Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Page 66
70
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
á fyrsta áratug aldursgreininga var ekki enn komin tækni til að vinna hinn
lífræna vef (kollagen) úr beinunum. Nú þykja bein hins vegar ákjósanleg
til aldursgreiningar.
6.5. Áhrif úthafs
Ingrid U. Olsson (1983), forstöðumaður aldursgreiningastofunnar í Upp-
sölum, sem mælt hefur meirihluta íslenskra fornleifasýna, hefur sett fram
þá tilgátu að C-14 styrkur andrúmsloftsins yfir Islandi kunni að vera
nokkru lægri en annars staðar vegna þess að landið er umlukt úthafi, sem
gæti haft dálítið lægri C-14 styrk vegna blöndunar með C-14 snauðum
djúpsjó. Ef þetta er rétt gæfu íslensk sýni of háan aldur. Olsson byggir þetta
enn á ónógum fjölda mælinga en þessari rannsókn hennar er ekki lokið.
Þetta grundvallaratriði þarf að rannsaka vel.
6.6. C-14 þynning á eldfjalta- og hverasvæðum
Ingrid U. Olsson (1983) hefur einnig bent á að hugsanlega geti C-14 snauð
kolsýra, sem streymir úr jörðu á eldfjalla- og hverasvæðum, lækkað geisla-
kolsstyrk andrúmsloftsins og valdið því að gróðursýni frá þessum svæðum
gæfu of háan aldur við C-14 greiningu. Þetta þarf að kanna vel þótt tilgátan
sé fremur ólíkleg, nema sýnið sé tekið nálægt uppsprettu kolsýrunnar.
7. Möguleg nákvæmni C-14 aldursgreininga
Kvörðunarmælingarnar sem rætt var um í 5. kafla hafa sýnt ótvírætt hve
nákvæmar C-14 aldursgreiningar geta verið, a.m.k. þegar viðarsýni eru
mæld, óvissan í einstökum mælingum stofanna í Seattle og Belfast er að-
eins 15-20 ár. Auk þessara tveggja aldursgreiningastofa hafa vísindamenn
í Heidelberg í Þýskalandi og í Groningen í Hollandi sýnt að þeir ná sömu
nákvæmni við árhringjamælingar.
Almennar aldursgreiningastofur reyna hins vegar ekki að ná þessari ná-
kvæmni, það yrði allt of tímafrekt fyrir þær. Hjá meirihluta stofanna er
óvissan 60 ár eða meiri og aðeins örfáar stofur gefa um 30 ára óvissu eða
lægri. í raun vanmeta stofurnar óvissu sína, einkum þær sem gefa upp
þröng óvissumörk. Itarleg athugun sýnir þó að 3-4 stofur ná því að standa
við 30 ára óvissumörk.
8. Endurbætt tæki til C-14 aldursgreininga
Aldursgreining með geislakoli var meðal þeirra verkefna sem Þorbjörn
Sigurgeirsson vildi að ráðist yrði í þegar hann samdi árin 1955-57 tillögu