Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 71
SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 71 Opinn kynningarfundur föstudaginn 11. maí í Borgartúni 6 frá kl. 13.00 - 17.00 Nordic Interactive - samstarf um notkun og þróun á gagnvirkri upplýsingatækni: Preben Mejer, Tele Danmark Norrænir tengiliðir við Nordic Interactive: Morten Kyng, The National Danish Centre for IT Research, Danmörku - Kenneth Olausson, The Interactive Institute, Svíþjóð - Phillip Dean, UIAH Media Lab, Finnlandi - Research Hilde Lovett, Telenor, Noregi Íslenskir frummælendur: Dr. Rögnvaldur Ólafsson, dósent Háskóla Íslands: Tungutækniáætlun menntamálaráðuneytisins Snæbjörn Kristjánsson, RANNÍS: Markáætlun um upplýsingatækni og umhverfismál Aðgangur ókeypis. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til rannis@rannis.is „Nordic Interactive“ - Norrænt netverk um notkun og þróun á gagnvirkum upplýsingatæknikerfum Rannsóknarráð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, sími 515 5800, bréfsími 552 9814, netfang rannis@rannis.is, heimasíða http//www.rannis.is „EINHVERN tíma fyrir 1933 kom roskin kona og hringdi dyra- bjöllunni heima hjá mér. Hún vildi endilega selja mér bækling sem fjallaði um yfirvofandi heimsendi en ég af- þakkaði boðið þar sem ég taldi áhyggjur henn- ar ótímabærar,“ segir Margareta Buber- Neumann. Margir aðr- ir gætu sagt svipaða sögu. En saga Buber er sérstök af því að tæp- um tíu árum síðar átti hún sjálf eftir að koma til votta Jehóva — og það á stað sem hún hefði ekki getað ímyndað sér ár- ið 1933 að að hún ætti eftir að lenda á. Margareta Buber er þá fangi í fangabúðunum í Ravensbrück og sem skálafyrirliði kemur hún inn í sérstakan heim sem er frábrugðinn fangabúðalífinu almennt. Í skálanum eru vottar Jehóva og þessar konur lifa allt öðruvísi lífi en venjan er í fangabúðum. „Í skála 3 hófst furðu- legur kafli í lífi mínu. Hjá andfélags- legu föngunum hafði hver einasta mínúta dagsins verið upptekin af einhverjum skyldustörfum eða af ótta við einhver vandræði. Hjá vott- unum fannst mér ég hafa himin höndum tekið, í skálanum fór allt fram með nákvæmni og áreiðanleika klukkunnar. Verkefni mitt fólst í því að reyna að gera líf þessara 300 kvenna sem bærilegast á meðan á skálavistinni stóð, koma í veg fyrir að SS-skálavörðurinn væri með áreitni og gæta einstaklingsbund- inna hagsmuna fanganna. ... [Vott- arnir] voru þeir einu meðal fanganna sem höfðu með sér lokað samfélag grundvallað á sameiginlegri trú og sannfæringu. ... Þegar ég kom í skála 3 hafði ég litla sem enga hugmynd um hvað fælist í trúarsannfæringu þeirra né heldur hvers vegna Hitler leit á þá sem óvini ríkisins og var uppsigað við þá.“ SS-verðirnir gátu sent vottana út fyrir búðirnar, þess- ar konur flýðu ekki. Þær voru sjálf- viljugar í fangbúðunum eins og Bub- er greinir frá. Með því að undirrita yfirlýsingu um að þær afneituðu trú sinni gátu þær yfirgefið fangabúð- irnar samdægurs sem frjálsar kon- ur. Vottarnir höfðu samt allt aðra skoðun en Buber á því hvað væri frelsi og fangavist. Sama tilboð var lagt fyrir píslarvotta frumkristnu kirkjunnar á sínum tíma ef þeir af- neituðu trúnni, svikju Guð. Þeir völdu frekar að vera sendir í róm- versku hringleikahúsin þar sem ljón rifu þá í sig. Með reisn gengu þeir í dauðann, mörgum heiðingjum til for- undrunar. Þeir vildu ekki bjarga líf- inu — að svíkja Guð var það sama og semja sig að siðum heiðingjanna. Vottarnir voru tilbúnir, eins og einn fanginn í Stutthof orðaði það, til að feta braut trúfestinnar við föður- inn eins og Kristur gerði. Frum- kristnir menn áttu að færa keisaran- um fórnir. Þeir neituðu því af sömu ástæðu og vottarnir í fangabúðunum neituðu að undirrita og afneita trúnni. Eitt sinn sagði Buber við eina konuna: „Ég skil ekki hvers vegna þið skrifið ekki undir. Þið getið bara haldið áfram að trúa og útbreiða boð- skapinn á laun. Það kæmi sér miklu betur fyrir hreyfinguna.“ — „Nei,“ svaraði hún, „það stríðir gegn sam- visku okkar. Að láta SS-mönnum í té þessa undirskrift er það sama og að ganga í bandalag við djöfulinn.“ Voru þær ofstækisfullar? Nei, þær brugðust við sem einstaklingar í fangabúðunum — alls ekki sem fjar- stýrð vélmenni eins og það gæti kannski litið út í augum utanaðkom- andi og skilningsvana fólks. Vottur, sem var fangi í Stutthof, segir að til- hugsunin um að afneita trúnni hafi getað verið freistandi. Ég verð að bæta við: Auðvitað var það freist- andi — Stutthof var helvíti og vottarnir voru ekki vélmenni heldur manneskjur. En þessi kona féll ekki fyr- ir freistingunni. Það ræður úrslitum. Styrk- urinn, sem konurnar bjuggu yfir í fanga- búðunum, átti rætur sínar í trú þeirra og staðfestu sem þær sóttu í frásögu guð- spjallanna af dauða- dómi og krossfestingu Jesú. Vottar Jehóva lifa í þeirri sann- færingu að Jesús komi brátt aftur; þá líði þessi illi heimur undir lok og nýr heimur taki við sem varir að ei- lífu. Þangað til hefur Satan tækifæri til að birtast og beita öllum sínum brögðum. Þær litu á Hitler sem verkfæri og spegilmynd Satans. Þar af leiðandi vildu þær ekki beygja sig undir vald Hitlers. Þær vildu ekki heilsa með „Heil Hitler“ eða þjóna stríðsvél hans á nokkurn hátt. Þetta kann að þykja undarlegt nú á tímum: Hvers vegna vildu þær ekki heilsa með „Heil Hitler“ eins og hver annar? Var ekki saklaust að rétta fram handlegginn? Ekki fyrir vott- ana. Að heilsa með „Heil Hitler“ var eitt og hið sama og að falla á kné fyr- ir Satan: Hitler var þá gerður að guði þessa heims og Jehóva var afneitað. Þetta var ekki ofstæki. Í augum vott- anna var málið ósköp einfalt: Þeir heiðra engan nema Jehóva. Ef nauð- syn krefur eru þeir tilbúnir til að láta lífið. Vottarnir líta ekki á dauðann sem endi alls. Þeir líta sömu augum á lífið og frumkristnir menn gerðu: Líf mannsins er ekki eingöngu þetta líf sem lýkur með dauðanum. Trú þeirra á endurkomu Jesú þýðir það sama fyrir þá og hina frumkristnu, að upprisan eigi sér stað og þá hefjist hið eiginlega líf — sem er, eða öllu heldur var, undirstaða kristninnar. Þessi upprunalegi lífsskilningur kristninnar og veraldleg máttarvöld hafa gert marga að píslarvottum og eiga eflaust eftir að gera fleiri að píslarvottum. Dauðinn er ekkert vandamál fyrir þann sem er algjör- lega sannfærður um upprisuna. Hægt er að búa yfir þeim trúarstyrk að fara „sjálfviljugur“ í fangabúðir ef nauðsyn krefur. Vottarnir sóttust ekki eftir að fara í fangabúðir og afla sér virðingar sem píslarvottar en ef það var nauðsynlegt voru þeir til- búnir til að feta í fótspor Krists. Fyrir síðari heimsstyrjöldina voru 25.000 vottar í Þýskalandi. Sex þús- und enduðu í fangabúðum, þar af lét- ust tvö þúsund. Talan er kannski lág í samanburði við þann fjölda sem lét lífið í fangabúðunum. En — þrátt fyrir allt lentu 25 prósent allra votta í Þýskalandi í fangabúðum, og um það bil 10 prósent af vottunum í heild létu lífið þar. Ekkert annað kirkju- félag nálgaðist þetta hlutfall. Vottarnir fá alltaf gott umtal þeg- ar minnst er á þá í frásögnum ann- arra af fangabúðavistinni. Lise Børs- um, norsk kona sem var í fanga- búðunum, leggur áherslu á að ekki hafi verið slegist um matinn í skála vottanna. Það var sjaldgæft að hópur manna byggi yfir slíku siðferðis- þreki. Og hún skrifar í bókinni Kvindehelvedet i Ravensbrück: „Að sumu leyti litum við á þær eins og hálfklikkaðar en þær hjálpuðu okkur á ýmsan hátt.“ Børsum vill láta þess getið að vottarnir hafi sýnt öðrum hlýju og umhyggju: Þær sýndu öðr- um föngum mannúð, hvort sem þeir voru kristnir, gyðingar eða guðleys- ingjar. Þegar líða tekur á frásögnina segir hún að aðrir fangar hafi stund- um fengið gefins kartöflur hjá vott- unum. Kartafla þykir ekki merkileg gjöf í allsnægtaþjóðfélagi. En í fangabúð- unum sultu menn heilu hungri. Að gefa öðrum til dæmis kartöflu var fórn sem krafðist innri styrks, sér- stakrar trúar og sannfæringar. Í búðunum var ekkert ætilegt látið af hendi. Voru vottarnir þá dýrlingar, bjuggu þeir yfir sérstöku siðferðis- þreki sem aðeins fáum er gefið? Vottar, sem komust lifandi úr fanga- búðunum, vísa því á bug. Þeir hafa engan áhuga á að láta hampa sér sem hetjum. Horst Schmidt er vottur Jehóva. Hann sat í fangelsinu í Branden- borg, dæmdur til dauða fyrir að neita að gegna herþjónustu. Hann vill beina athyglinni frá eigin verðleikum og að trúnni. Eins og hann segir sjálfur: Styrkur minn bjó í trúnni. Hann tekur því í sama streng og Dostojevskíj: Sá sem veit af hverju hann þjáist getur þolað hvað sem er. Bæði Dostojevskíj og Horst Schmidt leggja hvor á sinn hátt áherslu á kraft trúarinnar. Þar bera þeir báðir sannleikanum vitni, hvor á sinn hátt. TRÚIN Í FANGA- BÚÐUM NASISTA Lasse Brandstrup Vottarnir fá alltaf gott umtal, segir Lasse Brandstrup, þegar minnst er á þá í frásögnum annarra af fangabúðavistinni. Höfundur er trúarbragðafræðingur og rithöfundur. Klapparstíg 44, sími 562 3614 Kokkabókastatív Litir: Svart, blátt, grænt, grátt Verð kr. 3.995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.