Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Síða 62

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Síða 62
66 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Báðar forsendurnar reyndust réttar samkvæmt mælingum hans. Eftir því sem tímar liðu jókst nákvæmni mælinganna og voru þá forsendurnar kannaðar betur. Fyrri forsendan reyndist enn standast, ef við var bætt minni háttar leiðréttingu vegna örlítils munar í C-14 styrk sem getur komið fram milli plantna af ólíkum tegundum eða ef þær vaxa við mismunandi ytri skilyrði, hita eða raka. Hliðstæð röskun kemur þá einnig fram í hlut- fallinu milli C-13 og C-12 samsætnanna, og með því að mæla einnig þetta hlutfall má leiðrétta þá skekkju sem ella kæmi fram í aldri sýnanna. Síðari forsendan reyndist hins vegar ekki alveg rétt. Þetta uppgötvuðu vísindamenn þegar þeir tóku að mæla sýni með þekktum aldri sem þeir fengu úr árhringjum úr furum í Bandaríkjunum, sem geta orðið allt að 4000 ára gamlar. Sérhvert árlag er algjörlega einangrað, upprunalega kolefnið situr þar í tugþúsundir ára. Með því að telja árhringi inn frá berkinum má fá þúsund ára gömul viðarsýni með þekktum aldri svo vart skeikar ári. Hér var því aldurinn þekktur fyrirfram og hann var nú borinn saman við þann aldur sem C-14 mælingin gaf samkvæmt aðferð Libbys, sem ég kalla „Libby-aldur". Þegar þessi viðarsýni voru mæld með ítrustu nákvæmni kom í ljós að „Libby-aldurinn", eða „C-14 aldurinn" eins og oft er sagt, vék á ýmsum tímaskeiðum verulega frá hinum rétta aldri. Þessi niðurstaða sýndi að forsenda Libbys um stöðugan C-14 styrk í andrúmsloftinu í þús- undir ára var ekki alveg rétt, nokkurt flökt hefur verið í C-14 styrknum, trúlega fyrst og fremst vegna breytinga í aðstreymi geimagna. Þetta flökt olli því að skekkja í aldursgreiningum gat verið frá nokkrum áratugum upp í aldir. Um miðjan 8. áratuginn var tekið að kanna þetta misræmi ítarlega með því að mæla með meiri nákvæmni en áður C-14 styrk í miklum fjölda sýna með þekktum aldri, árhringjaaldri eins og oft er sagt, allt frá ungum sýnum til mörg þúsund ára gamalla sýna. Viðarsýni voru tekin með 10-20 ára milli- bili í árhringjaröðinni og styrkur geislavirkninnar miðaður við staðalsýni, sem allar stofur hafa, var mældur. Þessi hlutfallslegi styrkur er oftast gefinn í hundraðshlutum og er stundum kallaður PM eða %M (per cent modern). Tvær aldursgreiningastofur hafa lagt grundvöll kvörðunarferilsins, stof- urnar við University of Washington (Seattle) undir stjórn M. Stuivers og við Queens University of Belfast undir stjórn G. W. Pearsons (Stuiver og Pearson, 1986) og er mælinákvæmni þeirra 15 ár. Athyglisvert er, að enda þótt Stuiver noti gasteljara og mæli furu sem hefur vaxið í Kaliforníu, og Pearson noti vökvasindurteljara og mæli eik sem hefur vaxið á írlandi, falla ferlar þeirra svo vel saman að vart skeikar nema örfáum árum hvor ferill- inn er notaður til að finna aldurinn af C-14 styrknum (%M) enda er ferlun- um tveimur jafnan slegið saman í einn og hann kenndur við þá báða,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.