Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Blaðsíða 70
74
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
lagið hafi fallið. Engu að síður er æskilegt að finna aldur þessa öskulags
með enn meiri nákvæmni.
Mikilvægt verkefni íslenskrar C-14 stofu verður að aldursgreina fleiri
öskulög sem nota má til viðmiðunar í uppgrefti fornleifa. Æskilegt er að
kanna vel fyrst hvernig best sé að standa að sýnatöku, á að taka sýni rétt
undir öskulaginu, í því eða rétt yfir því og rannsaka fyrst öskulag frá síðari
tímum með þekktum aldri? Að þessu loknu ætti fyrst að ráðast í skipulega
aldursgreiningu öskulaga.
11. Lokaorð
Eg hef unnið um nokkurra mánaða skeið við C-14 aldursgreiningastof-
una við Nationalmuseet í Kaupmannahöfn og hef heimsótt aldursgrein-
ingastofurnar í Þrándheimi, Uppsölum, Stokkhólmi og Lundi. í Kaup-
mannahöfn hef ég haft greiðan aðgang að bókum, tímaritum, skýrslum og
greinum um aldursgreiningatæknina. Eg hef einnig haft gott tækifæri til
að ræða ítarlega ýmis vandamál aldursgreininga við fyrrverandi forstöðu-
mann stofunnar, Henrik Tauber, sem stjórnaði henni um nærri þriggja ára-
tuga skeið og vinnur þar enn að einstökum verkefnum. Núverandi for-
stöðumaður stofunnar, Kaare Lund Rasmussen, hefur einnig verið mér
mjög hjálplegur. Loks hefur gestrisni Danmarks Nationalbank átt drjúgan
þátt í að af þessari dvöl gat orðið. Þessum aðilum færi ég þakkir mínar.
Heimildir
Baxter, M. S., 1990, Report of the International workshop of intercomparison of radiocarbon
laboratories, A summary of the meeting, Radiocarbon 32,389-393.
Margrét Hallsdóttir, 1987, Pollen analytical studies in human influence on vegetation in relation
to the Landnám tephra layer in southwest Iceland, Lundqua thesis 18, Lund University.
Olsson, I. U., 1983, Radiocarbon dating in the arctic region, Radiocarbon 25.
Páll Theodórsson, 1985, Sindri, fjölsýnakerfi með vökvasindurtalningu, Fjölrit Raunvísinda-
stofnunar Háskólans, RH-09-85.
Páll Theodórsson, 1990, Gas proportional versus liquid scintilla tion counting, radiometric versus
AMS dating, Radiocarbon, 33,9-13.
Polach, H. 1989, Liquid scintillation 14-C spectrometry, errors and assurancies, Radiocarbon 31,
327-331.
Rozanski, K., 1991, Consultants' group meeting on C-14 reference materials for radiocarbon
laboratories. International Atomic Energy Agency, Vienna.
Stuiver, M. og Pearson, G. W., 1986, High precision dating, Radiocarbon 28,805-838.
Tauber, H., 1960, Copenhagen radiocarbon measurements IV, Am. J. Sci. Radiocarbon supplement
2,12-25.
Tauber, H., 1966, Copenhagen radiocarbon measurements VII, Radiocarbon 8,213-234.
Vilhjálmur Orn Vilhjálmsson, 1991, Kolefnisaldursgreiningar og íslensk fornleifafræði, Árbók
Hins íslenzka fornleifafélags, 1990.