Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 40
LISTIR 40 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁRBÆJARDEILD Tónskóla Sig- ursveins D. Kristinssonar er 10 ára á þessu ári og af því tilefni verða hátíðartónleikar í Árbæjar- kirkju í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Nemendur deildarinnar, ásamt nokkrum gestum frá kennslustöðum skólans við Hraunberg og Engjateig, flytja tónlistina. Þetta er jafnframt lokaátakið í afmælishátíðarhöldunun. Árbæjardeild Tónskóla Sigursveins. Hátíðartón- leikar haldn- ir í Árbæj- arkirkju SKAGFIRSKA söngsveitin í Reykjavík heldur tónleika í Sel- fosskirkju annað kvöld, föstu- dagskvöld, kl. 20. Einnig kem- ur fram Kammerkór Skag- firsku söngsveitarinnar. Á tónleikunum syngja einsöng Ragna Bjarnadóttir sópran, Dóra Steinunn Ármannsdóttir sópran, Magnús Sigurjónsson tenór og Eiður Otto Guðlaugs- son baríton. Píanóundirleikari er Sigurður Marteinsson. Stjórnandi er Björgvin Þ. Valdimarsson. Kórinn mun m.a. flytja syrpu úr Leðurblökunni eftir Jóhann Strauss og syrpu úr söngleikj- um eftir þá Rodgers og Hamm- erstein, Sígaunakórinn (Coro di Zingarelle) úr óperunni La Traviata eftir Verdi, verk eftir innlenda höfunda, m.a. þrjú ný lög eftir stjórnandann við ljóð Bjarna Stefáns Konráðssonar. Skagfirska söngsveit- in á Sel- fossi KAMMERKÓR Seltjarnar- neskirkju, ásamt strengjasveit, efna til Sumartónleika í kirkj- unni annað kvöld, föstudags- kvöld, kl. 20. Þar verða fluttar einsöngsaríur eftir C.W. Gluck, F. Handel, W.A. Mozart, J.S. Bach og H. Purcell og kórverk eftir C. Gounod, W. Mathias og J.D. Zelenka. Einsöngvarar eru Anna Jónsdóttir, Arnar Guðjónsson, Álfheiður Hanna Friðriksdótt- ir, Ása Fanney Gestsdóttir, Guðrún Helga Stefánsdóttir, Lindita Óttarsson og Jóhanna Ósk Valsdóttir. Stjórnandi er Viera Manasek. Miðaverð er 1.000 kr. Einsöngs- aríur í Sel- tjarnarnes- kirkju KAFFILEIKHÚSIÐ sýnir einleikinn Eva – bersögull sjálfsvarnarleikur á Hótel Sel- fossi annað kvöld, föstudags- kvöld, kl. 21. Áhorfendur fylgj- ast með Evu þar sem hún tekst á við spegilmynd sína, kröfur karlasamfélagsins og eigin áráttu og vinkvennanna sem snýst um að vera í megrun og beita öllum mögulegum og ómögulegum brögðum til þess að halda í unglegt útlit. Það er Guðlaug María Bjarnadóttir sem leikur Evu. Einleikur- inn Eva á Selfossi ANDVARI hefur nú komið út í eina öld og fjórðungi betur. Félagið, sem gefur hann út, Hið íslenska þjóðvinafélag, er því a.m.k. jafngam- alt. Raunar rámar mig eitthvað í að það hafi verið stofnað þjóðhátíðarár- ið 1874. Eitthvað dálítið gaf það út af bókum hér áður fyrr. Og eftir öllum sólarmerkjum að dæma er félagið til enn. En hvað skyldi annars vera af því að frétta? Hverjir eru félagar? Eru haldnir aðalfundir? Hver er for- maður? Þetta gæti verið fróðlegt að vita, þó að ekki komi það við umsögn um efni Andvara. Ritstjórinn fylgir þessu hefti sínu úr hlaði með löngum og skorinorðum pistli, sem hann nefnir „Við alda- mót“. Megininntakið er um hina miklu kristnihátíð, sem þjóðin hafði fremur lítinn áhuga á. Það er rit- stjórinn greinilega óánægður með. Út frá því leiðir hann hugann að sögu, hefðum, þjóðrækni og alþjóða- hyggju og er ekkert myrkur í máli. Eins og venjan er fjallar fyrsta rit- gerðin um nafnkunnan, látinn Ís- lending. Að þessu sinni ritar Sigríður Th. Erlendsdóttir langa og efnis- mikla ritgerð um merkiskonuna Önnu Sigurðardóttur, frumkvöðul og driffjöður Kvennasögusafns ásamt mörgu öðru góðu, sem hún kom til leiðar á langri og athafnasamri ævi. Séra Gunnar Kristjánsson ritar greinina „Kirkjan í keng“. Undirtitill er „Hugleiðingar um þróun íslensku þjóðkirkjunnar á tuttugustu öld“. Eins og undirtitill segir lítur hann yf- ir stefnur og strauma á öldinni. Öldin byrjar með frjálslyndri guðfræði, síðan upp úr miðbiki aldarinnar sæk- ir íhaldssamari guðfræði á. Hún dvínar svo, en kirkjunni tekst ekki að verða alhliða menningarstofnun í ís- lensku samfélagi líkt og hún var í lok nítjándu aldarinnar. „Kengbogin kirkjan heldur á ný út í óvissu nýrrar aldar, lúin eftir mikil afmælishátíða- höld“. – Þetta eru hörð orð, sem ólík- legt er að allir verði sammála. Næsta ritgerð er allmjög annars eðlis. Þar ritar Eysteinn Þorvalds- son um Hannes Sigfússon og ljóðlist hans. Greinina nefnir hann „Farand- skáldið“. Í þessari ágætu ritgerð gef- ur Eysteinn vandað og greinargott yfirlit yfir skáldskap Hannesar. Fannst mér þessi ritgerð einkar gagnleg til skilnings á þessu merka ljóðskáldi, sem kannski er minna þekkt en vera ætti. En kristindómsmálum í þessu Andvarahefti er ekki lokið. Nú er það sagnfræðingurinn Gunnar Karlsson sem ritar greinina Kristni- taka Íslendinga og menningaráhrif hennar. Gunnar segist setja fram ákveðna „og vafalaust umdeilan- leg[a] túlkun á kristnitökunni, frá- sögnum af henni og afleiðingum þess fyrir íslenska menningu hvernig hún fór að líkindum fram“. Tvennt leitast hann við að rökstyðja. Hið fyrra er, að frásögn Ara fróða af kristnitök- unni sé í öllum aðalatriðum rétt. Og hið síðara „að hin sérkennilega að- ferð Íslendinga við að taka kristni hafi skapað miðaldamenningu þeirra þá sérstöðu sem löngum hefur verið helsta stolt og tilveruréttlæting þjóðarinnar“. Kristni fengu Íslend- ingar án kóngs, sem nokkuð er ein- stakt, og innlenda ritmenningu fengu þeir einnig eða eins og höf- undur orðar það: Þeir hleyptu Kristi inn með ritmálið í farteski sínu, en héldu konungi fyrir utan með her sinn og löggæslulið. Rökstuðningur höfundar og öll umfjöllun er næsta áhugaverð og skemmtileg aflestrar. Davíð Logi Sigurðsson á hér rit- gerðina „Samferða í sókn til sjálf- stæðis“. Hún fjallar um Íslandsvin einn mikinn, Skotann Alexander McGill (1891–1973), sem sjálfsagt er nú flestum eða öllum gleymdur. En gott er jafnan að geta góðra manna. Lokaritgerð þessa gerðarlega heftis er svo eftir Þóri Óskarsson. „Skáldskapur og saga“ nefnist hún. Undirtitill „Nítjánda öldin sem texti nýrra íslenskra fræðirita“. Fræðirit- in eru fjögur. Nú heilsar þér á Hafn- arslóð eftir Aðalgeir Kristjánsson, Jónas Hallgrímsson. Ævisaga eftir Pál Valsson, Skyggnst á bak við ský eftir Svövu Jakobsdóttur og Arfur og umbylting eftir Svein Yngva Eg- ilsson. Höfundur getur þess réttilega að það sem þessir höfundar hafa við að styðjast er vitaskuld ritað mál frá 19. öldinni. „Verk þeirra verða því textar um texta“. Samkvæmt því verður þá auðvitað ritgerð hans sjálfs „texti um texta um texta“. Og er ekkert við því að segja. Þannig hlýtur það að vera. Ritgerð hans er vissulega fróðlegt framlag til róman- tíkur 19. aldar og skrifuð af góðum lærdómi. Stundum finnst mér þó sem hnitmiðun mætti vera meiri. Ég hafði mikla ánægju af að lesa þennan Andvara, eins og svo oft áð- ur. Hann er vissulega menningarlegt tímarit. Kristilegur Andvari BÆKUR T í m a r i t Nýr flokkur XLII, 125. ár. Ritstj.: Gunnar Stefánsson. Útg.: Hið íslenska þjóðvinafélag, 2000. 176 bls. ANDVARI Sigurjón Björnsson FYRSTI diskur Jóels Pálssonar, Prím, vakti mikla athygli víða um heim enda gefinn út af NAXOS í fjörutíu löndum. Mér kæmi mjög á óvart ef þessi nýi diskur Jóels, Klif, vekti ekki meiri athygli, svo vel sem hann er heppnaður. Jóel hefur tek- ist að forðast að endurtaka sjálfan sig og hann þróar tónlist sína rök- rétt á nýja stigu. Kannski einhverj- um þyki sem hann hætti sér um of út á einstigi frjálsdjass og raftónlist- ar, en allt sem leikið er á þessum diski er hugsað í botn og hvergi lausir endar. Mannskapurinn er líka af bestu sort. Hilmar Jensson gít- arleikari og Matthías M. D. Hem- stock trommari, sem báðir léku á Prím, og svo kórónar kvartettinn Skúli Sverrisson rafbassaleikari. Þar sem sá maður er nærri er allt fyrsta flokks og má í því sambandi minna á frumraun Óskars Guðjóns- sonar; Far. Þegar hlustað er á upphafsverk skífunnar, Proximity, hvarflar hug- urinn ósjálfrátt til ESP-tímabils Miles Davis. Það er einhver nálægð við þann tón Miles í tónlistinni þótt hrynurinn sé annar og hún stefni að lokum í norður þar sem glittir á jöklatóna Garbareks. Þó er þetta ekta Jóel og tónn hans ævintýra- legur, rifinn sem heill. Þeir félagar spinna síðan millispil þar sem Jóel blæs í kontrabassaklarinettið sitt uns ballaðan Oceanic upphefst og tilfinningin eins og í kvikmyndinni The Cool World þegar drengurinn sá hafið fyrsta sinni og Dizzy blés Bonniés blues. Rats hefst á frjáls- legum samleik Jóels og Skúla og þegar allir eru með nær boppkennd laglínan völdum. Samstíga leika Jóel og Hilmar ballöðuna No questions sem smámsaman minnir á kafla í svítu Ellingtons um Austurlönd fjær og tenór Jóels með websterískum hjáblæstri svífur yfir rafgaldri gít- arsins. Pink&blue upphefst í stjörnumerki Balkanskagans og blæs Jóel í sópraninn. Raftónlistin nær brátt yfirhöndinni og kontra- bassaklarínettið eins og hið ástr- alska didgaridoo. Yfir þessu spinnur Jóel blúsaðan tenórsaxófónsóló af mikilli list. Ívaf er ballaða með frjálsum hrynleik og svo er komið að Taming the beast sem upphefst á léttfönkuðum hryn undir hug- myndaríkum tenórsóló Jóels í klass- ískum stíl. Þá tekur rafmagnið völd- in og drungalegt kontrabassaklarín- ettið. Lítil svíta eins og Pink&blue. Öll eru þessi verk eftir Jóel utan millispilsspuni þeirra félaga. Á Prím voru öll lögin eftir Jóel utan lokalag- ið; þjóðlagið Það mælti mín móðir. Lokalagið á Klifi er ekki heldur eftir Jóel. Það er ballaðan undrafagra, Serenity, eftir Hilmar sem margir þekkja og er hún verðugur loka- punktur þessa velheppnaða disks. Á engum íslenskum djassdiski til þessa hefur tekist betur að sameina framsækna hugsun og djasshefðina. Tónsmíðarnar eru innihaldsmiklar, spuninn hugmyndaríkur og hryn- sveitin jarðbundin. Jóel hefur agað tón sinn enn meira en fyrr og vald hans yfir tenórsaxófóninum er nær algert. Hilmar er hugmyndaríkur í spuna sínum jafnt sem skreytingum og Skúli gæðir hvern takt sem hann leikur nýju lífi. Loks skal það nefnt að Matthías hef ég aldrei heyrt betri, hvort sem hann slær taktinn eða litar tónlistina með áslætti sín- um. Þetta er diskur sem er ekki alltaf auðveldur hlustunar fyrir þá sem vilja helst telja fjóra í taktinn sér- hvert sinn, en ljái þeir eyra eiga þeir eftir að uppskera ríkulega ekki síð- ur en þeir sem heillast hafa af raf- tónlist margs konar og hætta sér inn á lendur djassins undir leiðsögn Jóels og félaga. Tónlistin er mel- ódísk og langt frá því að vera frá- hrindandi fyrir opinn huga. Það er á þessum nótum sem margir af helstu snillingum djassins vinna nú um stundir; leita fanga sem víðast og bræða í djassmótið óendanlega. Klif-ið á tindinn Jóel Pálsson DJASS G e i s l a d i s k u r Jóel Pálsson tenór- og sópran- saxófón, kontrabassaklarinett, Hilmar Jensson gítar, Skúli Sverrisson rafbassa og Matthías Már Davíðsson Hemstock trommur og ásláttarhljóðfæri. Proximity, Oceanic, Rats, No questions, Pink&blue, Ívaf og Taming the beast eftir Jóel Pálsson, Serenity eftir Hilmar Jensson og Interlude eftir kvartettinn. Hljóðritað í Reykjavík 21. og 22. júlí 2000. Út- gefið af ÓMI 2001. JÓEL PÁLSSON: KLIF Vernharður Linnet
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.