Morgunblaðið - 10.05.2001, Page 65

Morgunblaðið - 10.05.2001, Page 65
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 65 hluti þeirrar raunmenntunar, sem verður að prýða góðan lagamann. Hann þarf jafnframt að vera ýmsum kostum búinn, sem seint verða lærðir af bókum, svo sem mannskilningi, þroskuðu siðgæði, ríkri réttlætis- kennd og dirfsku til að segja ætíð það, sem hann veit sannast og réttast og helst að lögum. Formleg lagakennsla er þó engu að síður sá þátturinn við mótun faglegs hæfis lagamannsins, sem þyngst vegur. Lögfræðikennslan verður að rísa undir merkjum. Henni er ætlað að skapa færa fagmenn, sem séu í stakk búnir til að mæta þeim ströngu og sí- vaxandi kröfum, er fyrr var lýst, og vera vökumenn lýðræðisins og stríðs- menn réttarins, er standi – með „lagasverðið bjart“ að vopni – í fylk- ingarbrjósi þeirra, sem berjast gegn rangsleitni og meingerðum. Laga- kennslunni verður að skapa þá um- gjörð og þann aðbúnað sem hæfir. Tryggja þarf þjónustu nægilega margra og mikilhæfra kennara og góða vinnuaðstöðu fyrir kennara jafnt sem nemendur. Háskólakennslu í lögfræði verður ekki haldið uppi nema byggt sé á ítarlegum og sívirk- um rannsóknum í lögfræði, en þessi óhjákvæmilegi grunnur kennslunnar, sem verður ætíð að vera samofinn henni, krefst mannafla og umfangs- mikilla heimildasafna. Við kennsluna þarf einnig að nýta hvers kyns tækni, sem auðveldar heimildaöflun og upp- lýsingastreymi og stuðlar að skilvirk- ari kennslu. Fræðsluhlutverki gagn- vart almenningi, m.a. með atbeina upplýsingatækninnar, má einnig síst af öllu gleyma, þótt örðugt kunni að vera að framfylgja því markmiði svo að nægur sómi sé að. Öll þau svið, sem hér voru nefnd, þarfnast veru- legrar eflingar. Allt kostar þetta fé, en naumar fjárveitingar hamla því að kennsla og rannsóknir verði með þeim hætti, sem vera ætti, enda þótt þess skuli jafnframt minnst að fram- farir á þessu sviði, sem öðrum, byggj- ast ekki einvörðungu á fjármunum heldur einnig á hugkvæmni, frum- kvæði, starfsvilja og baráttuþreki einstaklinga. Lagakennslan og lög- fræðirannsóknirnar við Háskóla Ís- lands líða nú vegna fjárskorts. Stór- aukinna fjárveitinga er því þörf, en úrbætur í því efni munu ekki fást nema til komi breyttur og bættur skilningur ráðamanna utan Háskól- ans og innan. Fagleg kennsla í lögfræði getur að sjálfsögðu farið fram víðar en í Há- skóla Íslands, og svo á einnig að vera. Kennsla í lögum – á afmörkuðum sviðum, svo sem í viðskiptarétti – er nú einnig veitt, eða verður innan skamms, í sumum þeim menntastofn- unum öðrum, er starfa á háskólastigi. Ber vissulega að fagna því og efla þá þróun, þannig að tryggt verði að vel sé að verki staðið. Samkeppni er holl, á þessu sviði sem öðrum, og marg- breytnin leiðir jafnt til aukins gró- anda í „grasrótinni“ sem til viðgangs fræðanna í æðra skilningi. Um ófyr- irsjáanlega framtíð verður þó almenn lögfræðimenntun á víðtækum fagleg- um grundvelli einvörðungu veitt, hér á landi, við lagadeild Háskóla Íslands. Þar er og verður því starfið mest og ábyrgðin þyngst við þróun íslenskra lögvísinda og um leið þörfin ríkust fyrir aukinn stuðning og skilning al- mennings og stjórnmálamanna jafnt sem æðstu stjórnvalda Háskólans. Höfundur er forseti lagadeildar Háskóla Íslands. ✐ ✔ ✎  ❂  ✎ ✒ ✔ ✎ ❒ ❇ ✎ ✒ ✐ ✐ ✑ ✶ ❅ ❒ ➝ ❋ ❒ ✎ ✗ ✙ ✙ ✎ ✍ ❍ ✎ ❖  ❋ M A Í Kynlíf fyrr á öldum Heimt úr helju – t ó k l y f í l æ k n i s l e i k Ást án landa- mæra Benazir Bhutto Bjargvættur lesblindra Voruð þið að rífast? sumar- tískuna Allt um  Lítilli stúlku VAR EKKI HUGAÐ LÍF eftir að hún tók lyf í læknisleik.  ÁSTIN spyr ekki um LANDAMÆRI - 3 pör frá ólíkum löndum.  VAR KYNLÍFIÐ BETRA á tímum Grikkja og Rómverja?  Flott FÖT OG FYLGIHLUTIR - kíkt í búðir og fataskápa fyrir SUMARIÐ.  GYÐA Stefánsdóttir er BJARGVÆTTUR lesblindra.  Voruð þið AÐ RÍFAST? Hafðu engar áhyggjur!  VORLITIRNIR í snyrtivörum. Nýtt Líf - fyr i r kröfuharðar konur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.