Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Page 20

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Page 20
20 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS staðnum, langoftast yfir liáaltari hennar. Gott dæmi um helgimann, dýrlingsskrín og höfuðkirkju er sjálfur höfuðdýrlingur Norðurlanda, Ólafur helgi, og skrín hans í dómkirkjunni í Niðarósi. Þetta fræga dýrlingsskrín er nú glatað eins og flest eða nær öll önnur slík á Norð- urlöndum, en Snorri lýsir því í sögu Magnúsar góða í Heimskringlu, á mjög skilmerkilegan hátt sem nú skal greina: „Magnús konungur lét gera skrín og búa gulli og silfri og setja steinum. En það skrín var svo gjört bæði að mikilleik og að öðrum vexti sem líkkista, en svalir undir niðri, en yfir uppi vétt vaxið sem ræfur og þar af upp höfuð og burst. Eru á vétt- inu lamar á bak, en hespur fyrir og þar læst með lukli. Síðan lét Magnús konungur leggja í skrín það helgan dóm Ólafs kon- ungs. Urðu þar margar jartegnir að helgum dómi Ólafs kon- ungs“.4 Þessi lýsing er framúrskarandi góð, hnitmiðuð og skýr, og leiðir fyrir sjónir ágæta mynd af hinu fræga skríni, þó stutt sé, enda hlýt- ur Snorri sjálfur að hafa séð skrínið og lýsir því þá eftir sjálfs sín athugun. Allmörg önnur dýrlingaskrín voru til í höfuðkirkjum Norð- urlanda, en flest þeirra voru eyðilögð á siðskiptatímunum, því að ekki voru aðrir hlutir í kirkjunum sem í skjótari svipan gátu svalað gull- og silfurgræðgi konunga. Yfirleitt er nú fátt vitað um gerð þeirra og búnað, en flest hafa þau áreiðanlega verið sem stórar kist- ur eða hús og stóðu á þar til gerðum útbúnaði yfir háaltari dóm- kirkna5. Hér á Islandi voru til þrjú dýrlingaskrín fyrir utan öll önnur helgidómaskrín, sem að vísu voru mörg. Þetta voru skrín biskup- anna þriggja, Þorláks helga í Skálholti, Jóns helga á Hólum og Guð- mundar góða á Hólum. Þau eru nú öll glötuð. Hólaskrínin voru enn til þegar Sigurðarregistur var gert árið 1550, en hafa horfið fljót- lega eftir það og er ekki mikið um þau vitað, hvernig voru að efni og gerð. Um Þorláksskrín í Skálholti gegnir öðru máli. Það var til fram yfir 1800, að vísu nokkuð illa til reika. Um sögu þess er þessu grein- arkorni ætlað að fjalla, þótt ekki muni auðnast að leiða í ljós mikinn nýjan sannleik um það. Það er yfirleitt heldur dapurlegt að skrifa um glataða listmuni eða forngripi og lítið ábatavænlegt. En dýrl- ingsskrín heilags Þorláks var um langan aldur höfuðprýði dómkirkj-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.