Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 42
LISTIR
42 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Jóhannes S. Kjarval
LISTMUNAUPPBOÐ
Í KVÖLD KL. 20.00 Á HÓTEL SÖGU, SÚLNASAL
Verið velkomin að skoða verkin í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16,
í dag kl. 10.00-18.00.
Seld verða 87 verk, þar á meðal fjölmörg verk gömlu meistaranna.
Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is
Rauðarárstíg 14-16
sími 551 0400
og Kringlunni
sími 568 0400
www.myndlist.is
SÝNING Iréne Jensen ber yfir-
skriftina „Á leiðinni“, enda er þemað
hópur af fólki sem gengur gegnum
myndflötinn í ýmsum stærðum.
Myndir sínar vinnur Iréne í tækni
sem nefnist „ImagOn“-æting, en það
er ein af þeim nýju aðferðum í
grafíktækni sem komið hafa fram á
undanförnum árum og ætlað er að
gera greinina vistvænni og heilsu-
samlegri fyrir hlutaðeigandi.
Iréne nýtir sér einnig ljósmynda-
tæknina með ætingum sínum og
þannig verður til samsett aðferð sem
býður upp á óendanlega möguleika
fyrir listamanninn. Bakgrunnur
sumra myndanna er fenginn af
veggjum og gangstéttum borgarinn-
ar, en aðrar taka mið af rigningu á
rúðum. Í öllum tilvikum gengur hóp-
ur fólks í þessu ímyndaða landslagi
líkt og væri það að feta óendanlega
leið í átt að óræðu takmarki. Iréne
lýsir fólkinu sem nútímamanninum á
eilífri vegferð um síbreytilegar að-
stæður og umhverfi.
Eins og áður sagði eru í tækninni
fólgnir óteljandi möguleikar. Ef til
vill mætti Iréne gera enn fleiri og
frjálslegri tilraunir með það sem hún
hefur í höndunum og finna óvæntari
útkomu en fram kemur á sýning-
unni. Fólkið er eilítið of staðlað, jafn-
vel þótt það stækki og smækki á víxl.
Með meiri tilraunum, svo sem
skuggum skuggamynda af fólkinu,
mundi eflaust nást margræðari út-
koma. Iréne mundi með öðrum orð-
um auka mjög ríkidæmi mynda
sinna með því að leyfa sér enn frjáls-
ari og óræðari vinnubrögð.
Sýning hennar lofar þó góðu og
sannar að Iréne býr yfir öllum þeim
kostum sem prýða mega einn mark-
sækinn grafíklistamann. Áframhald-
ið veltur svo á því hve djarflega hún
hellir sér út í frekari rannsóknir á
möguleikum miðilsins og hve hug-
myndaríkum tökum hún tekur hina
nýju tækni. En eins og Iréne veit
manna best er tæknin ekki allt;
grunntjáningin sjálf ræður ávallt
mestu.
Fólk og borgarlandslag
MYNDLIST
Í s l e n s k g r a f í k ,
H a f n a r h ú s i
Til 20. maí. Opið fimmtudaga til
sunnudaga frá kl. 14–18.
GRAFÍK
IRÉNE JENSEN
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Ein af grafíkmyndum Iréne Jensen hjá Íslenskri grafík, Hafnarhúsinu.
Halldór Björn Runólfsson
SÝNING Jeans Antoines Pos-
occo er sannkallaður óður til nátt-
úrunnar enda fylgir listamaðurinn
henni úr hlaði með merkilegri
játningu í anda rómantísku stefn-
unnar í upphafi 19. aldar. Er tign-
un náttúrunnar gamaldags, eða
jafnvel liðin undir lok? Slíkum
spurningum veltir Posocco fyrir
sér og kemst þá stundum merki-
lega nærri skáldum 19. aldar sem
tókust á við þá grundvallarspurn-
ingu hvort framfarir hefðu átt sér
stað eða firring sem rofið hefði
samband manns og náttúru. Menn
mættu vissulega fara að dæmi
listamannsins og hugleiða þátt
náttúrunnar í hversdagslegri til-
veru okkar. Þótt þeir gerðu ekki
annað en velta fyrir sér mikilvægi
hinnar óstöðugu en afarsérstæðu
íslensku birtu frá morgni til kvölds
– og gott betur á sumrin – kæmust
þeir áreiðanlega að raun um hve
ótvíræð áhrif hún hefur á daglega
líðan okkar. Þannig staðhæfir Pos-
occo að náttúrunni verði ekki þok-
að úr tilveru okkar á meðan við
njótum áhrifa á borð við daglega
birtu.
Raunar má einnig snúa þessu
upp á næturlífið, sem menn telja
sjálfum sér trú um að sé fjarlæg-
ara náttúrunni en daglegt líf. En
hver skyldi slökkva á perunni til
þess að skapa skilyrði fyrir nætur-
líf? Er það ef til vill Orkuveitan?
Eða hvaðan skyldi Orkuveitan fá
rafmagnið, ef ekki frá náttúrunni?
Formáli Posocco treystir vissulega
sýningu hans, en hún er sett sam-
an af ellefu vatnslitamyndum sem
allar eru á þverveginn eins og
breiðtjald. Vissulega má segja að
listamaðurinn velji sér stærð sem
er fögur í sjálfri sér, en hann býr
líka yfir prýðilegri tækni. Stund-
um er hún eilítið of varfærnisleg
líkt og listamaðurinn sé hræddur
um að skemma myndina ef hann
skerpir áherslurnar, en í bestu
myndunum þar sem túlkun birt-
unnar er hvað einföldust nær hann
ágætu valdi á miðlinum án þess að
fórna um of persónulegum tjáning-
armáta sínum.
Til náttúrunnar
MYNDLIST
S v e r r i s s a l ,
H a f n a r b o r g
Jean Antoine Posocco Til 14. maí.
Opið miðvikudaga til mánudaga
frá kl. 11–17.
VATNSLITAMYNDIR
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Ein af myndum Jeans Antoines Posocco í Sverrissal, Hafnarborg.
Halldór Björn Runólfsson
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri
Á Skriðuklaustri
verða haldnir tón-
leikar á sunnudag
kl. 15 sem nefnast
Vor með Jónasi.
Ingveldur G.
Ólafsdóttir
mezzosópran
syngur lög Atla
Heimis Sveinsson-
ar við kvæði Jón-
asar Hallgrímssonar. Atli Heimir
Sveinsson leikur sjálfur undir á pí-
anó og segir frá lögunum.
Vor með
Jónasi
Jónas
Hallgrímsson