Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 31
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 31
Lífgaðu daufan háralit um
leið og þú þværð hárið
Haltu réttum lit og gljáa á lituðu hári. Láttu gráu hárin
hverfa. Lýstu hárið ögn eða dekktu það smávegis.
Sérfræðingar Origins hafa hannað litunarefni blönduð
hressandi og hreinsandi jurtatei til að styrkja og glæða
háralit sem farinn er að dofna. Sé sjampóið notað
reglulega verður liturinn dýpri og fyllri.
Felur gránaða rót. Engin mislitun. Og engin
binding, því þegar þú ferð aftur að nota
venjulegt sjampó þvæst liturinn
úr eins eðlilega og hann þvæst í.
Útsölustaðir:
Apótek Keflavíkur, Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáratorgi, Hagkaup Spönginni,
Lyf og heilsa Austurstræti, Lyf og heilsa Kringlunni, Lyf og heilsa Melhaga,
Lyf og heilsa Hafnarstræti, Akureyri.
UNDANFARNA daga hefur beitu-
smokki fyrir Netasöluna verið land-
að úr frystiskipinu Seafrost í Hafn-
arfirði, en að sögn Daníels
Þórarinssonar, framkvæmdastjóra
og eiganda Netasölunnar, kom skip-
ið með um 1.000 tonn fyrir fyrirtækið
að þessu sinni.
Fyrir helgi landaði skipið í Þor-
lákshöfn og þá fékk Dímon um 1.400
tonn og Netasalan um 140 tonn en
Daníel segir að hluti farmsins úr öft-
ustu lest hafi verið tekinn þar að
beiðni skipstjórans til að skipið yrði
ekki eins afturþungt.
Daníel segir að beitusmokkurinn
fari ýmist beint til viðskiptavina eða í
frystigeymslur í Hafnarfirði þar sem
fyrirtækið hafi verið í góðri sam-
vinnu við Eimskip undanfarin ár.
Netasalan á von á öðrum farmi
fljótlega, m.a. sandsíli, en Seafrost,
sem er um 7.000 brúttólestir og 135
metra langt, kom líka beint af mið-
unum í Suður-Atlantshafi í fyrra.
Helstu viðskiptavinir Netasölunnar
eru í Grindavík og þar kaupir Þor-
björn-Fiskanes mest, að sögn Daní-
els.
Netasalan fær um 1.000
tonn af beitusmokki
Morgunblaðið/Golli
Seafrost, sem er um 7.000 brúttólestir og 135 metra langt, hefur landað
smokkfiski í Hafnarfirði undanfarna daga fyrir Netasöluna.
NÆRRI tvö hundruð manns hafa
skráð sig á öryggisfræðslunámskeið
hjá Slysavarnaskóla sjómanna frá
því að sjómannaverkfallið hófst fyrir
nærri sex vikum og hefur verið full-
bókað á öll námskeið. Hilmar
Snorrason, skólastjóri Slysavarna-
skólans, segir að svo virðist sem
margir sjómenn eigi enn eftir að
sækja námskeið skólans en þeim er
nú skylt að ljúka öryggisfræðslu-
námskeiðum, samkvæmt lögskrán-
ingalögum sjómanna.
Að sögn Hilmars hafa um 180
manns skráð sig á námskeið hjá skól-
anum og hefur verið fullbókað á öll
námskeið að undanförnu. Hinn 1.
apríl sl. tóku gildi ákvæði lögskrán-
ingalaga sjómanna sem kveða á um
að ekki megi skrá sjómann á skip
nema að hann hafi lokið tilskilinni ör-
yggisfræðslu.
„Það hafa margir sjómenn viljað
koma á námskeið í verkfallinu en við
getum hins vegar aðeins tekið við
takmörkuðum fjölda í einu. Auk þess
hafa margir sjómenn skráð sig á
námskeið hjá okkur í verkfallinu.
Þar er um að ræða menn sem í raun
hefðu getað verið búnir að taka nám-
skeið eða skráð sig á þau fyrir löngu
en hafa trassað það einhverra hluta
vegna. Hér hafa hringt sjómenn sem
hafa verið jafnvel áratugi til sjós en
eru fyrst að láta heyra í sér núna um
að þeir þurfi á öryggisfræðslunám-
skeið. Við höfum rekið mikinn áróð-
ur fyrir öryggismálum sjómanna á
undanförnum árum í öllum fjölmiðl-
um landsins og maður veltir því fyrir
sér hvers vegna þessir menn hafi
ekki skráð sig fyrr.“
Hilmar segir að allt frá því í fyrra
vor og þar til í vetur hafi gengið illa
að manna námskeið í skólanum. „Við
þurftum meðal annars að fella niður
námskeið vegna þess að við fengum
ekki næga þátttöku. Menn skráðu
sig á námskeið en skiluðu sér ekki
þegar að því var komið. Dæmi eru
þess að allt að fjörutíu manns hafi
óskað eftir að fá að komast á tiltekið
námskeið en þegar til kom mættu
aðeins níu.“
Hilmar nefnir einnig sem dæmi að
þegar verkfall sjómanna skall á hinn
15. mars sl. hafi 25 sjómenn byrjað á
námskeiði í skólanum. Þegar verk-
fallinu var hins vegar frestað hafi
meira en helmingur þátttakenda
hætt á námskeiðinu. „Öryggis-
fræðslan hafði ekki forgang hjá
mönnum og þó voru lögin um það bil
að taka gildi.“
Sæbjörgin fer ekki um landið
fyrr en í haust
Öryggisfræðslunámskeiðin eru
haldin allt árið og stendur hvert
námskeið í 5 daga. Hilmar segir að
Sæbjörgin verði úti á landi í sept-
ember og þá verði haldin námskeið á
landsbyggðinni. „Ástæðan fyrir því
að við förum ekki af stað fyrr en í
haust er einfaldlega sú að þátttakan
úti á landi var afskaplega dræm síð-
astliðið sumar. Það var mjög erfitt að
fá nemendur á námskeiðin, jafnvel
þótt við komum með skólann nánast
heim að dyrum hjá þeim. Þessi
dræma þátttaka benti til þess að
flestir sjómenn á landinu væru þegar
búnir að sækja hjá okkur þessi frum-
fræðslunámskeið. En núna hafa
nærri 200 manns skráð sig á nám-
skeiðin, þannig að það eru greinilega
margir sem enn eiga eftir að sækja
sér þessa fræðslu. Menn komast
ekki lengur upp með að láta öryggis-
málin sitja á hakanum. Það á svo eft-
ir að koma í ljós hvort menn skila sér
á námskeiðin þegar verkfallið leys-
ist,“ segir Hilmar.
Mikil aðsókn í Slysavarnaskóla sjómanna í verkfallinu
Morgunblaðið/Þorkell
Einar Örn Jónsson leiðbeinir nemendum á öryggisfræðslunámskeiði skólans í gær.
Nærri 200 manns
skráð sig á námskeið