Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Page 129

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Page 129
PUNKTAR UM HRAUNÞÚFUKLAUSTUR 129 að marka það, sbr. 4.3. En hvað er þá miðliðurinn — fernis —? Lík- lega afbökun úr einhverju, en ekki hefur mér dottið neitt gott í hug í því sambandi. Má því með sanni segja, að þessi skýring haitri eigi alllítið. Þó skal ég ekki leyna því, að enn finnst mér líklegast, að fyrsti liðurinn í þessu einkennilega örnefni sé sú góða gamla íslenzka orðmynd Hóla-. Víðtækur örnefnasamanburður gæti ef til vill varpað Ijósi á miðliðinn, -fernis-, en það verður ekki reynt hér. Og þá er það hinn möguleikinn, sá sem menn hafa aðhyllzt hing- að til vangaveltulaust: Að þarna sé biblíunafnið Hólófernis, sem sumir segja að smali ábótans hafi borið, sbr. 4.9, en aðrir hafa tengt hugmyndum sínum um munklífi í Hraunþúfuklaustri. Frá Hólófernis (eða Hólófernes) biblíunnar er sagt í Júditarbók, sem er eitt af apókrýfu ritunum. Hann var yfirhershöfðingi Nebú- kadnesars Assyríukonungs og tók herskildi fjölda landa honum til handa allt þar til hann kom til Gyðingalands. Gyðingar vildu ekki gefast upp fyrir ofurefli hans, en bjuggust fyrir í virki á Betýlúu- fjalli. En Assýríumenn umkringdu fjallið með ógrynni liðs og Gyð- ingar örvæntu. Þá kom til sögunnar ung og fögur ekkja, sem Júdit hér. Hún bjó sig í sitt bezta skart og fór með þernu sinni niður af fjallinu og kom sér með kænsku inn í herbúðir Hólófernis. Er skammt af að segja, að hann varð yfirkominn af fegurð hennar og orðvizku. Gerði hann veizlu mikla og hugðist njóta konunnar, en gætti sín ekki við drykk og sofnaði út af, rétt í þann mund þegar hann var orðinn einn með henni í tjaldi sínu. Júdit náði þá sverði hans og sneið af honum höfuðið. Fékk hún það í hendur þernu sinni, sem lét það í malpoka, og síðan laumuðust þær út úr herbúðunum og kom- ust heilu og höldnu með Hólófernis höfuð upp á Betýlúufjall til sinna manna. Urðu nú skjót umskipti. Gyðingar fylltust vígamóði, hengdu Hólófernis höfuð upp á múrvegginn og bjuggust til að gera árás, en Assýríumenn urðu að sama skapi ráðvilltir þegar þeir fundu Hólófernes höfuðlausan. Flýði her þeirra undan sókn Gyðinga, sem þannig sluppu frá ánauð fyrir ráðsnilld og hugrekki Júditar. Júditarbók er fyrst prentuð á íslenzku í Guðbrandsbiblíu 1584. Þar er hershöfðinginn vondi alltaf kallaður Holofemes, í eignarfalli Holofernis. Eins er þetta í Rímuni af Júdit, sem séra Einar Sig- urðsson orti að ráði Guðbrands biskups og prentaðar eru í Vísna- bókinni frá 1612 (2. útg. 1747). Af þessum ritum, biblíunni og vísna- tókinni, hefur Islendingum orðið vel kunnugt um söguna af Júdit og Hólofernesi. En óhugsandi má telja að nokkur Islendingur hafi borið nafn hins grimma og fyrirlitlega hershöfðingja, þótt nafn 9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.