Morgunblaðið - 10.05.2001, Blaðsíða 32
ERLENT
32 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Teg.: 155
Bláir - Gulir
St. 24-31.
Verð 2.490
Teg.: 152
Bleikir - Fjólubláir -
Bláir
St. 24-35
Verð 2.490
Teg.: 153
Fjólubláir - Bleikir -
Appelsínugulir -
„Túrkis“
St. 24-35
Verð 2.490
Kringlunni 8-12, sími 568 6211
Skóhöllin, Bæjarhrauni 16, Hf., sími 555 4420
Kátar stelpur í
litríkum skóm!
JÓHANNES Páll II páfi lauk í gær
tveggja daga opinberri heimsókn
sinni til Möltu en áður hafði hann
sótt Grikki og Sýrlendinga heim.
Páfi hefur ferðast meira en nokkur
annar fyrirrennari hans í embætti
og að þessu sinni notaði hann tæki-
færið til að minnast Páls postula
með því að heimsækja sömu
áfangastaði og postulinn á trúboðs-
ferðum sínum fyrir nær 2000 árum.
Páfi er orðinn mjög heilsuveill
en gekk þó óstuddur niður land-
ganginn. Guido Di Marco, sagði
eyjarskeggja líta á páfa sem „upp-
sprettu vonarinnar“. Páfi svaraði
meðal annars með því að minna á
að Möltubúar hefðu reynst Páli
postula og félögum hans vel er þeir
urðu skipreika í ofviðri við eyjuna.
Er páfi söng messu í gærmorgun
á Granaries-torgi við kirkju heil-
ags Públíusar var um helmingur
þjóðarinnar, um 200 þúsund
manns, viðstaddur en ljóst var að
hann var mjög þreyttur en heitt
var veðri. Þurfti að veita um 100
manns sérstaka aðhlynningu vegna
hitans en messan tók um þrjár
stundir.
Er páfi var í Sýrlandi bað hann
kristna, gyðinga og múslima að
leita sátta og hvatti til þess að
hafnar yrðu „uppbyggilegar við-
ræður“ til að friður kæmist á í Mið-
austurlöndum. Að lokinn messu í
gær minntist hann á að enn bærust
ill tíðindi frá Ísrael en þar voru
tveir ísraelskir unglingar myrtir í
gær og palestínskt ungbarn fórst í
árás Ísraelshers á mánudag. „Við
verðum öll að biðja enn ákafar fyr-
ir friði í landi Jesú Krists,“ sagði
páfi.
Hálf þjóðin sótti
messu hjá páfa
Reuters
Mikill fólksfjöldi var við messuna á Möltu í gær í bænum Floriana.
Floriana á Möltu. AFP.
Heimsókn Jóhannesar Páls II á Möltu
EIGINKONA Rudolphs Giulianis,
borgarstjóra í New York, hefur far-
ið fram á það við dómara að hann
banni vinkonu mannsins síns að
koma í borgarstjórabústaðinn. Eru
þau hjónin að vísu skilin að borði og
sæng en búa enn í sama húsinu.
Giuliani og eiginkona hans, sem
enn er lögum samkvæmt, Donna
Hanover, búa í borgarstjórabú-
staðnum í New York, Gracie Mans-
ion, ásamt tveimur börnum sínum
en Giuliani hefur í nokkur skipti
boðið þangað nýju vinkonunni sinni,
Judith Nathan. Það líkar Hanover
ekki og hefur nú krafist þess að
komur hennar verði bannaðar.
Lögfræðingar þeirra hjóna hafa
átt í viðræðum um málið og er um
það deilt hvort Gracie Mansion sé
opinber staður eða einkaheimili
borgarstjórans og fjölskyldu hans.
Haft er eftir lögfræðingum að bann
af því tagi, sem frú Hanover er biðja
um, sé oft samþykkt af dómstólum
og einkum til að hlífa börnunum.
Giuliani barðist við Hillary Clint-
on um öldungadeildarsæti fyrir New
York í síðustu kosningum en dró sig
í hlé er hann geindist með krabba-
mein í blöðruhálskirtli. Áður en til
þess kom sagði hann fjölmiðlum frá
því, að hann væri í tygjum við
ungfrú Nathan og hygðist skilja við
konu sína. Hafði hann þá ekki talað
um það við hana og hún hefndi sín
með því að taka þátt í umdeildu leik-
riti um konur og kynfæri þeirra. Var
það hið mesta vandræðamál fyrir
Giuliani í miðri kosningabaráttunni.
Giuliani lætur af embætti sem
borgarstjóri í lok ársins þar sem
hann getur ekki boðið sig fram í
þriðja sinn. Hefur hann verið gagn-
rýndur nokkuð að undanförnu
vegna þess, að í ljós hefur komið, að
hann hefur látið borgina standa
straum af öryggisgæslu fyrir ást-
konuna.
Lögbann á
viðhald eig-
inmannsins
Nerw York. AP.
UPPGJAFAHERMAÐUR með
sovéska flotafánann. Nokkur þús-
und kommúnistar og aðrir, sem
sakna Sovétríkjanna, héldu í gær
upp á Sigurdaginn, uppgjöf Þjóð-
verja í síðari heimsstyrjöld, með
því að safnast saman fyrir fram-
an fyrrverandi höfuðstöðvar
KGB, sovésku öryggislögregl-
unnar, við Lúbjanka-torg.
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
sagði meðal annars í ræðu í gær,
að 9. maí væri mikill feginsdagur
í Rússlandi en hann legði líka
ábyrgð og skyldur á herðar fólks.
Hann minnti á, að daður við of-
beldi og öfgar leiddi ávallt af sér
miklar hörmungar.
Sigur-
dagur-
inn í
Moskvu
AP
HINN ágæta danska hefð að hjóla í
vinnuna öðlaðist nýja og breytta
merkinu í gær er bankaræningi í
Fredrikssund lét sig ekki muna um
að hjóla til og frá ránsstaðnum. Og
það sem meira er, hann komst und-
an lögreglu og leikur enn lausum
hala.
Maðurinn, sem er sagður á fer-
tugsaldri, komst yfir rúma hálfa
milljón ísl. kr. Hann ógnaði við-
stöddum með byssu, greip pen-
ingana, stökk upp á svart herrahjól
og geystist á brott. Sást til hans á
fullri ferð á hjólinu alllangt frá bank-
anum tíu mínútum eftir ránið en síð-
an hefur ekkert til hans spurst. Hon-
um láðist hins vegar að taka með sér
annan hanskann sem hann lagði frá
sér í bankanum og gerir lögregla sér
því góðar vonir um að hafa upp á
hjólreiðaræningjanum.
Komst undan á reiðhjóli
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.