Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 74
FRÉTTIR
74 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Clint Eastwood Gorillaz
Sonne Rammstein
Outside Aaron Lewis & Fred Durst
Shiver Coldplay
Road Trippin Red Hot Chili Peppers
Survivor Destiny´s Child
Butterfly Crazy Town
Lady Marmelade Pink, Mya, Lil Kim &
Christina Aguilera
Miss Jackson Outkast
I’m Like A Bird Nelly Furtado
Play Jennifer Lopez
That’s My Name Lil Bow Wow
Gravel Pit Wu Tang Clan
Dagbókin mín 3 G ´S
Tonk Of The Lawn Egill Sæbjörnsson
It’s Raining Men Geri Halliwell
Can’t Fight The Moonlight LeAnn Rimes
Stuck In A Moment U2
Út á lífið Lydía Grétarsdóttir
Nobody Want’s To Be Lonely Christina Aguilera &
Ricky Martin
Vikan 9.05. - 16.05
http://www.danol.is/stimorol
UM langan tíma hefur stefna Dýra-
læknafélags Íslands verið sú að sýna
beri ýtrustu aðgæslu við notkun
sýklalyfja þar sem sýnt hefur verið að
samhengi er á milli notkunar sýkla-
lyfja og sýklalyfjaónæmis. Dýra-
læknafélag Íslands setti fram stefnu
árið 1997, um notkun sýklalyfja við
meðhöndlun á júgurbólgu en þar er
notkun mest í landbúnaði og var til-
gangurinn sá að bæta umgengni um
sýklalyf og draga úr notkun þeirra.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Dýralæknafélagi Íslands í til-
efni af umræðu um reglugerð um
heimildir dýralækna til að ávísa lyfj-
um og umfjöllun í DV nýlega, þar sem
„skilja má að dýralæknar séu al-
mennt ósáttir við reglugerðina,“ eins
og segir í fréttatilkynningunni.
„Umrædd stefna félagsins var
rædd á félagsfundum, borin upp til at-
kvæða og samþykkt af félagsmönnum
með öllum greiddum atkvæðum. Á
fundi félagsins í mars sl. þar sem
fjallað var sérstaklega um lyfjaónæmi
var samþykkt, með öllum greiddum
atkvæðum, að stefnu þessa skyldi
endurskoða í ljósi nýjustu þekkingar.
Það er því ekki rétt sem fram kemur í
ofangreindri frétt DV að margir dýra-
læknar séu ósáttir við reglugerðina.
Mikill meginhluti íslenskra dýra-
lækna hefur fylgst með og tekið þátt í
þeirri umræðu sem verið hefur meðal
fagfólks í heilbrigðisgeira undanfarin
ár, um lyfjaónæmi og hættur því sam-
fara og fagnar því að íslensk stjórn-
völd bregðist við á ábyrgan hátt, með
setningu reglugerðar sem stuðlar að
bættri umgengni um lyf og minni
lyfjanotkun. Ljóst er að ákvæði reglu-
gerðarinnar valda auknu vinnuálagi á
dýralækna sem víða er óhóflegt fyrir,
en vart þarf þó að taka fram að dýra-
læknar fara almennt eftir þessari
reglugerð, sem öðrum sem þeim er
skylt að vinna eftir.“
Ýtrasta aðgæsla við
notkun sýklalyfja
Dýralæknafélag Íslands
DAGSKRÁIN Vordagar Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss verður í
fyrsta sinn haldin nú í maí. Stefnt er
að því að Vordagar verði framvegis
árlegur viðburður með ársfundi spít-
alans og kynningu á fjölbreyttri
starfsemi stofnunarinnar.
Dagskrá fimmtudagsins 10. maí
2001: Dr. Miles F. Shore, prófessor
við Harvard, fjallar um breytingar í
umhverfi heilbrigðisfyrirtækja
ímorgunverðarfyrirlestri í Víkinga-
sal Hótels Loftleiða kl. 8:30 til 10:00.
Skráningu til að hlýða á fyrirlestur-
inn lauk 8. maí og er fullbókað.
Vísindi á vordögum er yfirskrift
sýningar á veggspjöldum og kynn-
ingar á rannsóknarverkefnum
starfsfólks, í K-byggingu Landspít-
ala, Hringbraut. Kynningin hefst
klukkan 13:00 og eru allir velkomnir,
starfsfólk spítalans og aðrir, meðan
húsrúm leyfir. Veggspjöldin eru á
fjórða tug en þrjú verkefni verða
kynnt: 1. Prófessor Karl G. Krist-
insson yfirlæknir: Börn og pneumó-
kokkar.
2. Ísleifur Ólafsson forstöðumað-
ur: Rannsókn á erfðum heyrnar-
skerðinga.
3. Hjalti Guðmundsson lækna-
nemi: Erfðir langlífis á Íslandi –
rannsókn í vinnslu.
Að lokinni dagskránni Vísindi á
vordögum hefst ársfundur Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss í K-bygg-
ingu, klukkan 14:30. Guðný Sverris-
dóttir formaður stjórnarnefndar
flytur skýrslu hennar og lagðir verða
fram og skýrðir ársreikningar stofn-
unarinnar. Einnig verða starfsmenn
spítalans heiðraðir fyrir vel unnin
störf. Jón Kristjánsson heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra flytur
ávarp á ársfundinum.
Fjölbreytt starfsemi kynnt
Vordagar Landspítala – háskólasjúkrahúss í fyrsta sinn
Á AÐALFUNDI Íslandsdeildar
Amnesty International nýlega var
skipuð ný stjórn deildarinnar.
Huld Magnúsdóttir, kynningar-
og gæðastjóri, er formaður deild-
arinnar, aðrir stjórnarmenn eru
Hafdís Ingadóttir BA í mannfræði,
Kristín J. Kristjánsdóttir viðskipta-
fræðingur, Erlendur Lárusson
tryggingafræðingur, Viðar Lúðvíks-
son héraðsdómslögmaður, Sólveig
Hlín Kristjánsdóttir háskólanemi
og María Vigdís Kristjánsdóttir
kennari. Framkvæmdastjóri deild-
arinnar er Jóhanna K. Eyjólfsdóttir
mannfræðingur.
Íslandsdeild Amnesty Internatio-
nal er hluti alþjóðlegrar hreyfingar
fólks sem stendur vörð um mann-
réttindi. Samtökin vinna að því að
mannréttindum eins og þau eru
sett fram í mannréttindayfirlýsingu
Sameinuðu þjóðanna sé framfylgt.
Á fundinum var samþykkt áætlun
sem byggist á grundvallarviðmiðum
samtakanna, sem eru: Alþjóðleg
samstaða, árangursríkar aðgerðir í
þágu fórnarlamba mannréttinda-
brota, alþjóðleg umfjöllun, algildi
og órjúfanleiki mannréttinda, hlut-
leysi og sjálfstæði, lýðræði og gagn-
kvæm virðing.
Ný stjórn kjörin
Íslandsdeild Amnesty International
FASTEIGNIR mbl.is