Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Page 3

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Page 3
PRÓFESSOR JÓN STEFFENSEN 7 mannabein, sem til Þjóðminjasafnsins bárust eða voru fyrir í safninu og komið höfðu úr jörðu hérlendis, bæði við fornleifarannsóknir eða á annan hátt við jarðrask. Tók hann sjálfur virkan þátt í fornleifarannsóknum á þessu sviði, en þar kveður langmest að rannsóknunum í Skálholti á árun- um 1953-1955, er upp voru grafnir hinir fornu kirkjugrunnar og í ljós komu grafir og bein biskupa og annars fólks frá ýmsum tímum. Sú rannsókn er alkunn, enda nýlega komið út um þær mikið ritverk, þar sem Jón gerði grein fyrir niðurstöðum beinarannsóknanna. Fyrsta ritgerð Jóns Steffensens af þessu tagi mun vera grein hans, Knogl- erne fra Skeljastaðir, sem birtist í ritinu Forntida gárdar i Island er fjallaði um rannsóknirnar 1939, yfirgripsmikil ritgerð þar sem var í fyrsta skipti fjallað um beinafræði sem fornfræðilegt efni. Má segja, að síðan hafi hver ritsmíð- in rekið aðra frá hendi Jóns um margvíslegar greinar íslenzkrar mannfræði, líkamsvöxt, heilsufar og manngerðir, og reyndi hann þar meðal annars að komast að því, hvaða þjóðum Islendingar væru skyldastir. Síðan tóku við rannsóknir á ýmsum atriðum í fornritum, fornum lögum og öðrum lieim- ildum, sem allar beindust að því að varpa ljósi á uppruna þjóðarinnar og margs konar menningarþætti, einkum þó á fyrstu öldum íslandsbyggðar. Þótt Jón gegndi alla tíð krefjandi embætti sem hann sinnti með stakri samvizkusemi sá hann ekki eftir tíma sínum til mannfræðilegra og sagn- fræðilegra rannsókna. Má segja, að rannsóknir hafi orðið honum bæði ástríða og köllun. Kom aldrei svo óheillegt beinarusl úr gröf til Þjóðminja- safnsins, að það væri ekki fært Jóni til rannsóknar, og tók hann öllu slíku sem miklum feng og rannsakaði af ýtrustu gaumgæfni. Ekki veit ég til þess, að hann hafi nokkru sinni þegið neina greiðslu fyrir þetta verk sitt, enda sennilegast aldrei verið boðin, hér birtist aðeins sú nautn vísindamannsins að fást við áhugasvið sitt og þoka fræðum og vísindum lengra áleiðis, og var þetta viðhorf reyndar ríkjandi víðar á þessum árum. Jón Steffensen batzt Þjóðminjasafninu traustum böndum. Voru þeir Matthías Þórðarson nánir kunningjar og með þeim Kristjáni Eldjárn tókst vinátta og mikil virðing á báða bóga. Var enda Jón virtur og viðurkenndur fræðimaður víða um lönd og báru allir mikið traust til hans sem vísinda- manns. Hann var varfærinn og íhugull, grundaði vandlega niðurstöður sínar og var gagnrýninn bæði á eigin niðurstöður og annarra. Hin síðari ár fékk Jón Steffensen stórt viðfangsefni, sem tók hug hans allan um árabil. Honum var saga læknisfræðinnar afar hugleikin og rann- sakaði marga þætti hennar af mikilli gaumgæfni. Hinir fyrstu íslenzku læknar voru honum hugstæðir og kannaði liann og rannsakaði lífsstarf og lækningar margra þeirra ýtarlega, ekki sízt Bjarna Pálssonar, fyrsta land- læknisins, og Sveins Pálssonar fjórðungslæknis, tengdasonar hans. Af sjálfu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.