Eimreiðin - 01.01.1921, Blaðsíða 71
æiMRElÐIN]
UM LISTIR ALMENT
71
fyrir fullkomnu listaverki eru þrjú: Samstilling (compositi-.
nn), eining (organisation) og samræmi (harmony). Jafn-
"vægi er einnig mikilvægt atriði. Petta er alment og óbreyt-
anlegt lögmál og er eins nauðsynlegt eins og t. d. staf-
rófið í rituðu máli. Öll þau verk, sem fylgja þessum regl-
um, geta því talist listaverk frá listfræðilegu sjónarmiði,
liversu langt sem úrúrdúrar stefnanna og öfgar hafa leitt
iiöfunda þeirra. Dæmist þau óhæf, þá er það að eins frá
almennu sjónarmiði séð.
Nýtísku listamenn saka gamla skólann um allskonar
goðgá og kalla stefnu hans ljósmynda-stefnu, yfirborðs-
stefnu o. s. frv. Hann reyni að eins að ná því, sem aug-
að sér, en ekki því sem andann dreymi; andinn sé þó
holdinu meiri o. s. frv. Sjálfir segjast þeir færa út svið
listanna, með þvi að hefja þær úr kreppu hins sýnilega
heims, inn á ótakmarkaðar veraldir ímyndananna. En
skrítileg virðist aðferð þeirra í augum hlutleysingja.
Tilgangi sínum hyggjast þedr að ná með því að líkja
eftir snillingum, sem uppi voru löngu fyrir gerbótatíma-
bilið. Þessvegna kalla þeir stefnu sína afturhvarfsstefnu.
Pá þykir golt listaverk á þeirra vísu, ef það er sem lík-
ast því sem börn teikna, áður en þau hafa lært að draga
iinu. Þessvegna kalla þeir stefnu sína einnig frumstefnu.
Má þetta undarlegt virðast, því þetta eru alloftast menn,
sem hafa fullkomnustu skólaþekkingu á bak við sig. Þetta
'verður varla skýrt með öðru en því, hvað byltingar og
breytingarlöngun er alríkjandi í heiminum.
Fáránlegast af öllu þessu er þó ímyndunar-stefnan.
Kennir þar margra furðulegra grasa. Höfundar hennar og
fylgendur fylgja að vísu ströngustu listareglum, hvað
samstilling, eining og samræmi viðvíkur. Pað er vanda-
laust hverjum, sem með kann að fara, og einfalt eins og
t. d. rímreglur í ljóðum. En hlutir þeir, sem þeir sýna,
eru ekki af þessum heimi. Það er hvirfilvindur þeirra eigin
imyndana, sem enginn óbrjálaður maður getur ráðið í,
nema þeir sjálfir og þeirra líkar. En til hvers er þá listin
•orðin, ef hún verður ekki skilin, nema af sérfræðingum?
Þeir, sem lengst fara í þessa átt, gefa ekki myndum