Morgunblaðið - 10.05.2001, Side 18

Morgunblaðið - 10.05.2001, Side 18
AKUREYRI 18 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á AÐALFUNDI Sparisjóðs Svarf- dæla á dögunum voru tilkynntar úthlutanir úr Menningarsjóði Svarfdæla. Að þessu sinn var það gert með athöfn, þar sem þeir sem styrk hlutu mættu í Dalvíkur- kirkju til að veita styrkjunum við- töku, og þar söng Kór Dalvíkur- kirkju. Í ávarpi formanns sjóðsins, Þóru Rósu Geirsdóttur, kom m.a. fram að Menningarsjóður Svarfdæla var stofnaður 1984 á aldarafmæli Sparisjóðs Svarfdæla, og hefur síð- an fengið árlegt framlag frá Spari- sjóði Svarfdæla. Síðan þá hafa 88 aðilar fengið úthlutað ríflega 100 milljónum króna til margvíslegra menningarstarfa, og óhætt að full- yrða að óvíða njóti byggðarlög af svipaðri stærð og Dalvíkurbyggð slíkra styrkja til menningarmála. Að þessu sinni voru til ráðstöf- unar 2.750.000 og skiptust milli 9 aðila, en alls sóttu 25 aðilar um styrk úr sjóðnum, og hafa umsókn- ir aldrei verið fleiri. Dalvíkurkirkja vegna endurbóta kr. 1.000.000. Guðmundur Óli Gunnarsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir til byggingar tónlist- arvinnustofu kr. 600.000. Norður- slóð til að útbúa vefsíðu kr. 250.000. Urðakirkja vegna endur- bóta kr. 150.000. Samkór Svarf- dæla kr. 150.000. Kór Dalvíkur- kirkju kr. 150.000. Félag eldri borgara til kórstarfs kr. 150.000. Söngur í Svarfaðardal, Master Class-söngnám kr. 150.000. Höf- undar leikritsins Allt sem þér viljið til frágangs á handriti kr. 150.000. Úthlutanir úr Menn- ingarsjóði Svarfdæla KENNSLA um búddíska hugleiðslu sem ber yfirskriftina „Eight Steps to happiness“ verður fimmtudaginn 10. maí. Kennari er búddamunkurinn Venerable Kelsang Drubchen sem kennir hjá samfélagi Mahayana- búddista á Íslandi. Kennslan fer fram á ensku og verður haldin að Glerárgötu 32 og hefst kl.20.30. Að- gangseyrir er kr. 1000 en kr. 500 fyr- ir námsmenn og öryrkja. Allir eru velkomnir. Kennsla í búddisma NEMAR í trésmíði við Verkmennta- skólann á Akureyri byggja á hverju ári eitt timburhús sem síðan er selt og andvirðið notað til tækjakaupa fyrir trésmíðadeildina. Hér eru þeir á fullu við lokafrágang þaksins, en gáfu sér tíma fyrir eina hópmynd; brostu til allra stelpna á Íslandi, að sögn, glaðir og vígreifir tilvonandi trésmiðir. Morgunblaðið/Rúnar Þór Iðnir nemar INGVAR Sigurgeirsson, prófessor við Kennaraháskóla Íslands, held- ur fyrirlestur í Háskólanum á Ak- ureyri á morgun, föstudaginn 11. maí, sem ber yfirskriftina „Nokk- ur álitamál um mat á skólastarfi“. Í fyrirlestrinum verða reifuð nokkur álitamál um mat á skóla- starfi, einkum í ljósi hugtakanna ytra mat og sjálfsmat. Ingvar byggir umfjöllun sína að verulegu leyti á reynslu sinni af mati á skólastarfi en hann hefur á und- anförnum árum fengist við mat á fjölmörgum skólum víða um land, bæði sem utanaðkomandi mats- maður og ráðgjafi um sjálfsmat. Ingvar hefur starfað sem kenn- ari á öllum skólastigum, náms- stjóri í menntamálaráðuneytinu, forstöðumaður Kennslumiðstöðvar Námsgagnastofnunar og kennari við Kennaraháskóla Íslands þar sem hann er nú prófessor og for- seti framhaldsdeildar. Hann lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Sussex árið 1992. Ingvar hefur auk rannsókna sinna skrifað fjölda kennslubóka fyrir grunn- og há- skóla, m.a. bækurnar Landnám Ís- lands (meðhöfundur), Listin að spyrja og Litróf kennsluaðferð- anna. Fyrirlestur um álitamál í skólastarfi OPIÐ hús verður fyrir eldri borg- ara í dag, fimmtudaginn 10. maí, í Akureyrarkirkju. Farið verður að Möðruvöllum í Hörgárdal. Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir segir sögu Möðruvallakirkju og Rósa Kristín Baldursdóttir syngur nokkur lög við undirleik Björns Steinars Sól- bergssonar. Síðan verða kaffiveit- ingar í Hlíðarbæ. Þar verður flutt dagskrá um vorið, Rósa Krisín syngur einsöng og loks verður al- mennur söngur við undirleik Jóns Árna Sigfússonar. Bíll fer frá Kjarnalundi kl. 14.15, Víðilundi kl. 14.30 og frá Hlíð kl. 14.45. Lagt verður af stað frá Akureyrarkirkju um kl. 15 og komið aftur upp úr kl. 17. Kyrrðar- og fyrirbænastund verður í kirkjunni kl. 12 á hádegi í dag. Stundin hefst með orgelleik og hægt er að kaupa léttan hádeg- isverð í safnaðarheimili á eftir. Sýningar sem standa yfir í safn- aðarheimili kirkjunnar eru opnar frá kl. 10–12 og 14–17 alla þessa viku. Sýning Leifs Breiðfjörð verð- ur síðan opin út maímánuð. Eldri borgarar til Möðruvalla ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.