Eimreiðin - 01.01.1921, Blaðsíða 104
104
TRÚARBRÖGÐ OG VÍSINDI
IEIMREIÐIN
óyggjandi grundvallarsetningar: 1., óbreytileiki eða varð-
veisla efnisins. Sé t. a. m. einhver hlutur brendur, þá eru
efni hans ekki þar með glötuð, heldur halda áfram að
vera til, að eins í öðru formi. 2., varanleiki vissra »frum-
efna«, er efnafræðin hefir leitt í ljós. 3., að ákveða eðli
efnasambanda. 4., varðveisla og ummyndun efnisaflsins
(energy).
Auk þessara grundvallaratriða eru önnur eigi siður
markverð. Einu þessara atriða er lýst með þessari alþektu
setningu: »Ex nihilo nihil fit« (ekkert verður af engu).
Önnur slík, einnig á latnesku máli. hljóðar svo: »Omne
vivum ex ovo« (líf fæðist af lífi). Enn önnur tekur fram
grundvallarhugsun erfikenninsarinnar: »Likt verður af
liku«. f*essi niðurstaða vísindanna kemur heim við orð
biblíunnar, þar sem hún segir: »Hvort geta menn lesið
vinber af þyrnum eða fíkjur af þistlum«. Enn má benda
á lögmál þróunarinnar, svo sem það er nefnt. Pað má
lýsa því stuttlega með þessari setningu: »Kyn eða kynferði
má bæta«. Þau taka bótum stundum fyrir úrval náttúr-
unnar einnar, sem veldur því þá um leið að hæfasta lifið
lifir af, eða þá að þetta verður á annan hátt. Darwin og
Wallace hafa, sem kunnugt er, rannsakað lögmál þróunar-
innar, og hafa oft verið misskildir, en á grundvelli rann-
sókna þeirra hafa stórkostlegar framfarir orðið síðustu
sextíu árin.
Nú spyr eg: Er nokkurt atriði í öllum þessum grund-
vallarsetningum vísindanna, er komi í bág við trúarbrögðin,
þann átrúnað, er felst að baki öllum trúarbrögðum? Eg
hygg ekki að svo sé. Starf vísindanna er það, að leita
sannleikans, sannleika, þar sem hægt er að koma við
beinum sönnunum. En á leið rannsóknanna komast menn
oft ekki lengra, en að telja þetta eður hitt meira eða
minna sennilegt, meira eða minna vist, og þá er sannleik-
urinn skilyrði bundinn. Stundum falla gömul sannindi
fyrir nýjum, er þá annaðhvort takmarka hin gömlu eða
leiða þau lengra áleiðis.
Nú held eg því fram — eg veit ekki hvort þér fallist
á þetta með mér eða ekki — að slik sannindi, sem eg