Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Qupperneq 144
148
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Margrét Ingólfsdóttir forvörður lauk frágangi og lagfæringu á frum-
myndum úr ferðabók Eggerts og Bjarna, 47 talsins.
Textíl- og búningadeild. Elsa E. Guðjónsson deildarstjóri vann mikinn
hluta ársins að fræðilegum ritsmíðum, meðal annars fyrir ritverkið íslenzk
pjóðmenning, svo og rit um refla í íslenskum miðaldaheimildum, er hún gaf
síðan út. Þá flutti hún og erindi innan safnsins og utan og veitti ráð og
leiðbeiningar þeim, er leituðu eftir slíku.
Elsa flutti erindi um íslenzkt knipl á alþjóðafundi CIETA í Kaupmanna-
höfn í september sem fyrr er getið. Einnig vann hún að endurútgáfu leið-
beiningabæklings um upphlut ásamt Fríði Ólafsdóttur lektor, er vann um
mánaðartíma við deildina. Þá setti Elsa upp sýningu á gömlum munstrum
í nýjum búningi.
Þjóðháttadeild. A árinu voru sendar út fjórar spurningaskrár, nr. 75, hin
fyrsta af nokkrum um sjávar- og strandnytjar, nr. 76 um meindýr, nr. 77 um
útsaum og nr. 78 um æðarfugl.
Við heimildasafnið bættust 348 númer og var fjöldi þeirra í árslok 10168.
Haldið var áfram að tölvuskrá heimildasafnið og mun láta nærri að búið
sé að skrá þannig 4/s hluta svara við sjálfum spurningaskránum, en annað
efni er ekki enn tölvuskráð. Arni Björnsson athugaði heimildarefni í Dansk
Folkemindesamling í Kaupmannahöfn í maímánuði og leitaði að íslenzku
efni þar, og reyndist þar vera ýmislegt smálegt.
Hallgerður Gísladóttir sá um fjóra sjónvarpsþætti um íslenzka jólasiði
sem sýndir voru í desembermánuði.
Nesstofa
Kristinn Magnússon tók við umsjón lækningasögusafnsins í Nesi, Nes-
stofusafni, svo sem fyrr greinir, og mun hann sjá um uppbyggingu staðar-
ins og safnstarf þar. Engar framkvæmdir voru við Nesstofu sjálfa, en unnið
var að hönnun nýbygginga og skipulagi staðarins. Aformað er að endur-
byggja útihúsin að hluta og vinna þeir Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og
Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt að hönnun þeirra og svæðisins.
Snemma á árinu dvaldist þýzkur viðgerðarmaður, Karl Heinz Oppoloni
frá lækningasögusafninu í Ingolstadt um tíma í Nesstofusafni og gerði við
ýmsa safngripi. Hélt hann einnig erindi í Þjóðminjasafni um viðgerðir.
Þess ber að geta hér, að hinn mikli velgerðamaður og ötuli áhugamaður
um Nesstofu og safnið þar, prófessor Jón Steffensen, lézt hinn 21. júlí, en
hann vann nánast til síðustu stundar, meðan kraftar entust, af sínum al-
þekkta áhuga að uppbyggingu safnsins þar.