Morgunblaðið - 10.05.2001, Page 47

Morgunblaðið - 10.05.2001, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 47 VIÐ ákváðum að vera stór-ir í sniðum og gera þettaað stærstu söngva-keppni sem haldin hefur verið. Tæplega 40.000 áhorfendur munu vera viðstaddir og viðbúið er að nokkrum flytjendanna verði verulega brugðið þegar þeir stíga á sviðið,“ segir Jørgen Ramskov, sem sér um framkvæmd Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva. Hún hefur tekið á og verið svo dýr að um tíma íhugaði danska sjónvarpið að taka áfallatryggingu ef danska lag- ið myndi vinna aftur. Frá því var horfið vegna þess hve dýr trygg- ingin var en verðinu réðu m.a. mikl- ar vonir sem Danir gera sér um gengi lagsins. Áhorfendur á laugardag verða nærri því þrisvar sinnum fleiri en í Globen í Stokkhólm í fyrra, sem var stærsta keppnin til þessa. Ramskov ypptir öxlum þegar talið berst að stærðinni, segir að þegar í upphafi hafi verið greinilegur vilji fyrir því að halda keppnina með glæsibrag, að sýna fólki hvað Danir séu færir um. Allar kynningar í tengslum við keppnina hafa enda verið í anda þess. Nýtt þak yfir Parken Keppnin er haldin á stærsta íþróttaleikvangi Dana, Parken í Kaupmannahöfn og verður nýtt þak, sem reyndar hafði verið ákveð- ið að smíða yfir völlinn, vígt með söngvakeppninni. Allt er stórt í sniðum; fjöldi ljósa, myndavéla, starfsfólks, gesta, stærð leikvangs- ins og sviðsins, sem er um 350 fer- metrar. „Við viljum skapa góða stemmningu, halda 40.000 manna partí þar sem vel liggur á öllum, þar sem fólk vill helst af öllu standa uppi á stólunum og syngja með,“ segir Ramskov. En slíkt partíhald er ekki hrist fram úr erminni. Tafir hafa orðið á ýmsum hlutum, „fyrirséðar tafir“ eins og Ramskov kallar það og full- yrðir að þær muni ekki koma í veg fyrir að keppnin gangi snurðulaust fyrir sig. „Við urðum að byggja allt frá grunni og það hefur vissulega skap- að ýmiss konar og mörg óvænt vandamál, m.a. vegna þaksins. Það getur ekki verið yfir vellinum í marga daga, því þá rotnar gras- svörðurinn. Það verður aftur til þess að ekki er hægt að festa ljósin í þakið, því það verður að vera hægt að hreyfa það. Svona mætti lengi telja,“ segir Ramskov. Hann tekur þó jafnframt fram að danska sjón- varpið sé ekki alls ókunnugt stórum útsendingum, útsendingar frá úr- slitaleikjum í fótbolta hafi farið til fleiri áhorfenda og kallað á fleiri myndavélar en söngvakeppnin. Rafkerfi á við heilan bæ Í upphafi vikunnar kvörtuðu margir flytjendur undan kulda í Parken. Ef kalt er í veðri er hægt að hita völlinn upp í 15 gráður en Ramskov segir kuldann ekki áhyggjuefni heldur miklu frekar að of heitt verði þegar tugir þúsunda séu samankomnir undir einu þaki og 2.000 ljóskastarar þar á ofan. Það, eins og raunar svo margt ann- að við keppnina, á fyrst eftir að koma í ljós á morgun föstudag, á að- alæfungunni, en hún verður tekin upp og send út, komi eitthvað upp á í beinu útsendingunni á laugardag. Þá mun einnig koma í ljós hvernig hljóðkerfið virkar en óánægjuradd- ir hafa heyrst um hljóminn í Park- en, bæði vegna þess að leikvangur- inn er alls ekki byggður fyrir hljómleika auk þess sem þakið lok- ar hljóðið inni og endurvarpar því. „Svo kemur bara í ljós hvort tískan er bómull eða pólýester,“ sagði ónefndur sjónvarpsmaður með vís- an til þeirra áhrifa sem klæðnaður svo margra áhorfenda getur haft á hljómburð. Allur þessi búnaður krefst óhemjumikils rafmagns og í vor var forráðamönnum keppninnar ljóst að rafleiðslur til vallarins dygðu hvergi nærri til þar sem orkunotk- unin á meðan á keppninni stendur verður svipuð og í litlum bæ. Hefur því tveimur rafstöðvum verið komið fyrir við völlinn til að knýja bún- aðinn og til að hlaupa í skarðið ef rafmagnið fer af. 80.000 lítrar af ol- íu eru til taks fyrir rafstöðvarnar. Gert ráð fyrir hinu versta Þetta er aðeins eitt af mörgum dæmum um þann undirbúning sem fram hefur farið sl. ár og snýst ekki aðeins um að koma keppninni til áhorfenda á sem eftirminnilegastan hátt, heldur einnig að sjá fyrir allt það sem farið getur úrskeiðis. For- ráðamenn keppninnar hafa einna mestar áhyggjur af umferðinni til og frá Parken en talsverð vega- vinna hófst í nágrenni hans. Í Park- en eru menn þó vanir öðrum eins fjölda á stærstu fótboltaleikjum og vona menn að sú reynsla komi til góða. Hluti undirbúningsins felst í því að gera ráð fyrir hinu versta og starfsfólk og búnaður til vara er stór hluti af því. Tekið hefur verið með í reikninginn að þakið bili, að rafmagnið fari af, að símkerfið fari úr skorðum, að kynnarnir veikist, að ekki verði hægt að senda út, að hljóðkerfið bregðist, og svo mætti lengi telja. Ramskov og aðrir eru fáorðir um það sem upp hefur kom- ið, viðurkenna að vissulega hafi ekki allt gengið snurðulaust en segja það ekki koma í veg fyrir að sýningin verði glæsileg. Sögusagnir um óreiðu í undirbúningi vegna þess að of margir hafi komið að honum og ábyrgðin því óljóst hafa ekki fengist staðfestar. Heldur ekki fullyrðingar um að vegna misskilnings hafi danska sjónvarpið ekki fengið allt það fé sem menningarmálaráðu- neytið hafi verið tilbúið að leggja fram. Öryggið ekki stærsta áhyggjuefnið Aðspurður segir Ramskov að slysið í Hróarskeldu á síðasta ári, þar sem níu manns tróuðust undir á tónleikum, hafi ekki haft áhrif á ör- yggisgæsluna, hún sé svipuð og á fótboltaleikjum og að ekki sé hægt að líkja Hróarskeldutónleikunum við söngvakeppnina. „Þótt við séum vissulega að reyna að hressa upp á ímyndina og höfða meira til yngra fólks, fer því fjarri að söngvakeppn- in sé einhver rokkhátíð. Aðeins lítill hluti áhorfendanna er í stæðum og ég á ekki von á því að áhorfendurnir reyni að komast upp á sviðið eða að því eins og á tónleikum rokkstjarna. Skömmu fyrir forkeppni söngva- keppninnar barst sprengjuhótun til danska sjónvarpsins en Ramskov hefur ekki miklar áhyggjur af því að slíkt endurtaki sig. Leitað verði hátt og lágt í Parken fyrir keppnina og leitað verður í töskum allra sem inn á völlinn koma. Ramskov segir slík- ar ráðstafanir verða að gera, ekki síst þegar Ísrael, Spánn og Bretland séu á meðal þátttökulandanna. Beðið fyrir ósigri Ramskov er þreytulegur, eins og reyndar flestir þeir sem að fram- kvæmdinni standa, enda hefur verið í nógu að snúast frá því að Olsen- bræðurnir fóru með sigur af hólmi í Stokkhólmi fyrir réttu ári. Þegar söngvakeppnin er afstaðin ætlar hann, eins og reyndar aðrir starfs- menn, að slappa ærlega af. Og til að tryggja það hefur hann gert samn- ing við yfirmenn sína hjá danska sjónvarpinu um að hann muni ekki sjá um framkvæmd keppninnar, fari Danir með sigur af hólmi. Mögu- legur sigur er danska sjónvarpinu áhyggjuefni og fyrr í vikunni játaði yfirmaður þess, Christian Nissen í samtali við Berlingske Tidende að hann bæði til guðs um að sigurinn félli annarri þjóð í skaut. Vinni Dan- ir hins vegar segir Ramskov að fyrir liggi áætlun um framkvæmdina sem yrði mun minni í sniðum en nú er. „Við sjáum enga ástæðu til að end- urtaka leikinn í því tilfelli. Nú ger- um við þetta með glæsibrag og verð- um við að halda keppnina aftur munum við einbeita okkur að því að setja á svið gott sjónvarpsefni.“ Risaveisla í Parken Söngvakeppni Evrópskra sjónvarps- stöðva í Kaupmanna- höfn á laugardag verð- ur sú stærsta frá upphafi. Framkvæmdin hefur reynst flókin en laus við meiriháttar áföll, skrifar Urður Gunnarsdóttir. Engu að síður vona for- ráðamenn danska sjón- varpsins að þeirra lag sigri ekki aftur. Morgunblaðið/Ásdís Íslenski hópurinn í höllinni í gær, Margrét Eir og Regína bakraddir, strákarnir og Nanna og Yasmine dansarar. Í baksýn er sviðið sem er hið umfangsmesta í Evróvision-keppninni til þessa. Fjöldi þátttökulanda: 23. Lönd sem sýna keppnina: 30. Fjöldi áhorfenda í Parken: 38.000. Fjöldi sjónvarpsáhorfenda: 130 milljónir. Stærð sviðsins: 350 m². Fjöldi ljóskastara: 2.300. Stærð ljósakerfis: 4,5 milljón wött. Þyngd þaksins: 550 tonn. Fjöldi starfsmanna: 1.500. Fjöldi blaðamanna: 800. Fjöldi skráðs sjónvarpsfólks: 2.000. Matur ofan í áhorfendur; 35.000 pylsur, 10.000 sam- lokur, 52.000 lítrar af bjór, 7.500 lítrar af gosi. Söngvakeppn- in í tölum urdur@mbl.is vegurinn farinn að Ekki verð- ur unnt að gera við veginn fyrr en jarðvegur þornar. Árni Snorrason, forstöðumaður vatnamælinga Orkustofnunar, seg- ir sjaldgæft að svona mikil flóð séu í Öxará síðla vors en flóð séu hins vegar nokkuð algeng á þessum slóðum að vetrarlagi. Vegna rign- inganna hefur snjó leyst mjög ört úr Botnssúlunum, klaki er enn í jörðu svo vatnið getur ekki runnið í burtu, og árfarvegurinn hefur því yfirfyllst. Spurður um vatnsstrók- ana segir hann þá væntanlega stafa af samspili vatns og vinda en mikið hvassviðri hefur fylgt rign- ingum undanfarinna daga. „Þarna hefur jarðvegur verið gegnsósa af vatni eftir miklar úrkomur, það rennur ofan í gjár og gjótur og þessi mikli vindur feykir því upp í stróka,“ sagði Árni. Vatnsrok sem þetta er að sögn Árna algengt á Suðurlandi þar sem fossar ná ekki niður heldur „snúa við“ í miklum vindi. Morgunblaðið/RAX um jökulá sé að ræða. stórrigninga standa inni Morgunblaðið/RAX og engin leið að komast yfir lækinn. æmundsen atnselg-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.