Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 68
UMRÆÐAN 68 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ HIN hörmulegu slys sem orðið hafa í um- ferðinni á undanförn- um árum og mánuðum má að miklu leyti rekja til þess vanda að öku- menn virða ekki settar umferðarreglur og komast upp með það í allt of miklum mæli, þó að nokkurt átak hafi verið gert til að sporna við þessari ógnvæn- legu þróun í umferð- inni. Því er ljóst að betur þarf að gera með auk- inni löggæslu og sam- hliða þarf að herða viðurlög við þeim brotum sem valda hvað mestum slysum og hættu í umferðinni. Í því sambandi má nefna sérstak- lega ölvunar- og hraðakstur. Samhliða þarf að stytta og ein- falda vinnuferli þessara brota sem og innheimtuferlið sem er afar flók- ið og þarfnast því endurskoðunar við sem vonandi verður gert í vænt- anlegu frumvarpi til breytingar á umferðarlögum. Ljóst er að ef ökumenn komast ekki upp með gróf brot í umferðinni vegna öfl- ugrar löggæslu og hertra viðurlaga, þá veigra þeir sér við að bjóða samborgurum sínum upp á slíkt fram- ferði í umferðinni. Einnig þarf að efla fræðslu og forvarnar- starf er varðar umferð- armál ekki síður en í öðrum forvörnum og fylgja síðan málinu eft- ir með markvissri fræðslu þegar kemur að bílprófsaldri. Ég er þess fullviss að megin þorri ungmenna er mót- tækilegur varðandi frekari fræðslu um umferðarmál sem og þann þátt hversu mikil ábyrgð er lögð á herðar þeim þegar þau öðlast bílpróf og fá ökutæki í hendur. Þessa þætti þarf að vera búið að grunnvinna áður en kemur að æf- inga- og ökukennslu svo sú kennsla nýtist nemendum sem best. Öll fræðsla verður að vera mark- viss og sýna fram á það í reynd hversu alvarleg slys geta hlotist af kæruleysi og töffaraskap í umferð- inni sem allt of mörg ungmenni temja sér fyrstu ár ökuferils síns. Árangur af slíkri fræðslu og kennslu verður lítill nema að lög- gæslan verði samhliða efld sem og viðurlög hert fyrir gróf umferðar- brot, eins og fyrr segir, því visst að- hald verður jafnframt að vera til staðar. Hverjum ökumanni þarf að vera ljóst að fari hann ekki eftir settum reglum í umferðinni verður hann fyrr eða síðar fyrir því að fá háar sektir og jafnvel ökuleyfissviptingu til lengri eða skemmri tíma. Gera þarf eiganda hvers ökutækis ábyrgari fyrir þeim ökumanni sem hann lánar ökutæki sitt, t.d. með því að hægt verði að gera fjárnám í því ökutæki sem brot er framið á varð- andi vissa brotaflokka verði sektin ekki greidd innan tilskilins tíma. Þetta myndi jafnframt skapa meira aðhald gagnvart eigendum ökutækja er varðar eigendaskipti og margt fleira. Herða þarf reglur um bráða- birgðaökuskírteini, þannig að þeir ökumenn sem gerast ítrekað brot- legir á tímabilinu verði að fara í strangt endurhæfingarnám og síðan próf til að öðlast fullnaðarskírteini. Nýta þarf í auknum mæli nýjustu tækni til að sporna við brotum í um- ferðinni, t.d. með myndavélum á stofnbrautum gegn hraðakstri sem og við brotum á akstri gegn rauðu ljósi, stöðvunarskyldu og fleiri brot- um. Aukin fjárveiting sem sett yrði í ofangreinda þætti og úrbætur sem og til að bæta starfsumverfi lög- reglumanna, því slíkt vinnst ekki nema með mjög hæfum og reyndum löggæslumönnum samhliða efldu forvarnarstarfi, eru smáaurar mið- að við það framlag sem á móti kæmi til allra þjóðfélagsþegna þessa lands. Þar á ég við verulega fækkun slysa í umferðinni, tjón á ökutækj- um og eins myndi aukin löggæsla draga úr afbrotum almennt á öðrum sviðum. Þá á eftir að nefna alla þá sorg og þær þjáningar sem þessum slysum fylgja og því miður grúfir yfir hjá svo mörgum fjölskyldum og enginn veit hver verður næstur fyrir barðinu á þeim hörmungum sem slíku fylgir haldi þessi þróun áfram. Það hefur margsannað sig og sýnt hvað aukin löggæsla hefur mikil áhrif til betri vegar gagnvart öllu hegðunarmynstri ökumanna og hvað það skilar sér fljótt í fækkun umferðarslysa og í tjónum. Varðandi aukna umferðarlög- gæslu væri hagkvæmast að efla lög- gæsluna á Reykjavíkursvæðinu sem jafnframt væri hægt að senda þess á milli út á þjóðvegi landsins þegar umferð eykst á vissum svæðum, þ.e. til að efla og styrkja staðbundna löggæslu sem fyrir er á viðkomandi svæði. Að sjálfsögðu verður löggæsla ut- an Reykjavíkur að vera fyllilega í stakk búin til að geta sinnt öflugri löggæslu almennt, en það yrði þó hagkvæmara að efla löggæsluna þess á milli við aukna umferð og fleiri þætti með löggæslumönnum úr Reykjavík sem sinntu þess á milli öflugu löggæslustarfi á höfuðborg- arsvæðinu þegar umferð er þar hvað mest og annað álag. Þótt verið sé að gera úrbætur í vega- og umferðarmannvirkjum, t.d. með mislægum gatnamótum og fleiru sem vonandi verður framhald á, hefur það sýnt sig að umferðar- hraðinn hefur tilhneigingu til að aukast á vissum svæðum við þessar annars þörfu úrbætur og því þarf ekki síður en áður að vera þar með öfluga löggæslu. Vissulega draga þessar úrbætur úr slysahættu, en þó má ekki loka augunum fyrir ofangreindum stað- reyndum eins og staðan er í dag. Í því sambandi má nefna Reykja- nesbrautina (Keflavíkurveginn). Þótt brautin verði breikkuð í fjór- ar akreinar sem er mjög þarft verk verður slysahætta þar áfram til staðar, því hálka og slæm aksturs- skilyrði verða áfram á brautinni við vissar aðstæður sem víðar og slysa- hættan eykst eftir því sem hraðinn verður meiri. Við því verður að sporna og það verður ekki gert nema með öflugri löggæslu ef ekki á illa að fara. Vonandi koma þeir tímar að allir sem í umferðinni eru, jafnt konur sem karlar, ungir sem aldnir, beri gæfu til að virða hver annan betur og fari að settum reglum og með því hugarfari megi fækki slysum og óhöppum í umferðinni. Það getum við gert ef vilji er fyrir hendi með samhentu átaki og hug- arfarsbreytingu, því öll viljum við koma heil heim. Tekið skal fram að þessar skoð- anir sem hér eru settar á blað eru mínar persónulegu skoðanir er varða þarfar úrbætur í umferðar- málum og fleiru. Öflug löggæsla – aukið umferðaröryggi Ómar G. Jónsson Forvarnir Fljótvirkasta leiðin til að sporna við umferð- arslysum er að mati Ómars G. Jónssonar að efla löggæslu og fræðslu meðal ungra ökumanna. Höfundur er lögreglufulltrúi í Reykjavík. Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata Kópavogi Þakrennur og rör úr Plastisol- vörðu stáli. Heildarlausn á þakrennuvörnum í mörgum litum. Geisladiskahulstur aðeins 500 kr. NETVERSLUN Á mbl.is Golfkúlur 3 stk. í pakka aðeins 850 kr. NETVERSLUN Á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.