Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1890, Qupperneq 4
4
501), Háleygjatal (sbr. form. Hkr.), Noregskonunga-
tal (sbr. Fms. X. 422) o. s. frv. J>essar ættartölur
hefir svo Ari fróði, og síðan Snorri og Sturla notað,
og bera rit þeirra óræk merki þess, að þeir hafa
viljað vanda frásögn sína sem bezt, og ekki farið
vísvitandi með ósannindi. J>að er því mjög ósenni-
legt, sem dr. Gustav Storm, háskólakennari í Krist-
íaníu, þykist hafa sýnt og sannað i riti sínu: Kri-
tiske Bidrag til Vikingetidens Historie (I. 115 o. s.
fry.), að allar ættartölur frá „Ragnari loðbrók" séu
tilbúnar af íslendingum á 12. og i3Öld. f>ótt margt
sé gott í þessari bók Storms, einkum í seinasta
þættinum (3. bókinni: um Göngu-Hrólf), þar sem
hann notar ættartölur Islendinga1, og þótt hún beri
ljósan vott um hinn mikla lærdóm og glöggsæi höf-
undarins, þá virðist hann mjög gefinn fyrir að koma
með tilgátur, sem ómögulegt er að sanna, taka þær
fram yfir vitnisburð fornra sagnamanna, sem eigi er
næg ástæða til að hafna, og skoða þær síðan sem
full-sannaðar eða nægilega rökstuddar, þótt mörg-
um þeirra megi finna fleira til ógildingar en styrk-
ingar. f>annig er það t d. óskiljanlegt, að fróðir
sagnamenn og ættfræðingar (svo sem Ari fróði og
1) Að Hrólfr sá, er vann Norðmandí (Bollo) hafi
verið Norðmaðr má líka ráða af þessum orðum Vilhjálms
bastarðar, sem standa í lögum Játvarðar hins góða (Ed-
wards Confessors) að því er Gísli Brynjólfsson segir
(Ný Fél. XIII, 154) »Proferebat, quod antecessores ejus
et omnium fere Normannorum Norvegienses exstitissent
et quod de Norveia (Norvegia?) olim venissent*. Eg
hefi eigi séð lög þessi sjálfr, en efast eigi um að orðin séu
rétt til greind. Annars eru líkur til þess, að forfeður Göngu-
Hrólfs hafi verið venzlaðir Danakonungum af ætt
Eagnars (sjá síðar, sbr. Fas. III. 519), og má vera, að
það hafi orðið tilefni til þeirrar sögusagnar Dúdós, að
Hrólfr hafi verið danskr höfðingjason og frændi Dana-
konungs (sbr. Krit. Bidr. I, 158. 163).