Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1994, Page 150
154
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
3. mynd. Horft yfir Framnesið lítið eitt norðar og vestar en á 1. mynd. Frá vinstri liggur
Knopsborgarvegur í stefnu á rústir Knopsborgar, sem voru við dökka blettinn rétt neðan
við miðja mynd. Neðan Knopsborgar er óútskýrt rákamynstur í túninu, líklega ungt.
Ljósm.: Þorgeir S. Helgason.
könnunarskurður haustið 1993, og sést greinilega móta fyrir honum á
myndinni. Þvermál þessa hrings er 20-30 m, eftir því hvort miðað er við
efstu brúnir hans eða útjaðra.
A 3. mynd er horft yfir Framnesið lítið eitt norðar og vestar en á 1.
mynd, og sjást þar öll túnin vestur að sjávarkambinum neðst, sem bar þar
nafnið Vesturbakkar. Frá vinstri liggur Knopsborgarvegur í stefnu á rústir
Knopsborgar, sem koma fram sem dökkur blettur á miðju túninu, síðan
beygir vegurinn niður að sjónum. Stykkið neðst til vinstri heitir Dalur, en
þar fyrir ofan er Flötin sem svo er kölluð, og tilheyrir Nesi II. Neðst á
Knopsborgartúninu er óútskýrt rákamynstur, sem þarf ekki að vera
gamalt.
Á 4. mynd er horft yfir minjasvæðið til suðvesturs, og sést þar norður-
hluti þess betur en á hinum myndunum. Næst er hóllinn, þar sem talið er
að Móakot hafi staðið, og nokkru vestar á Langhalanunr þúst, sem gæti
verið rúst af einhverju tagi. Austan við Móakot er Norðurtúnið frá Nesi II.
Þar eru greinilegar rákir í túninu, eins og um væri að ræða gamlar beða-