Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Side 87

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Side 87
ELSE KAI SASS BRJÓSTLÍKAN THORVALDSENS AF JÓNI EIRÍKSSYNI Höfundur þessarar greinar, Else Kai Sass, er prófessor í listsögu við háskól- ann í Kaupmannahöfn. Greinin er fyrsti kafli í verki hennar í þremur bindum, Thorvaldsens Portrætbuster I—III, Kph. 1963—65. Þar gerir hún ítarlega grein fyrir öllum brjóstlíkneskjum Thorvaldsens, sem henni telst til að muni vera um 178. Elzt af þeim öllum hefur verið brjóstlíkanið af Jóni Eiríkssyni konferenz- ráði, þótt ekkert hafi varðveitzt af því nema andlitið, sem er í Þjóðminjasafni íslands, Mannamyndasafni nr. 1537. Sú mynd er meðal örfárra verka Thorvald- sens hér á landi og auk þess sögulega merkileg. Þetta er langtum ítarlegasta rannsókn sem til er um myndina, og þykir því vel á fara, að greinin birtist í íslenzkri þýðingu hér í Árbólc, enda munu varla vera til mörg eintök af stór- virki Else Kai Sass hér á landi. Hefur hún góðfúslega gefið leyfi til birting- arinnar. — Þess skal getið, að kaflanum fylgja margar athugagreinar með tilvitnunum til bóka og skjala og fróðleik um þá menn, sem nefndir eru. Þessu er öllu sleppt hér, og verða þá þeir, sem vildu halda þessari rannsókn áfram, að leita til frumritsins. En flestir islenzkir lesendur geta áreiðanlega notið grein- arinnar til fulls án þessara athugagreina. — Árbók þakkar höfundi leyfi til að birta greinina og frú Dyveke Helsted, Thorvaldsenssafni, lán myndamóta. Just Mathias Thiele, ævisöguritari Thorvaldsens, skýrir svo frá að Ferrini gullsmiður, sem var enn á lífi, þegar Thiele skrifaði æsku- sögu Thorvaldsens, hafi sagt sér „að dag nokkurn árið 1787 hafi hann mætt Bertel Thorvaldsen á götu, klyfjuðum spegilrömmum og öðrum gylltum skrautmunum, sem hann var að ganga með milli járnvörukaupmanna og bjóða til sölu. Þegar Ferrini sá Bertel með þessa byrði, spurði hann hvort hann eða faðir hans hefði gert þessa fögru hluti. Thorvaldsen svaraði því til að ef hann vildi koma heim til sín skyldi hann sýna honum eitthvað af verkum sínum. Þegar Ferrini heimsótti fjölskylduna nokkrum dögum seinna, fór Bertel með hann inn í kamers og sýndi honum brjóstlíkan úr leir, sem hann var að vinna við.“ Fróðlegt væri að vita af hverjum það brjóstlíkan var, sem sautján ára listskólasveinninn var að gera, því að sennilega hefur þetta verið fyrsta tilraun hans á því sviði, þar sem hann síðar átti eftir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.