Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 4
ÍSHELLAR geta verið fullir dul-
úðar og þessi hellir í Eyjabakka-
jökli í norðausturhluta Vatnajökuls
er þar engin undantekning. Ýmsir
ferðalangar hafa lagt leið sína að
hellinum að undanförnu til að dást
að þessari undrasmíð náttúrunnar
sem vissulega er töfrum gædd.
Íshellir í
Eyjabakka-
jökli
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
RÍKISSÁTTASEMJARI hefur boð-
að deiluaðila í sjómannadeilunni til
nýs sáttafundar kl. 15 í dag. Þá hef-
ur Árni M. Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra, boðað forsvarsmenn Sjó-
mannasambandsins og FFSÍ til
fundar kl. 9 í dag til að fara yfir
stöðuna í sjómannadeilunni.
Sjávarútvegsráðherra segist von-
ast til að endanlegt samkomulag ná-
ist á milli allra deiluaðila án þess að
stjórnvöld þurfi að grípa til laga-
setningar.
,,Deilan er ekki leyst í heild
ennþá. Það skiptir auðvitað máli að
með þessum samningi vélstjóra og
útvegsmanna hefur verið sýnt fram
á að það er hægt að komast að sam-
komulagi. Ég vonast til þess að það
náist endanlegt samkomulag á milli
allra aðila í deilunni,“ segir hann.
Árni segist hafa boðað forsvars-
menn Sjómannasambandsins og
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins til fundar í dag til að kanna
stöðuna og hvernig þeir sjái fram-
vindu málsins fyrir sér. ,,Það munu
engar tilkynningar fara fram þar,“
sagði ráðherra.
Segja ljóst að samningurinn
þýði launalækkun
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambandsins, og Grétar Mar
Jónsson, formaður FFSÍ, gagnrýna
vélstjórasamninginn harðlega.
Sævar segir að útlitið í deilunni sé
ekki bjart og staðan sé mjög þröng
við þær aðstæður sem komnar eru
upp eftir að vélstjórar gengu frá
samningi við útvegsmenn.
„Það verður að teljast með ólík-
indum að LÍÚ og Vélstjórafélagið
setjist niður og geri samning um að
fækka hásetum í ljósi þess að það
eru ekki vélstjórarnir sem bæta á
sig störfum við fækkun í áhöfn. Það
eru hásetarnir sem eftir sitja og í
kaupbæti að lækka svo við þá laun-
in,“ sagði hann. „Það eru alveg
hreinar línur, eftir að við höfum
skoðað nokkrar veiðigreinar og
dæmi, að þarna er um launalækkun
að ræða frá 4,1% og upp í 12%. Það
gerist líka þó engin breyting verði á
mönnun,“ segir Sævar.
Fráleitt að greiða lífeyris-
iðgjöld af kauptryggingu
Hann segir einnig fráleitt og með
öllu óaðgengilegt að semja um að líf-
eyrisiðgjöld verði greidd af kaup-
tryggingu sjómanna en ekki heild-
arlaunum, eins og hjá öllum öðrum
launþegum í landinu.
„Það er líka alveg óásættanlegt að
sjómenn einir stétta í landinu eigi að
borga iðgjald af slysatryggingu
sinni, eins og þarna er gert ráð fyr-
ir,“ segir hann.
Sævar segir það ekkert nýtt í
þessari deilu að LÍÚ ræði við for-
ystumenn sjómannasamtakanna
hverra í sínu lagi. „En það hefur
aldrei hvarflað að mér að ef árangur
næðist í samtölum mínum við for-
ystumenn LÍÚ myndi ég skrifa upp
á samkomulag nema hafa verið bú-
inn að kynna hinum hagsmunasam-
tökunum það áður og spyrja þau
álits. Það gerðu þeir [vélstjórar]
hins vegar ekki. Ég hélt að menn
ynnu ekki þannig,“ segir Sævar.
Aðspurður hvort vænta megi þess
að sett verði lög á deiluna segir
Sævar að það hvarfli ekki að sér í
ljósi nýlegra yfirlýsinga forsætisráð-
herra og sjávarútvegsráðherra. „Ég
sé ekki heldur í hvaða stöðu stjórn-
völd eru til að setja lög á kjarasamn-
ing sem felur í sér launalækkanir.
Ég fullyrði að ef til þess kæmi þá
myndum við fara með það lengra.
Það er alveg ljóst því það er alveg á
hreinu að þarna er verið að lækka
laun sumra sjómanna,“ segir hann.
Grétar Mar Jónsson segir erfitt
að meta stöðuna sem upp er komin í
deilunni. „Við höfnuðum þessu
plaggi í dag og viljum fá meira en
hinir sömdu um. Við teljum að þeir
hafi hreinlega samið af sér. Það var
gert í raunmönnuninni, hún er ekki
rétt, og svo hagnast útgerðin bara á
færri mönnum,“ sagði hann.
Grétar Már sagði það fráleita til-
hugsun ef stjórnvöld ætluðu að setja
lög á verkfallið. „Við höldum bara
okkar áætlunum óbreyttum og
reynum að ná kjarasamningi á ein-
hverjum vitrænum nótum, sagði
hann.
Greiðir ekki fyrir
lausn deilunnar
Sáttasemjari hefur einnig boðað
Pétur Sigurðsson, forseta Alþýðu-
sambands Vestfjarða, til sáttafund-
arins í dag fyrir hönd sjómanna á
Vestfjörðum. Pétur sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að samn-
ingur vélstjóra og útvegsmanna
greiddi ekki fyrir lausn deilunnar,
heldur hefði þveröfug áhrif. Samn-
inganefnd vélstjóra virtist hafa fall-
ist á að semja um ákveðin atriði sem
þeir hefðu áður verið sammála öðr-
um um að gera ekki. Pétur var sam-
mála Sævari um að samningur vél-
stjóra við útvegsmenn fæli í sér
fækkun háseta í áhöfn skipa.
„Reyndar er augljóst að það er ein-
göngu hjá hásetunum. Hann ætlar
að senda eitthvað af hásetunum
heim, og síðan eiga vélstjórarnir að
fá hagnaðinn sem af því verður,
m.a.s. í hlutfalli við aukahlutina,“
sagði Pétur.
Sjómannafélag Ísfirðinga er í
verkfalli en Samtök atvinnulífsins
boðuðu verkbann á aðra hópa sjó-
manna í fjórðungnum. „Við höfum
ekki viðurkennt það, höfum mót-
mælt því og ætlum að fara í mál við
þá vegna þess ef þeir ekki láta segj-
ast. Þeir hafa tvisvar boðað verk-
bann á okkur án þess að uppfylla
þau skilyrði sem vinnulöggjöfin set-
ur,“ segir Pétur.
Forystumenn Sjómannasambandsins og FFSÍ hafna óbreyttum samningi vélstjóra og LÍÚ
Gagnrýna vélstjóra-
samninginn harðlega
Forystumenn Sjómannasambandsins og
Farmanna- og fiskimannasambandsins
höfnuðu í gær á fundi hjá sáttasemjara að
ganga að sams konar samningi og vélstjórar
gerðu við útvegsmenn í gærmorgun.
Árni
Mathiesen
Sævar
Gunnarsson
Grétar Mar
Jónsson
Pétur
Sigurðsson
AÐALMEÐFERÐ í máli ríkislög-
reglustjóra gegn rúmlega fertugum
karlmanni sem ákærður er fyrir pen-
ingaþvætti í tengslum við stóra fíkni-
efnamálið svokallaða lauk fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær.
Samkvæmt ákæru geymdi maður-
inn yfir fimm milljónir í bankahólfi
sínu fyrir Sverri Þór Gunnarsson,
sem hlaut sjö og hálfs árs fangelsis-
dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur síð-
asta sumar.
Jón H. Snorrason saksóknari sagði
við málflutninginn í gær að við
ákvörðun refsingar ætti að miða við
það að maðurinn hefði haft undir
höndum fíkniefni fyrir um fimm millj-
ónir og taldi refsinguna hæfilega um
eitt og hálft ár. Hann minnti á að það
hlutverk sem maðurinn gegndi í mál-
inu hefði verið Sverri Þór nauðsyn-
legt í fíkniefnaviðskiptum sínum.
Fíkniefnasalar yrðu að geta geymt fé
á öruggum stað kæmi til þess að
grunur félli á þá. Jón sagði að hinn
ákærði hefði vitað að féð var ávinn-
ingur fíkniefnaviðskipta og benti á að
ákærði hefði sjálfur sagst hafa haft
slæma tilfinningu fyrir því að geyma
fé fyrir Sverri Þór. Við yfirheyrslur
hjá lögreglu hefði hann ennfremur
sagst vita til þess að Sverrir Þór
stundaði fíkniefnaviðskipti.
Verjandi ákærða sagði að skjól-
stæðingur sinn hefði ekki vitað að féð
var gróði af fíkniefnaviðskiptum.
Varðandi framburð við yfirheyrslu
hjá lögreglu sagði hann að skjólstæð-
ingur sinn hefði dregið þá ályktun að
féð væri gróði af fíkniefnaviðskiptum
eftir að hafa fylgst með umfjöllun um
umsvif Sverris Þórs og félaga í fjöl-
miðlum svo vikum skipti. Verjandinn
benti á að Sverrir Þór hefði á þessum
tíma staðið í margvíslegum viðskipt-
um, m.a. með fasteignir og bíla. Skjól-
stæðingur sinn hefði litið svo á að
þetta hefðu e.t.v.verið peningar sem
hann vildi ekki greiða skatta af. Þá
minnti hann á að skjólstæðingur sinn
hefði hreina sakaskrá varðandi fíkni-
efni.
Aðalmeðferð vegna peningaþvættis í
tengslum við stóra fíkniefnamálið lokið
Talinn hafa fal-
ið 5 milljónir