags. 16. nóv., til þess
að endurskoða lög nr. 40 frá 16. nóv. 1907, um verndun fornminja,
lög nr. 8 frá 12. febrúar 1947, um viðhald fornra mannvirkja og
byggðasöfn, og jafnframt til að semja frumvarp til laga um Þjóð-
minjasafn Islands. í nefndinni eru Kristján Eldjárn þjóðminjavörð-
ur (formaður), Hörður Ágústsson listmálari, og dr. Þórður Eyjólfs-
son fv. hæstaréttardómari.
Þess skal að lokum getið með þökkum, að í árslokin afhenti séra
Sigurbjörn Á. Gíslason þjóðminjaverði bankabók með kr. 20 þús., sem