Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1921, Síða 116

Eimreiðin - 01.01.1921, Síða 116
116 RITSJÁ [EIMREIÐIN Annar páttur bókarinnar er kallaður »höfðinginn«. Gerir höf. hér tilraun til þess að leysa skapferlisgátu Snorra og verður ekki annað sagt en hann komist þar furðu langt, enda er hann hér inni á þvi sviði, sem honum lætur liklega best. Auðvitað verða menn aldrei alveg sammála um slik efni, en höf hefir farið þá leið, að draga sem flesta þættina fram og leyfa svo hverjum að dæma. Ekki get eg gengið inn á það, að hægt sé að segja að Sturlunga sé Snorra hliðholl í frásögn (bls. 49). Hún dregur oft vægðarlaust fram veiku hliðarnar á Snorra, og mætti þar að eins benda á tvö þau dæmi, sem höf. sjálfur tilfær- ir, sáitastefnuna á Mel i Miðfirði og flótti Snorra frá stefnu- mótinu undir Sandbrekku. Pað er viðar, að næstum er eins og Sturlunga skeyti því engu, þótt Snorri verði ber að lítilmensku. Hún er óhlutdræg. — Snorri hefir aldrei verið til höfðingja fall- inn. ímyndunarafl hans er of ríkt. Hann sér of skýrt afleiðing- arnar, setn geti orðið af þessu og hinu, og það verður til þess að hann hikar, en hinir sem vaða fram einráðnir, hvað sem við tæki, sigra. Snorri er vitmaður og listamaður en vill vera höfð- ingi. En er það ekki oft svona? Heimsfrægir menn í einni grein hafa ef til vill verið alla æfi sina að berjast við að verða frægir fyrir eitthvað annað, en verða svo óvart, svo að segja, frægir fyrir það, sem þeim var minna áhugamál. Snorri verður án efa betur skilinn eftir þessa lýsingu höf. en áður. Priðji þáttur: »Skáldskapur og skáldskaparmál« og fjórði þátt- ur: »Gylfaginning« fjalla um Eddu Snorra. Kemur lærdómur höf. hér að góðu haldi, og mun margur fróðleiksfús maður græða mikið á að lesa þessa kafla, og vita betur eftir en áður að hverju hann gengur í Eddu sinni. Fimti þátturinn er um íslenska sagnaritun, og er hann nokk- urskonar inngangur að kafianum um sagnaritun Snorra. Þessi þáttur þykir mér best skrifaður af allri bókinni. Er hér með fá- um, en afarskýrum dráttum, mörkuð þróunarbraut hinnar merki- legu íslensku sagnaritunar milli íslendingabókar og Viglundar- sögu, sýnt hvaða öfl voru starfandi og hvernig samvinna þeirra og einangrun veldur straumhvörfunum og blæbrigðunum, sem vart verður. »Til skemtunar og fróðleiks« er oft sagt um timarit og slíkt, en hér er þessum orðum gefin miklu dýpri merking en alment gerist, og sýnt fram á, hvernig þessi tvö öfl geta haldið hvort öðru 1 jafnvægi, og af því fæðst hin ágætustu meistara- verk, en á hinn bóginn, þegar þau klofna og fara hvert sína götu, þá myndast annars vegar þurmeti, en hins vegar vatns- blanda. Er ekki of sagt, að þessi þáttur sé með því besta, sem ritað hefir verið á islensku nú um langt skeið. Pá kemur sjötti og lengsti þátturinn: »Sagnakönnun og sögu- list«, afarljós og skemtileg lýsing á sagnaritun Snorra, bæði vis-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.