Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 15
DRÖG að aðalskipulagi
Kópavogsbæjar 2000 – 2012
voru kynnt á borgarafundi í
félagsheimili Kópavogs í
gærkvöldi en þar er fjallað
um skipulag bæjarfélagsins í
heild sinni.
Í drögunum segir meðal
annars að við endurskoðun
þess þurfi að meta tvær til-
lögur vegna uppbyggingar á
Vatnsenda. Önnur geri ráð
fyrir 5000 manna byggð í
tveimur skólahverfum með
blandaðri byggð sérbýla og
fjölbýla. Í tillögu íbúa í
Vatnsendahverfi er hins
vegar lagt til að gert sé ráð
fyrir 3000 manna byggð í
einu skólahverfi með lág-
reistri og dreifðri byggð.
Bent er á í drögunum að
hægt sé að samræma þessar
hugmyndir með því að
byggð verði lágreist næst
Elliðavatni en hærri fjær
því.
Einnig er lagt til að færa
tengibraut frá jaðri byggðar
í ofanverðu Vatnsendahvarfi
og inn á mitt byggingarland-
ið. Segir þar að með þessu
nýtist hlíðar Vatnsenda-
hvarfs fyrir íbúðarbyggð og
útivist auk þess sem gatna-
kerfið verði einfaldara og
styttra. Einnig er lagt til að
kappkostað verði við að
ljúka við frágang á óbyggð-
um svæðum innan heima-
landsins.
Ný byggð í
Gunnarshólma og
Lækjarbotnum
Vegna deiliskipulags íbúð-
arbyggðar í Vatnsenda verð-
ur gerð úttekt á áhrifum
byggðar á lífríki Elliðavatns.
Gert er ráð fyrir að áætl-
anir, aðgerðir og fram-
kvæmdir byggi á niðurstöðu
hennar og miði að því að
vernda vistkerfi vatnsins.
Þá segir í drögunum að
stefnt sé að því að unnið
verði heildarskipulag fyrir
bæjarlandið austan Elliða-
vatns með framtíðaríbúðar-
byggð í Gunnarshólma og
Lækjarbotnum í huga. Einn-
ig segir þar að sérkenni
byggðar og opinna svæða
skuli varðveitt og kannað í
því sambandi hvort þörf sé
fyrir bæjarverndun byggð-
ar.
Af öðru efni sem tiltekið
er eru málefni Kópavogs-
hafnar. Þar segir að efla
þurfi starfsemi tengda sjó-
sókn og flutningum á sjó og
að hafnsækin starfsemi eigi
að hafa forgang við höfnina.
Stefnt er að því að þjón-
ustustig aðalgatnakerfisins
lækki ekki en jafnframt að
fjölgað verði verulega svæð-
um með 30 kílómetra há-
markshraða, einkum í íbúð-
arbyggðum.
Til viðbótar er m.a. lagt til
að leiðakerfi á höfuðborgar-
svæðinu verði sameinuð,
dregið verði úr umfangi
sorps til urðunar með auk-
inni flokkun, endurnýtingu
og endurvinnslu og að
byggðir verði sex leikskólar
í Sala- og Vatnsendahverf-
um.
Í drögunum segir að við-
fangsefni aðalskipulagsins
taki nú í ríkara mæli tillit til
umhverfismála auk þess sem
vinna við gerð aðalskipu-
lagsins mótist af nýjum
áherslum í skipulags- og
byggingarlögum sem tóku
gildi árið 1998. Samkvæmt
þeim er m.a. gert ráð fyrir
að sótt sé um sérstakt fram-
kvæmdaleyfi vegna fram-
kvæmda sem ekki eru háðar
byggingarleyfi. Aukin
áhersla er einnig lögð á
kynningu og samráð við íbúa
og hagsmunahópa vegna
breytinga á skipulagsgerð.
Gert ráð fyrir
5.000 manna byggð
í Vatnsendahverfi
Kópavogur
Drög að aðalskipulagi Kópavogsbæjar
SKIPULAGS- og byggingar-
nefnd Reykjavíkurborgar
hefur samþykkt tillögur að
viðbyggingu við Keiluhöllina
við Öskjuhlíð samkvæmt upp-
drætti A1 arkitekta. Þá verð-
ur ráðist í endurbætur innan-
húss á höllinni í sumar.
Að sögn Guðna Pálssonar,
arkitekts hjá A1 arkitektum,
er hugmyndin að reisa við-
byggingu sem staðsett verður
á bakvið veitingastað Keilu-
hallarinnar. Þar fyrir er gjóta
frá tímum grjótnáms í Öskju-
hlíðinni og er ætlunin að reisa
þak þar yfir og nota kletta-
veginn sem hluta að hinni
nýju byggingu með glerteng-
ingu á milli.
Óvíst hvenær
framkvæmdir hefjast
Ráðgert er að nýja bygg-
ingin muni hýsa a.m.k. þrjá
golfherma auk þess sem þar
verður að finna púttvöll og
setustofu. Flatarmál bygging-
arinnar verður um 550 fer-
metrar, þar af 320 að grunn-
fleti. Að sögn Guðna verður
byggingin ekki sýnileg frá
götu.
Rúnar Fjeldsted, fram-
kvæmdastjóri Háspennu ehf.,
sem á og rekur Keiluhöllina,
segir framundan miklar end-
urbætur innanhúss sem ráð-
gert er að verði lokið fyrir lok
júlí.
Að sögn Rúnars verða sett-
ar upp nýjar plastbrautir og
tölvuskor en alls eru um 18
brautir á staðnum.
Ekki hefur enn verið tekin
ákvörðun um það hvenær
framkvæmdir á viðbyggingu
hefjast.
Drög að viðbyggingu við Keiluhöllina
Klettaveggurinn
hluti af byggingunni
Öskjuhlíð
Morgunblaðið/Golli
Keiluhöllin í Öskjuhlíð mun á næstu misserum taka stakkaskiptum bæði innanhúss og utan.