Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 72
ÍSLENDINGAFÉLÖG 72 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁRSÞING Þjóðræknisfélags Ís- lendinga í Vesturheimi var haldið í Vancouver í Kanada síðustu helgina í apríl. Þingfulltrúar voru um 80 tals- ins frá 16 Íslendingafélögum í Kan- ada, Bandaríkjunum og Þjóðræknis- félaginu á Íslandi. Aðalmál þingsins var undirbúningur að frekari eflingu heildarsamtaka allra Íslendinga- félaga í Vesturheimi og er stefnt að því að næsta þing Þjóðræknisfélags- ins, sem haldið verður í Minneapolis í Bandaríkjunum á næsta ári, marki tímamót varðandi sameiningarferlið. Í október sl. undirrituðu Sigrid Johnson, forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi, Jón Sig. Guðmundsson fyrir hönd Þjóðræknisfélagsins í Bandaríkjun- um og Markús Örn Antonsson, for- maður Þjóðræknisfélagsins á Íslandi, viljayfirlýsingu um nánari samvinnu allra Íslendingafélaga í Norður-Am- eríku með aðild Þjóðræknisfélagsins á Íslandi. Hefur málinu verið fylgt eftir í samtölum við forystumenn félaganna og er gert ráð fyrir að Þjóðræknisfélagið á Íslandi gegni þýðingarmiklu samræmingarhlut- verki og þjónustu við heildarsamtök- in í framtíðinni. Á ársþinginu í Vancouver gerði Markús Örn Antonsson grein fyrir störfum Þjóðræknisfélagsins á Ís- landi, sem hefur á stefnuskrá sinni að stuðla að reglubundnum menningar- samskiptum milli Íslands og Íslend- ingabyggða í Vesturheimi, m.a. með gagnkvæmum heimsóknum lista- manna og fyrirlesara, útgáfumálum, stuðningi við bókasöfn Íslendinga- félaganna vestanhafs og upplýsinga- þjónustu á skrifstofu félagsins í Reykjavík. Kristín Ólafsdóttir, sem starfað hefur á alþjóðasviði skrifstofu Alþingis, mun taka við starfi skrif- stofustjóra innan skamms. Skrifstofa Þjóðræknisfélagsins er rekin með til- styrk utanríkisráðuneytisins og í samvinnu við það. Fram komu sér- stakar þakkir til Halldórs Ásgríms- sonar utanríkisráðherra, fyrir þann mikla áhuga sem hann hefur sýnt auknu samstarfi þjóðræknisfélag- anna í Vesturheimi og á Íslandi. Almar Grímsson, formaður stjórn- ar Snorra-sjóðsins, skýrði frá ung- mennaskiptum sem sjóðurinn annast fyrir hönd Þjóðræknisfélagsins á Ís- landi og Norræna félagsins. Sjóður- inn hefur undanfarin tvö sumur styrkt alls 32 námsmenn af íslensk- um ættum frá Kanada og Bandaríkj- unum til sex vikna dvalar á Íslandi. Fimmtán til viðbótar munu koma hingað í sumar og stefnt er að því að gefa íslensku námsfólki kost á sam- svarandi sumardvöl í Íslendinga- byggðum í Kanada. Rúmlega 2000 manns eru starfandi í félögum og deildum innan Þjóð- ræknisfélags Íslendinga í Vestur- heimi. Á þinginu gengu félög Vestur- Íslendinga í Minneapolis og Victoria í British Columbia í samtökin. Mikil umræða fór fram um framtíðarstarf félaganna, endurnýjun þeirra og öfl- un nýrra félagsmanna. Árið 2000 var mjög uppbyggjandi fyrir félögin vegna margvíslegra viðburða, sem ís- lensk stjórnvöld stóðu að í tilefni af árþúsundaskiptum og landafundahá- tíð. Fram kom eindreginn vilji til að virkja hinn mikla áhuga sem skap- aðist af því tilefni til styrkingar félagsstarfi Vestur-Íslendinga og samskiptum við Ísland. Á þinginu voru Hjálmar W. Hann- esson, sendiherra Íslands í Ottawa, og Eiður Guðnason, aðalræðismaður í Winnipeg. Flutti sendiherrann há- tíðarræðu, þar sem hann lýsti hinum margvíslegu samskiptum, sem þróast hafa í tímans rás milli Kanada og Íslands á sviði varnarmála, sam- gangna, viðskipta og menningar- mála. Hin sérstöku tengsl milli Ís- lands og Vestur-Íslendinga yrðu forgangsverkefni hjá sendiráðinu og skrifstofu aðalræðismannsins í Winnipeg. Rúmlega 80 þingfulltrúar frá 16 félagsdeildum innan Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi og Þjóðrækn- isfélagsins á Íslandi sóttu ársþingið, sem haldið var í Vancouver síðustu helgina í apríl. Heildarsamtök allra Íslendingafélaga í Vesturheimi efld Sigrid Johnson, forseti Þjóðræknisfélagsins í Vesturheimi, ásamt forystumönnum tveggja Íslendingafélaga, sem gengu í samtökin á þinginu, þeim Haraldi Bjarnasyni í Vancouver (t.v.) og Fred Bjarnason frá Victoria. Hjálmar W. Hannesson sendiherra afhendir Fred Bjarnason f.h. félags- ins í Victoria enska útgáfu Íslendingasagna, sem var þjóðargjöf Íslend- inga til bókasafna og stofnana vestanhafs í tilefni af landafundaári. Með þeim á myndinni er Ray Johnson, fyrrv. formaður Þjóðræknisfélagsins í Vesturheimi, sem hefur annast afhendingu þjóðargjafarinnar. Fulltrúar íslensku utanríkisþjónustunnar í Kanada: Eiður Guðnason, aðalræðismaður í Winnipeg, Heather Alda Ire- land, ræðismaður í Vancouver, og Hjálmar W. Hannesson, sendiherra í Ottawa. Höfundur er útvarpsstjóri og formaður Þjóðræknisfélagsins á Íslandi. Markús Örn Antonsson afhenti Óla Leifssyni, formanni Ís- lendingafélagsins í British Columbia, bókagjöf frá Þjóð- ræknisfélaginu á Íslandi og bókaútgáfunni Eddu. Stefnuskrá Þjóðræknisfélagsins er, segir Markús Örn Antonsson, að stuðla að reglu- bundnum menningarsamskiptum milli Ís- lands og Íslendingabyggða í Vesturheimi. Klapparstíg 44, sími 562 3614 Pipar og salt kvarnir, mikið úrval Vorfagnaður Þýsk-íslenska vinafélagsins á Suðurlandi verður haldinn föstudaginn 18. maí nk. í gamla samkomuhúsinu að Minni-Borg í Grímsnesinu. Húsið opnar kl. 19:30, borðhald hefst kl. 20:30. Boðið verður upp á Spatzel. Jón Bjarnason mun sjá um skemmtiatriði og leika fyrir dansi eftir borðhald. Miðaverð er 1.800 kr. Þýsk - íslenska vinafélagið á Suðurlandi Þátttaka tilkynnist fyrir 14. maí til Magnúsar s. 551 2501, Georgs s. 486 8933 eða Ragnheiðar s. 554 2030, allt eftir kl. 19.00. Hittumst hress og takið með ykkur gesti. Stjórnin Bankastræti 3, sími 551 3635 Póstkröfusendum Lífrænar jurtasnyrtivörur Hálskremið — hálskremið BIODROGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.