Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 81
DAGBÓK
strets-
gallabuxur
tískuverslun
v. Nesveg, Seltjarnarnesi.
Sími 561 1680.
Ný snyrtistofa
Hef opnað snyrtistofu í
Silfurtunglinu,
Skipasundi 51, v/Holtaveg,
sími 588 7088, gsm 691 0381 Kristín B. Hallbjörnsdóttir.
Laugavegi 54 - Sími 25201
Gallajakkar frá 3.990
Gallaskokkar frá 2.990
Gallabuxur frá 4.990
stærðir 36-44
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert á margan hátt sér-
stakur og það dregur fólk að
þér, en stundum ertu of upp-
tekinn af sjálfum þér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú getur ekki látið ótta við
það óþekkta halda aftur af
þér um alla eilífð. Þú ert vel í
stakk búinn og átt að geta
tekist óhræddur á við lífið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gættu þess að draga ekki
ályktanir af ófullkomnum
staðreyndum. Gefðu þér tíma
til þess að kynna þér mál og
þá verður framkvæmdin ár-
angursrík og örugg.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Má vera að þú hafir ekki nóg
fyrir stafni og þurfir því að
velja þér viðameiri viðfangs-
efni. Af þeim er nóg svo það
er ekki eftir neinu að bíða.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Finnist þér samband þitt og
vina þinna vera orðið ein-
stefna skaltu tala við þá og
gera þeim grein fyrir því að
þú gerir kröfur til þeirra líka.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Finnist þér þú vera eitthvað
slappur þessa dagana ættirðu
að taka heilsu þína til endur-
skoðunar. Mörgu má nefni-
lega breyta með lítilli fyrir-
höfn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þótt öllum séu sett einhver
takmörk myndi fátt gerast ef
enginn freistaði þess að
komast örlítið lengra. Og svo
aðeins lengra og aðeins
lengra.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu ekki að berja aðra til
hlýðni við skoðanir þínar. Það
kallar bara á mótþróa. Sýndu
virðingu og lipurð og leyfðu
öðrum að gera upp sinn hug.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er gott að eiga vin, sem
óhætt er að ræða við sín
hjartans mál. En þú þarft að
vera tilbúinn til að hlusta á
vininn þegar hann þarfnast
þín.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Láttu þér ekki bregða þótt
sviðsljósið beinist að þér. Þú
hefur til þess unnið og mátt
njóta þess ef þú lætur það
ekki stíga þér til höfuðs.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er svolítið hastarlegt að
uppgötva það að hafa leitað
lausnarinnar yfir lækinn,
þegar hún var allan tímann
við hendina. En betra en
ekki.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Leyfðu bjartsýni þinni að
ráða ferðinni. Þótt margir
hjallar virðist í veginum, eru
þeir bara til sigrast á. Þú hef-
ur alla burði til þess.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefðir gott af því að kom-
ast afsíðis og velta fyrir þér
lífinu og tilverunni. Umfram
allt þarft þú að forðast fljót-
færni, sem þér hættir til.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
UM DAUÐANS ÓVISSAN
TÍMA
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði,
líf mannlegt endar skjótt.
Svo hleypur æskan unga
óvissa dauðans leið
sem aldur og ellin þunga,
allt rennur sama skeið.
Innsigli engir fengu
upp á lífsstunda bið,
en þann kost undir gengu
allir að skilja við.
Dauðinn má svo með sanni
samlíkjast, þykir mér,
slyngum þeim sláttumanni,
er slær allt hvað fyrir er;
grösin og jurtir grænar,
glóandi blómstrið frítt,
reyr, stör sem rósir vænar
reiknar hann jafnfánýtt.
Hallgrímur Pétursson
TOMMY Gullberg og Lars
Andersson fundu fallega
vörn gegn fjórum spöðum
Marcins Lesniewski í keppni
sænska landsliðshópsins við
þann pólska, sem fram fór í
síðasta mánuði. Gullberg var
í vestur og hugsaði vörnina
rökrétt frá byrjun:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ KG9653
♥ ÁG8
♦ 109
♣ K5
Vestur Austur
♠ Á ♠ D842
♥ 543 ♥ D1096
♦ G7653 ♦ 82
♣Á963 ♣1042
Suður
♠ 107
♥ K72
♦ ÁKD4
♣DG87
Vestur Norður Austur Suður
Gullberg Martens Andersson Lesniewski
-- -- -- 1 grand
Pass 2 hjörtu * Pass 2 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
* yfirfærsla í spaða
Með því að yfirfæra fyrst á
öðru þrepi og stökkva svo í
fjóra spaða, var Martens að
gefa makker milda áskorun í
slemmu. Lesniwski hafði
auðvitað engan slemmu-
áhuga með lágmarksgrand
og tvíspil í spaða.
Þegar boðið er upp í
slemmu og stansað í geimi er
vörnin yfirleitt heldur von-
dauf um að fá töluna. A.m.k.
þarf eitthvarð sérstakt að
koma til. Gullberg hélt á
tveimur ásum og sá helstu
vonina í því að byggja upp
stungu hjá makker – hann
kom því út með smáan tígul
frá lengsta lit. Lesniewski
átti slaginn í borði og spilaði
spaða á tíuna og ás Gull-
bergs. Þessi byrjun reyndist
afdrifarík. Gullberg hélt
áfram með tígul og þegar
Andersson komst inn á
spaðadrottningu, spilaði
hann makker inn á laufás og
fékk tígul í þriðja sinn. Blind-
ur átti hæsta spaða, níuna, en
Andersson áttuna staka á
eftir, sem hlaut að verða að
slag.
Lesniewski var ónáængur
með sjálfan sig, því hann sá
að hann hefði átt að taka
fyrsta slaginn heima og spila
spaðasjöunni að blindum. Þá
hefði ás vesturs slegið vind-
högg og trompuppfærslan
þar með úr sögunni.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Árnað heilla
90 ÁRA afmæli. Ámorgun föstudaginn
11. maí verður níræður
Höskuldur Bjarnason frá
Burstafelli á Drangsnesi,
nú til heimilis á Dvalar-
heimili aldraðra sjómanna
á Hrafnistu í Reykjavík. Af
því tilefni ætla hann og kona
hans, Anna Guðrún Hall-
dórsdóttir, að taka á móti
ættingjum og vinum í
félagsheimilinu Baldri á
Drangsnesi laugardaginn
12. maí, frá kl. 16-19. Gjafir
eru vinsamlegast afþakkað-
ar, en þeim sem vilja gleðja
hann er bent á Sundlaugar-
sjóðinn á Drangsnesi. (Kt:
68016-9719, reiknisnúmer:
650151, í Búnaðarbankanum
á Hólmavík.)
90 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 10.
maí, verður níræður Þórar-
inn Brynjólfsson, fyrrv. vél-
stjóri frá Dýrafirði, nú bú-
settur í Þverbrekku 4,
Kópavogi. Hann tekur á
móti gestum sunnudaginn
13. maí nk. í safnaðarheimili
Kársnessóknar, Borgum í
Kópavogi, frá kl. 15.30-18.
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 10.
maí, verður áttræður Oddur
Geirsson, pípulagninga-
meistari, Holtagerði 64,
Kópavogi. Hann heldur upp
á daginn í faðmi fjölskyld-
unnar.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 10.
maí, verður fimmtugur
Herluf Már Melsen, fram-
kvæmdastjóri Smurþjón-
ustunnar, Skipholti 60,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Sveinfríður Þorvarðar-
dóttir. Hann er að heiman á
afmælisdaginn.
DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag, fimmtudaginn 10. maí, eiga
60 ára hjúskaparafmæli hjónin Hólmfríður Löve og Þor-
steinn C. Löve, múrarameistari, Miðtúni 20, Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Björk Jónsdóttir og Jón
Sigurbjörnsson Íslandsmeist-
arar í paratvímenningi
Hjónin Björk Jónsdóttir og Jón
Sigurbjörnsson sigruðu með fá-
dæma yfirburðum í Íslandsmótinu í
paratvímenningi sem spilað var í
Verkmenntaskólanum á Akureyri
um síðustu helgi. 44 pör tóku þátt í
mótinu sem fór vel fram í alla staði
undir stjórn Antons Haraldssonar.
Lokastaðan:
Björk Jónsdóttir - Jón Sigurbjörnss. 359
Bryndís Þorsteinsd - Ómar Olgeirss. 227
Una Sveinsdóttir - Pétur Guðjónss. 223
Jacqui McGreal - Böðvar Magnúss. 202
María Haraldsd. - Bjarni H. Einarss. 178
Hrafnhildur Skúlad. - Jörundur Þórðars.175
Soffía Guðmundsd. - Eiríkur Hjaltas. 170
Spilakvöld Bridsskólans og BSÍ
Mánudaginn 7. maí mættu 17 pör.
Spilaður var Mitchell, 18 spil.
Lokastaðan var þessi:
NS-riðill:
Ragnheiður Bragad. - Ásta Ástþórsd. 173
Páll Guðmundss. - Kristinn Péturss. 158
Svava Jónsd. - Kristján Nielsen 158
AV-riðill:
Sturlaugur Eyjólfss. - Birna Lárusd. 167
Dúfa Ólafsd. - Jóhannes Jónss. 155
Jórunn Kristinsd. - Stefán Óskarss. 153
Síðasta spilakvöld vetrarins verð-
ur mánudaginn 14. maí. Spilað er í
Þönglabakka 1, 3. hæð og hefst
spilamennska kl. 20. Allir velkomnir.
Bridsfélag Akraness
Starfið í vetur var með hefð-
bundnu sniði og þátttaka með ágæt-
um.
12. október hófst 5 kvölda tví-
menningskeppni þar sem 3 bestu
kvöldin giltu, sigurvegarar þar urðu
þeir Alfreð Viktorsson og Stefán Jó-
hannsson.
23. nóvember hófst hraðsveita-
keppni, spilaðir voru 10 spila leikir
og tvöföld umferð, 6 sveitir tóku þátt
og það var sveit Inga Steinars Gunn-
laugssonar sem bar sigur úr býtum,
sveitina skipuðu: Ingi Steinar Gunn-
laugsson, Ólafur G. Ólafsson, Alfreð
Viktorsson, Stefán Jóhannsson og
Guðjón Guðmundsson.
11. janúar hófst Akranesmót í
sveitakeppni, spilaðir voru 2 16 spila
leikir á kvöldi og tvöföld umferð, 9
sveitir tóku þátt, sveit Árna Braga-
sonar hreppti titilinn að þessu sinni
með 344 stig, í 2. sæti varð sveit Al-
freðs Viktorssonar með 323 stig og í
3. sæti lenti sveit Tryggva Bjarna-
sonar með 313 stig. Sigursveitina
skipuðu: Árni Bragason, Erlingur
Einarsson, Guðmundur Magnússon,
Ólafur Þ. Jóhannsson, Kristinn Þór-
isson og Þorsteinn Jóensson.
22. mars hófst Akranesmótið í tví-
menningi, spilaður var Barómeter
og tvöföld umferð, 20 pör tóku þátt,
mótinu lauk 3. maí með sigri Árna
Bragasonar og Erlings Einarssonar
með 235 stig í 2. sæti urðu Guðmund-
ur Ólafsson og Hallgrímur Rögn-
valdsson með 215 stig og í 3. sæti
komu þeir Alfreð Viktorsson og
Þórður Elíasson með 191 stig.
Þar að auki voru 5 eins kvölds tví-
menningar og var þátttakan frá 10
og uppí 14 pör á kvöldi.
Hinn 28. apríl sá félagið um
Vesturlandsmótið í tvímenningi, 22
pör mættu til leiks, spilaður var
Barómeter, 3 spil á milli para, alls 63
spil, þeir Sveinbjörn Eyjólfsson og
Höskuldur Gunnarsson sigruðu og
hlutu alls 87 stig, í 2. sæti urðu Árni
Bragason og Erlingur Einarsson
með 81 stig og í því 3. lentu Hreinn
Björnsson og Sigurður Tómasson
með 69 stig.
Vetrarstarfinu lýkur síðan 18. maí
með tvímenningi sem er öllum opinn.
Spilað verður á Breiðinni, Bárugötu
15 hér í bæ og hefst kl. 19.30.
Bikarkeppni BSÍ 2001
Árleg bikarkeppni Bridssam-
bandsins er nú komin í farvatnið og
er skráning hafin.
Skráningarfrestur rennur út
föstudaginn 25. maí kl. 16.00 en
dregið verður í 1. umferð þá um
kvöldið. Keppnisgjald er kr. 4.000
fyrir hverja umferð.
Síðasti spiladagur hverrar um-
ferðar:
1. umferð sunnudagur 24. júní
2. umferð sunnudagur 22. júlí
3. umferð sunnudagur 19. ágúst
4. umferð sunnudagur 16. sept.
Undanúrslit og úrslit verða spiluð
29.–30. september.
Skráning í bikarkeppnina er í s.
587 9360 eða bridge@bridge.is og
eru spilarar hvattir til að tilkynna
þátttöku fyrr en seinna. Af gefnu til-
efni skal á það minnt að það er mik-
ilvægt að sveitafélagar tali sig saman
um hver sjái um skráningu þannig að
enginn misskilningur sé.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning mánudaginn 7. maí.
Miðlungur var 168. Bestum árangri
náðu:
NS
Sverrir Gunnarsson – Einar Markúss. 201
Viðar Jónsson – Sigurþór Halldórsson 196
Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnlaugss. 188
AV
Bragi Melax – Andrés Bertelsson 186
Unnur Jónsdóttir – Sigrún Sigurðard. 186
Auðunn Bergsv. – Sigurður Björnss. 182
Eldri borgarar spila brids í Gull-
smára 13 mánudaga og fimmtudaga.
Mæting kl. 12.45 á hádegi.