Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1994, Síða 194
198
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
b. Sandhólum, Eyjaf.; tvær leiðisfjalir og ein grafskrift á tré, komu frá Gufudalskirkju; ýmis
húsbúnaður, myndir, kort, silfurskeiðar, fatnaður og margt annað, úr db. Kirsten V. Briem, R.,
gef. Kristín Briem.
Aðrir gefendur safngripa eru þessir: Halldór Ólafsson frá ísafirði; Gunnar Hvammdal
Sigurðsson, R.; Lovísa Sigurðardóttir og dr. Arnljótur Björnsson, R.; Jófríður Vigfúsdóttir,
Fjöllum, Kelduhverfi; Afengis- og tóbaksverzlun ríkisins; Ingibjörg Briem, R.; Kristinn
Magnússon, Mosfellsbæ; Þorgils Jónsson, R.; Vigdís Pálsdóttir, R.; db. Helgu M. Pálsdóttur,
R.; Ester Sigfúsdóttir, R.; Eyjólfur og Filippus Hannessynir, Núpsstað; Auður Laxness,
Gljúfrasteini; Sigurður Jón Ólafsson, R.; Guðfinna Jensdóttir, R.; Guðbjörg Snót Jónsdóttir, R.;
Þórarinn Björnsson, R.; Karólína Halldórsdóttir, R.; Klemens Tryggvason, R.; Jóhann
Ingjaldsson, R.; Eggert Arason, Hafnarf.; Sýslumaðurinn í R.; Asmundur Jakobsson, R.; Bún-
aðarblaðið Freyr; Ráðherrabústaðurinn í R.; Sigríður Benónýsdóttir, R.; Arni Björnsson, R.;
Bergþóra Jóhannsdóttir, R.; Haraldur Agústsson, R.; Ingimar Sveinsson, R.; Hallur Guð-
mundsson, Mosfellsbæ; Steinunn Gunnlaugsdóttir, R.; Kristjón Ólafsson, R.; Kaffibrennsla
Akureyrar; Katrín Helgadóttir, R.; Tryggvi Benediktsson, Kópav.; Elsa E. Guðjónsson, R.;
Hólmfríður Gunnarsdóttir, R.; Margrét Jakobsdóttir Líndal, R.; Þór Magnússon, R.; Aagot
Arnadóttir, Mosfellsbæ; Hildur Sigurðardóttir, R.; Inga Hrönn Pétursdóttir, Kópav.; Ragn-
hildur Einarsdóttir, Svarfhóli, Borg.; Stefán Jónsson, Freyshólum; Reynir Sigurðsson, R.; db.
Jóns Steffensens, R.; Biskupsstofa, R.; Pálína Þorleifsdóttir, R.; Sigurður Steinþórsson, R.;
Erna Eggerz, R.; Félagið Ingólfur, R.; Þorvaldur Ágústsson, R.; lnga Lára Baldvinsdóttir,
Eyrarb.; Gísli Ellertsson, Meðalfelli; Margrét Ólafsdóttir Thorlacius, Garðabæ; Rósa Bach-
mann Jónsdóttir, Mjóanesi, Árn.; Guðrún Hannesdóttir, R.; Margrét Gísladóttir, Kópav.; Ingi-
björg Björnsdóttir, Heiðarskóla, Borg.; Ivar Brynjólfsson, R.; Samband Isl. samvinnufél.;
Kund Skadhauge, Kaupmannah.; Ásta Björnsdóttir, Mosfellsbæ; Edda Sigurbjörg Þorvalds-
dóttir, R.
Myndacleild. Starfsmenn myndadeildar eru Inga Lára Baldvinsdóttir deildarstjóri og Ivar
Brynjólfsson ljósmyndari. Halldór J. Jónsson fv. deildarstjóri vann þar einnig í hlutastarfi að
ýmsum verkefnum, einkum að skráningu mannamynda en einnig að sérstakri skrá yfir
vatnslitamyndir W. G. Collingwoods og frá Stanleys-leiðangri. Aðrir unnu skemmri tíma á
deildinni.
Um 50 færslur til myndadeildar voru færðar í aðfangabók og þar á meðal voru fjögur söfn
frá ljósmyndurum: mynda- og plötusafn frá Sigurði Guðmundssyni, leifar af plötusafni
Christians Bjarna Eyjólfssonar, safn frá Sigurði Tómassyni úrsmið, þar sem eru elztu litljós-
myndir sem safnið hefur eignazt, og filmusafn Þorvaldar Ágústssonar fv. gjaldkera. - Auk
þess má nefna merkt albúm úr eigu Þorleifs K. Þorleifssonar ljósmyndara um sögu flugsins,
syrpu af ljósmyndum eftir P. Sörá úr Islandsferð 1924 og myndasyrpu af dönskum stjórn-
málamönnum sem tengjast Islandssögunni, er keypt var frá Konunglega bókasafninu danska.
Vegna viðgerðar safnhússins varð að rýma Bogageymslu svo sem fyrr segir, og flytja plötu-
söfnin á meðan inn í sjóminjasafn en öðru var pakkað í plast. Myrkraherbergi var ónothæft
um nokkurra mánaða skeið og varð því ekki unnið að ljósmyndagerð þann tíma. Af þeim
sökum minnkuðu eigin tekjur myndadeildar frá því sem var.
Ivar Brynjólfsson kopieraði um 4000 óskráðar mannamyndaplötur úr safni Sigfúsar Ey-
mundssonar og er það safn þar með allt kopierað. Að auki kopieraði hann safn Christians B.
Eyjólfssonar. Þá tók hann nær allar ljósmyndir í bókina Gersemar og þarfaþing, er starfs-
menn safnsins skrifuðu, og vann nánast alla aðra ljósmyndavinnu á vegum safnsins.
Gengið var frá ljósmyndaplötunum í sýrulaus umslög og jafnframt var númeraður mikill
fjöldi póstkorta í Ásbúðarsafni og gengið frá þeim í völdum, glærum umbúðum. Einnig var
gengið frá síðustu þúsund plötunum í safni Jóns J. Dahlmanns.