Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 34
ERLENT 34 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ DONALD Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, sagði á þriðjudag að bandarísk stjórnvöld hefðu ekki enn myndað sér fastmót- aða skoðun á því hvernig hleypa ætti áformum um eldflaugavarnakerfi í framkvæmd. Sagði hann að verið væri að fara yfir fjölmarga mögu- leika og að Bandaríkjastjórn vildi gera tilraunir með nokkra þeirra. „Fólk hugsar: „Almáttugur, þeir hafa augljóslega gert úthugsaðar og fastmótaðar áætlanir sem þeir munu skyndilega svipta hulunni af.“ En það á ekki við rök að styðjast,“ sagði Rumsfeld á fréttamannafundi í bygg- ingu bandaríska varnarmálaáðuneyt- isins, Pentagon. Varnarmálaráðherrann sagði að Bandaríkjastjórn hefði ekki tekið ákvörðun um hvernig kerfi yrði kom- ið upp, þar sem tilraunir með nokkra kostina væru óheimilar samkvæmt gagneldflaugasáttmálanum frá 1972. Bandaríkjamenn hefðu þegar rætt við nánustu bandamenn á alþjóða- vettvangi og myndu síðar fara þess á leit við Rússa og Kínverja að þeir samþykktu breytingar á sáttmálan- um, í þá veru að banni við rannsókn- um og tilraunum yrði aflétt. Bandarískir embættismenn eru þessa dagana að kynna hugmyndir um eldflaugavarnakerfi fyrir stjórn- völdum í ýmsum bandalagsríkjum, þar á meðal Hollandi, Danmörku, Frakklandi og Suður-Kóreu. Á fréttamannafundinum tilkynnti Rumsfeld ennfremur um endur- skipulagningu í varnarmálaráðu- neytinu, sem miðaði að því að gera stefnumótun vegna geimvarna skil- virkari. Flugherinn mun taka við öll- um málum er snerta geimvarnirnar- inn, en áður voru þau dreifð milli hinna ýmsu deilda hersins og varnarmálaráðuneytisins. Bush telur gagneldflauga- sáttmálann úreltan Með gagneldflaugasáttmálanum skuldbundu Bandaríkjamenn og Sov- étmenn sig til að koma ekki upp eld- flaugavarnakerfi sem tryggði varnir um allt landið. Einnig er lagt bann við tilraunum á varnarkerfum í sjó, lofti og úti í geimnum. Markmiðið með sáttmálanum var að tryggja að hvorugt stórveldið gæti þóst nógu öruggt um varnir til að það hætti á að gera kjarnorkuárás á hitt ríkið. Frá undirritun sáttmálans árið 1972 hef- ur hann verið einn af hornsteinum al- þjóðlega öryggiskerfisins. George W. Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í síðustu viku að hann teldi gagneldflaugasáttmálann úrelt- an og ítrekaði kosningaloforð sín um að eldflaugavarnakerfi yrði komið upp, þrátt fyrir að það bryti í bága við sáttmálann. Stjórn Bills Clintons hafði reynt að fá Rússa til að samþykkja breytingar á sáttmálanum í þá veru að heimila takmarkaðar eldflaugavarnir, en vildi ekki nema hann alfarið úr gildi. Donald Rumsfeld skýrir geimvarnaáætlun Bandaríkjastjórnar Áform um eldflauga- varnir ekki fastmótuð Reuters Donald Rumsfeld á fréttamannafundinum í Pentagon á þriðjudag. Reuters Ekki árásar- gjarn eða þunglyndur New Orleans. AP. Harry Potter um- ræðuefni geðlækna GEÐLÆKNAR eru hrifnir af Harry Potter og telja strákinn mun- aðarlausa geta verið góða fyr- irmynd. „Hann er ævintýragjarn, þolir vel ýmislegt neikvætt í fram- komu annarra við hann, er þrátt fyrir það ekki árásargjarn, hroka- fullur eða þunglyndur,“ segir dr. Leah J. Dickstein sem er geðlæknir og fyrrverandi grunnskólakennari. Hún tekur þátt í fjögurra daga þingi bandarískra geðlækna í New Orleans. Dickstein bendir á að þrátt fyrir ýmsar þrengingar missi Harry ekki vonina og viljann til að láta sé þykja vænt um fólk. Bækurnar fjórar um Harry Pott- er hafa náð geysilegum vinsældum vestans hafs sem austan. Höfundur þeirra er J. K. Rowling en hún hafði aldrei skrifað neitt áður en hún tók til við Harry og ævintýri hans. Barnageðlæknir sagði að einu mætti slá föstu: Ekkert barn, ekki einu sinni þau sem dá rapparann Eminem, fyndi til samkenndar með aðalóvini Harrys, galdrakarlinum valdasjúka og illa, Voldemort. Einn læknanna sagðist þó hafa þurft að kljást við börn sem hefðu litið á sögurnar sem sönnun þess að þau þyrftu ekkert að hlýða full- orðnum. Foreldrar tíu ára stúlku hefðu neyðst til að kalla á lögreglu vegna þess að stúlkan var orðin svo ofbeldisfull. „Hún vildi slást við allt lög- regluliðið,“ sagði læknirinn. Hún hefði orðið stilltari eftir að sög- urnar um kvenhetjuna Nancy Drew urðu henni hugleiknari en Potter- sögurnar. BREYTTAR áherslur eru í um- ræðunni um eldflaugaáætlun Banda- ríkjanna og væntanlega stækkun Thule-herstöðvarinnar á Grænlandi í tengslum við hana, en mikill skjálfti hefur verið vegna þess í Danmörku og á Grænlandi. Marc Grossman, aðstoðarutanrík- isráðherra Bandaríkjanna, átti í gær fund með Mogens Lykketoft, utan- ríkisráðherra Dana, þar sem fram kom að ekki væru lengur tímamörk á samningum í tengslum við áætl- unina, en áður var rætt um að þeim yrði að ljúka á þessu ári. Hugsanleg aðstaða á Íslandi í tengslum við eld- flaugavarnaáætlunina hefur ekki komið upp í viðræðum Grossmans við evrópska ráðherra og embættis- menn hjá NATO. Viðræður Grossmans og Lykke- tofts í gær snerust ekki um fram- kvæmd eldflaugavarnaáætlunarinn- ar, heldur um þær breytingar sem hafa orðið á öryggismálum sl. þrjátíu ár og hvernig beri að bregðast við þeim ógnum sem að Bandaríkjunum og bandamönnum þeirra steðja, að sögn Grossmans. Lykketoft lagði áherslu á að haft yrði samráð, ekki aðeins við Evrópu- þjóðir, heldur einnig Rússa og Kín- verja, sem hafa sett sig mjög upp á móti áætluninni. Tók Grossman und- ir það og sagði ennfremur að í um- ræðunum um eldflaugavarnaáætlun væri tekið fram aðild að henni væri opin þeim löndum sem það vildu. Umræðan í Danmörku hefur hing- að til snúist um tvennt; mögulega stækkun Thule-stöðvarinnar og af- stöðu Dana til áætlunarinnar. Ekki er pólitískur einhugur um að styðja hana. Lykketoft hefur ítrekað sagt að Danir muni ekki taka afstöðu til eldflaugavarnaáætlunarinnar fyrr en bandarísk stjórnvöld leggi fram áætlun um slíkt. Það hafi ekki gerst í gær, heldur hafi aðeins verið um að ræða viðræður um hvernig beri að styrkja varnir Vesturlanda. Grossmann sagði stækkun Thule- stöðvarinnar í þessu sambandi ekki hafa verið rædda. Tók Lykketoft fram að kæmi að slíku yrðu Græn- lendingar hafðir með í ráðum. Ekki rætt við eða um Ísland Aðspurður sagðist Grossman ekki myndu ræða sérstaklega við Íslend- inga í þessari Evrópuheimsókn sinni en fulltrúi landsins hefði hins vegar verið viðstaddur fyrsta fund hans sem var hjá sendiherrum Atlants- hafsbandalagsins í Brussel. Lykke- toft og háttsettir embættismenn hans kváðust ennfremur ekki reka minni til að Ísland hefði komið upp í neinum þeim viðræðum sem Danir hefðu átt við Bandaríkjamenn vegna eldflaugavarnaáætlunarinnar, en ut- anríkisráðherrann danski hélt m.a. til Washington í mars sl. þar sem hún var eitt aðalefni viðræðna hans við starfsbróðurinn Colin Powell. Bandarískir embættismenn ræða við Dani um eldflaugavarnaáætlun Ekki rætt um fram- kvæmd, heldur stöð- una í öryggismálum Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. FYRIRHUGAÐ er að leggja niður megnið af nýsjálenska flughernum. Helen Clark forsætisráðherra sagði á þriðjudag að ekki yrðu keyptar nýjar herflugvélar í stað orrustu- þotnanna og æfingavélanna sem samanlagt eru 34 og margar gamlar. Að auki var ákveðið að ekki yrði smíðuð ný freigáta í stað Canterbury sem er eina freigáta nýsjálenska flotans en keypt skip sem sinnt geti fjölbreyttari verkefnum. Sagði Clark að Nýsjálendingar hefðu einfaldlega ekki efni á því að eiga og reka nýtísku-herþotur og vera samtímis með viðunandi land- her og flota. „Nýja varnarstefnan miðar að því að auka slagkraftinn fremur en reyna að sinna öllum svið- um á ófullnægjandi hátt,“ sagði Clark. Huey Iroquois-þyrlur flughersins og C-130 Hercules-flutningavélar verða annaðhvort endurbættar eða keyptar nýjar vélar. Áfram verður notast við P-3 Orion-kafbátaleitarvél og hugsanlegt að hún verði búin flug- skeytum. Einnig mun vera vilji til að kaupa nýjar flutningavélar í stað Boeing 727-véla sem nú eru í notkun. Landherinn mun fá fé til að kaupa ný fjarskiptatæki og farartæki sem eru sum orðin meira en aldarfjórð- ungs gömul og er markmiðið m.a. að gera herinn hæfari til að taka að sér friðargæslustörf. John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, sagði að stefnubreyting Nýsjálendinga myndi hafa „alþjóð- leg“ áhrif, en sérhver ríkisstjórn markaði sjálf sína stefnu og yrði síð- an „að taka afleiðingunum“. Nýsjálendingar gerðu á sínum tíma samning við Ástrali, Breta, Singaporemenn og Malasíumenn um varnarsamstarf á Kyrrahafssvæðinu en um það leyti voru Bretar að hverfa með herlið sitt frá flestum bækistöðvum sínum á þessum slóð- um frá heimsveldistímanum. Er ljóst að framlag Nýsjálendinga í þeim efnum mun nú verða að mestu úr sögunni. Áætlanirnar vöktu hörð viðbrögð hjá stjórnarandstöðunni á Nýja-Sjá- landi. Jenny Shipley, leiðtogi hins íhaldssama Þjóðarflokks, er missti völdin fyrir skömmu, hafði á prjón- unum hugmyndir um að kaupa bandarískar F-16 orrustuþotur í stað 17 gamalla Skyhawk-þotna flug- hersins sem einnig á 17 Aermacchi- æfingaþotur. Hún sagði að yrði farið að tillögum stjórnarinnar myndu Nýsjálendingar hætta að bera sinn hluta byrðanna af vörnum og láta aðrar þjóðir um þær. Talsmaður Þjóðarflokksins í varnarmálum sagði að varnargeta þjóðarinnar yrði eftir breytingarnar „á svipuðu róli og hjá Papúa, Nýju-Gíneu og Fídji-eyjum“. Varnarstefnu Nýja-Sjálands breytt Flugherinn lagður niður Wellington. The Daily Telegraph, AFP. Reuters Skyhawk-orrustuflugvélar á Ohakea-herflugvellinum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.