Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 74

Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 74
FRÉTTIR 74 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Clint Eastwood Gorillaz Sonne Rammstein Outside Aaron Lewis & Fred Durst Shiver Coldplay Road Trippin Red Hot Chili Peppers Survivor Destiny´s Child Butterfly Crazy Town Lady Marmelade Pink, Mya, Lil Kim & Christina Aguilera Miss Jackson Outkast I’m Like A Bird Nelly Furtado Play Jennifer Lopez That’s My Name Lil Bow Wow Gravel Pit Wu Tang Clan Dagbókin mín 3 G ´S Tonk Of The Lawn Egill Sæbjörnsson It’s Raining Men Geri Halliwell Can’t Fight The Moonlight LeAnn Rimes Stuck In A Moment U2 Út á lífið Lydía Grétarsdóttir Nobody Want’s To Be Lonely Christina Aguilera & Ricky Martin Vikan 9.05. - 16.05 http://www.danol.is/stimorol UM langan tíma hefur stefna Dýra- læknafélags Íslands verið sú að sýna beri ýtrustu aðgæslu við notkun sýklalyfja þar sem sýnt hefur verið að samhengi er á milli notkunar sýkla- lyfja og sýklalyfjaónæmis. Dýra- læknafélag Íslands setti fram stefnu árið 1997, um notkun sýklalyfja við meðhöndlun á júgurbólgu en þar er notkun mest í landbúnaði og var til- gangurinn sá að bæta umgengni um sýklalyf og draga úr notkun þeirra. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá Dýralæknafélagi Íslands í til- efni af umræðu um reglugerð um heimildir dýralækna til að ávísa lyfj- um og umfjöllun í DV nýlega, þar sem „skilja má að dýralæknar séu al- mennt ósáttir við reglugerðina,“ eins og segir í fréttatilkynningunni. „Umrædd stefna félagsins var rædd á félagsfundum, borin upp til at- kvæða og samþykkt af félagsmönnum með öllum greiddum atkvæðum. Á fundi félagsins í mars sl. þar sem fjallað var sérstaklega um lyfjaónæmi var samþykkt, með öllum greiddum atkvæðum, að stefnu þessa skyldi endurskoða í ljósi nýjustu þekkingar. Það er því ekki rétt sem fram kemur í ofangreindri frétt DV að margir dýra- læknar séu ósáttir við reglugerðina. Mikill meginhluti íslenskra dýra- lækna hefur fylgst með og tekið þátt í þeirri umræðu sem verið hefur meðal fagfólks í heilbrigðisgeira undanfarin ár, um lyfjaónæmi og hættur því sam- fara og fagnar því að íslensk stjórn- völd bregðist við á ábyrgan hátt, með setningu reglugerðar sem stuðlar að bættri umgengni um lyf og minni lyfjanotkun. Ljóst er að ákvæði reglu- gerðarinnar valda auknu vinnuálagi á dýralækna sem víða er óhóflegt fyrir, en vart þarf þó að taka fram að dýra- læknar fara almennt eftir þessari reglugerð, sem öðrum sem þeim er skylt að vinna eftir.“ Ýtrasta aðgæsla við notkun sýklalyfja Dýralæknafélag Íslands DAGSKRÁIN Vordagar Landspít- ala – háskólasjúkrahúss verður í fyrsta sinn haldin nú í maí. Stefnt er að því að Vordagar verði framvegis árlegur viðburður með ársfundi spít- alans og kynningu á fjölbreyttri starfsemi stofnunarinnar. Dagskrá fimmtudagsins 10. maí 2001: Dr. Miles F. Shore, prófessor við Harvard, fjallar um breytingar í umhverfi heilbrigðisfyrirtækja ímorgunverðarfyrirlestri í Víkinga- sal Hótels Loftleiða kl. 8:30 til 10:00. Skráningu til að hlýða á fyrirlestur- inn lauk 8. maí og er fullbókað. Vísindi á vordögum er yfirskrift sýningar á veggspjöldum og kynn- ingar á rannsóknarverkefnum starfsfólks, í K-byggingu Landspít- ala, Hringbraut. Kynningin hefst klukkan 13:00 og eru allir velkomnir, starfsfólk spítalans og aðrir, meðan húsrúm leyfir. Veggspjöldin eru á fjórða tug en þrjú verkefni verða kynnt: 1. Prófessor Karl G. Krist- insson yfirlæknir: Börn og pneumó- kokkar. 2. Ísleifur Ólafsson forstöðumað- ur: Rannsókn á erfðum heyrnar- skerðinga. 3. Hjalti Guðmundsson lækna- nemi: Erfðir langlífis á Íslandi – rannsókn í vinnslu. Að lokinni dagskránni Vísindi á vordögum hefst ársfundur Landspít- ala – háskólasjúkrahúss í K-bygg- ingu, klukkan 14:30. Guðný Sverris- dóttir formaður stjórnarnefndar flytur skýrslu hennar og lagðir verða fram og skýrðir ársreikningar stofn- unarinnar. Einnig verða starfsmenn spítalans heiðraðir fyrir vel unnin störf. Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra flytur ávarp á ársfundinum. Fjölbreytt starfsemi kynnt Vordagar Landspítala – háskólasjúkrahúss í fyrsta sinn Á AÐALFUNDI Íslandsdeildar Amnesty International nýlega var skipuð ný stjórn deildarinnar. Huld Magnúsdóttir, kynningar- og gæðastjóri, er formaður deild- arinnar, aðrir stjórnarmenn eru Hafdís Ingadóttir BA í mannfræði, Kristín J. Kristjánsdóttir viðskipta- fræðingur, Erlendur Lárusson tryggingafræðingur, Viðar Lúðvíks- son héraðsdómslögmaður, Sólveig Hlín Kristjánsdóttir háskólanemi og María Vigdís Kristjánsdóttir kennari. Framkvæmdastjóri deild- arinnar er Jóhanna K. Eyjólfsdóttir mannfræðingur. Íslandsdeild Amnesty Internatio- nal er hluti alþjóðlegrar hreyfingar fólks sem stendur vörð um mann- réttindi. Samtökin vinna að því að mannréttindum eins og þau eru sett fram í mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna sé framfylgt. Á fundinum var samþykkt áætlun sem byggist á grundvallarviðmiðum samtakanna, sem eru: Alþjóðleg samstaða, árangursríkar aðgerðir í þágu fórnarlamba mannréttinda- brota, alþjóðleg umfjöllun, algildi og órjúfanleiki mannréttinda, hlut- leysi og sjálfstæði, lýðræði og gagn- kvæm virðing. Ný stjórn kjörin Íslandsdeild Amnesty International FASTEIGNIR mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.