Eimreiðin - 01.01.1921, Blaðsíða 61
EIMREIÐIN]
AÐFLUTNINGSBANNIÐ
61
þau hefðu barist með þeim vopnum, að beita öllu afli
sínu til verndunar laganna og fært þó rök fyrir því, að þau
væru landinu til óheilla, þá hefðum vér borið virðingu
fyrir aðferð þeirra, þótt skoðun þeirra færi í aðra átt en
vor. Fyrsta og eina skilyrðið til að meta heill eða böl
laga er það, að þau séu haldin. Sum af lögum vorum
hafa eigi staðist slíkt mat. Þess betur sem þau hafa verið
haldin, þess meiri óheill hafa þau leitt yfir landið, og má
þar til nefna fiskisamþyktir og fleira. Frá slíkum lögum
er þá veitt undanþága, eða numin algerlega á brott. En
eiga bannlögin nokkuð skylt við þau lög? Nei. Pví þess
betur, sem þau eru haldin, þess meiri blessun hafa þau
í för með sér. Þessvegna gátu andbanningar heldur eigi
lagt á þau þann eina rétta mælikvarða, sem lög eiga að
mælast eftir. Þeim var það fullljóst, að það yrði engin
sigurför fyrir þá. Sú krafa að afnema lög af þeirri ástæðu
að þau séu brotin, er svo tjarstæð að undrun sætir að
nokkur blöð og nokkur maður skuli eigi bera kinnroða
fyrir að ljá henni fylgi sitt. Hvað mættum vér þá afnema
mörg lög á landi voru, ef sú regla væri látin gilda? Eða
halda menn, að ef byrjað er á bannlögunum, að fleiri
komi eigi á eftir? Jú! Það er áreiðanlega sú hættulegasta
braut, sem vér getum farið út á.
Ymsar tiUögur andbanninga.
Það hafa komið fram ýmsar tillögur frá andbanningum
um að breyta frá því sem nú er.
Þeir, sem lengst hafa gengið, vilja algert afnám laganna.
Allar tegundir vins verði leyft að flytja inn og sérhverj-
um leyft að kaupa það og selja sem hverja aðra vöru.
Þessi tillaga á þó ekki helming af fylgi andbanninga
sjálfra, hvað þá allrar þjóðarinnar og eru það ein
áhrif laganna. Um hana þarf ekki að fjölyrða. Hún er
fædd feig.
Aðrir vilja láta landið hafa einkasölu á víninu. Fað á
að flytja inn allar tegundir og selja hverjum, sem hafa
vill. Öllum velsæmisbrotum, sem af ölæði stafa skal hegnt.
Greinargerðin er sú, að ríkið fær fé af vínversluninni. Og