Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1994, Page 93
KVÖLDMÁLTÍÐ AÐ STÓRA-ÁSI
97
irmynd yngstu altaristöflunnar í Stóra-Áskirkju. Við hreinsun þeirrar töflu
kom ekkert nýtt í ljós, taflan er hvorki merkt höfundi né verkstæði, og
ekkert ártal fannst skrifað á hana. Hún er mun minni en fyrirmyndin, þ.e.
málverk Blochs í Jakobskirkju. Sú mynd er 377x 298 sm að stærð, en mynd-
in í Áskirkju er aðeins 93x77 sm. Það er athyglisvert að það líða aðeins
rúm tvö ár frá því þessi stóra mynd Blochs er sýnd á sýningu lista-
háskólans í Charlottenborg þar til lítil eftirmynd hennar er komin yfir alt-
arið í Stóra-Ási. Það bendir til þess að annað hvort hafi málarinn verið
nemandi á Listaháskólanum á árunum 1877-80, eða lærisveinn á verk-
stæði meistarans, Carls Blochs. I raun skiptir nafn listamannsins ekki máli
í þessu samhengi. Hann hefur ekki kosið að eigna sér handverkið, og því
stendur eftir að myndin er vel gerð eftirmynd eftir málverki Carls Blochs.
Þá er röðin komin að gömlu kvöldmáltíðarmyndinni. Þetta myndefni
var algengast á altaristöflum hér á landi eftir siðaskiptin og alveg fram á
19. öld. Við sjáum Krist sitja við kvöldverðarborðið með lærisveinum sín-
um. Hann situr fyrir miðju og hefur sagt: „einn af yður rnun svíkja mig" -
Jóhannes, „sá sem Kristur elskaði" hallar sér í fang hans og uggir ekki að sér.
Hann er sýndur hér á hefðbundinn hátt, ungur, ljós yfirlitum og skegg-
laus. Pétur situr áhyggjufullur með spurnarsvip, en Júdas, dökkur yfirlit-
ET CVM FACTA ESÍtT HORA OSJCVBVtT K DVODtClM APOSTOll CVM IO IT AIT ILLSS
DESIKtmo OKSIDFHAVI IIOC PaSCHA MANUVCAKE VOBISCVM AHTEQVAM PATSAIt, 1« «4
jIataav * S tltn* tbml fém hm
6. mynd. Heilög kvöldmáitíð. Koparstunga gerð af Johan Sadcler eftir teikningu Peders
Candid.